Morgunblaðið - 25.11.1975, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NÖVEMBER 1975
37
VELVAKANDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
0 Mengun
hugarfarsins
Þorkcll Hjaltason skrifar:
„Sé ég í anda knörr og
vagna knúða
krafti, sem vannst úr
fossa þinna skrúða,
stritandi vélar, starfsmenn
glaða og prúða
stjórnfrjálsa þjóð með verzlun
eigin búða.“
Vissulega hafa þessar hugsjónir
er skáldið sér djarfa fyrir i hill-
ingum á morgni aldarinnar full-
komlega rætzt og langt fram yfir
það, sem hægt var að gera sér
grein fyrir um siðustu aldamót.
Þessi framtiðarsýn Hannesar Haf-
steins á eftir að þróast til ennþá
meiri fullkomnunar en orðið er,
þegar vélvæðing og tækniþróun
nútimans hafa náð því hámarki,
sem eru lítil takmörk sett i raun-
visindaheimi nútíðarinnar.
Nú er mikið talað um mengun
og mengunarvarnir, sérstaklega
vegna mikilla framkvæmda á veg-
um rikisins víðsvegar um landið.
Eins og vænta mátti fjandskap-
ast kommar mest út í þessi mál og
sjá ekki annað en mengun og
landauðn blasa við hvar sem ein-
hver verksmiðjurekstur er og
vildu sjálfsagt geta sent alla stór-
iðju út í hafsauga, hefðu þeir til
þess mátt og megin. „Maður líttu
þér nær. Hvar liggur i götunni
steinn?". Eg held þó að aðalmeng-
unina sé að finna hjá kommunum
sjálfum, í þeirra eigin þanka-
gangi. Sjúkdómseinkennin leyna
sér ekki þegar þeir ræða um þjóð-
mál, samanber þátt í sjónvarpinu
nýlega um Sakharov og mannrétt-
indi í Rússlandi, eins og þau í ljósi
staðreynda birtast nútimamönn-
um.
0 Reykingabölið
Alvarleg mengun, sem lands-
menn eiga nú við að striða, er af
völdum sigarettureykinga, sem
geta beinlínis orðið að þjóðarböli,
ef svo fer fram sem horfir. Ein-
faldasta ráðið við reykingum er
að hver einstaklingur setji sér
það markmið að hætta alveg að
reykja og standi við það fyrirheit.
Þetta er vel hægt ef ekki skortir
viljastyrk. Hann er þungamiðjan í
þessu máli. Sjúklingarnir á Vífils-
stöðum eru talandi dæmi um
skaðsemi reykinga.
0 1. desember
Fyrir stuttu lauk kosningu í Há-
skóla íslands til hátiðarnefndar 1.
desember n.k. Kosningaþátttaka
var mjög lélega eða um 30 af
hundraði. Eins og komið hefur
fram áður unnu Verðandi — stúd-
entar er fylgja kommum að mál-
um, þessar kosningar, og setja þá
væntanlega svipmót sitt á þau
þess að vita að ég hefði átt mjög
erfitt með að þegja lengi yfir
þessu við Einar og Christer.
Lotta rétt nartaði í matinn sinn
og lýsti þvf yfir að gamlaársdagur
væri svo asnalegur dagur og alls
ekki jafn skemmtilegur og að-
fangadagur. Ekki sérlega vel
heppnuð yfirlýsing, né heldur
viðeigandi, þegar það var haft f
huga hversu sérkennilegt að-
fangadagskvöld við höfðum átt f
vikunni áður. Tord missti stjðrn á
skapi sfnu og skammaði hana.
Lotta fðr að gráta og Hjördfs
Holm leiddi hana fram úr stof-
unni eftir að hafa litið gremju-
Iega á prestinn.
Þessi dagur bvrjaði ðlánlega og
það var eins og allir hefðu illt
hugboð um að fleira ætti eftir
fyrir að koma.
Þegar við höfðum lokið
snæðingi spurði Barbara hvort ég
vildi koma með henni upp meðan
hún væri að búa síg til jarðarfar-
arinnar. Eg hafði þegar farið í
svarta dragt og þvf var ckkert því
til fvrirstöðu að ég yrði við ðsk
hennar.
Það var hlýtt og notalegt uppi f
stðra gestaherberginu og ég fékk
mér sæti í hvftum ruggustðl og
dagskráratriði er flutt verða i
fjölmiðlum þann dag. Öllum ætti
að vera í fersku minni þau dag-
skráratriði, er Verðandi-stúd-
entar létu útvarpa 1. des. 1974, en
þau voru vægast sagt með hrein-
um endemum. Vonandi verða
þessi hátiðarhöld stúdenta nú
með meiri menningarbrag en þá
gaf á að hlýða.
Mér finnst að hátlðarhöld stúd-
enta eigi að stuðla að málefnaleg-
um umræðum á fullveldisdaginn i
stað þess að annarleg sjónarmið
ráði þar öllu, eins og var t.d. í
hátíðarhöldunum fyrir ári, en þá
var minningu dagsins sýnd hin
mesta óvirðing. Ég vona, að betur
verði aö þessum málum staðið nú,
— ofstæki leysir engan vanda.
Heiðarlegur og sannur málflutn-
ingur mun affarasælastur.
Geri stúdentar slík sjónarmið
að sinum geta þeir gengið á vit
örlagadísanna, — „með glófagran
skjöld, glaðir og reifir hið siðasta
kvöld".
Þorkell Hjaltason.“
% Myndlistar-
sýningar
í skólana
Þorbjörg Jónasdóttir skrifar:
„Agæti Velvakandi.
Nú er nýafstaðinn svokallaður
foreldradagur i skólum borgar-
innar. Slíkir dagar eru þarflegir
mjög og þyrftu að vera oftar en
einu sinni á vetri.
Meðan ég var að bíða eftir að fá
viðtal við kennara sonar mins, sat
ég á ganginum fyrir framan skóla-
stofuna ásamt fleiri forráðamönn-
um skólabarna, sem þarna voru i
sömu erindagerðum og ég. Ein
konan hafði haft vit á því að hafa
með sév blað, en við hin sátum og
horfðum i gaupnir okkar eða á
auðan vegginn. Þá fékk ég hug-
myndina, sem mig langar til að
koma á framfæri í dálkum þínum.
Nýlega var frá því sagt í blöð-
um, að Félag íslenzkra myndlist-
armánna væri með myndlistar-
sýningar á fjölda vinnustaða hér í
borginni. Þar hafa listamennirnir
hengt verk sín upp i matstofum
eða öðrum hentugum stöðum.
Enn hef ég ekki heyrt um við-
brögð njótendanna, en mikið má
vera ef þeim er þessi nýbreytni
ekki fagnaðarefni.
Gætu nú ekki þessir ágætu
listamenn lofað börnunum og
unglingunum að njóta þessa líka
og hengt myndir sínar á eitthvað
af þeim auðu veggjakilómetrum
skólanna urn alla borgina? Þannig
held ég, að þeir myndu uppskera
ríkulega. Eg er þeirrar skoðunar,
að myndlist eigi ekki að vera eitt-
hvert sparifyrirbrigði, sem þarf
að gera sér sérstaka ferð til að
horfa á. Það á að prýða þá staði
listaverkum, þar sem fjöldi
manns fer um daglega, og þá auð-
vitað ekki sízt staði þar sem börn
eru í meirihluta.
Raunar fyndist mér sjálfsagt
fyrir fræðsluyfirvöld borgarinnar
og jafnvel fleiri byggðarlaga að
taka þessa hugmynd til athugun-
ar og hafa síðan frumkvæðið. Ég
þekki myndlistarfólkið illa ef það
yrði ekki vel við slikri málaleitan.
Þorbjörg Jónasdóttir."
HÖGNI HREKKVÍSI
og við ábyrgjumst fullan árangur.
Klapparstig 1 Sketfan
Simar 18430 — 852
Almennur kynningarfyrirlestur
verður haldinn að Kjarvalsstöðum á
morgun, miðvikudag kl. 8.30.
ftranisícenidlefftdl tnmedDMani
innhverf ihugun
mcttcnshi mahesh jojj
NYKOMNAR SPONAPLOTUR: |
ORKLA
Stærð 124x250 þykktir: 8, 10, 12, 16, 1 9 og
' mm.
ELITE VATNSÞETTAR
Stærð 1 24x250
Þykktir: 10, 12 og 16
UNOIRRITAÐUR PANTAR:
... ...........stk 1970...... .......stk 1971
...............stk 1972..............stk 1973
NAFN........................................
Heimili ....................................
Fást hjá Halldóri Skólavörðustlg, Verzl. Heimaey
Miðbæjarm. og Kvenfélaginu Hringnum Ásvallagötu 1.
VERÐ KR. 1.200 stk.
Upplag takmarkaS. Fleiri plattar verða ekki gefnir út.
AllurágóSi rennurtil bamaspltalasjóðs Hringsins.
1970 1971 1972
POSTULÍNS-
PLATTAR
KVENFÉLAGSINS
HRINGSINS
NÝJUNG
Platignum svifflugmodel
4 tegundir frægra flugvélagerða. Spitfire, Hurricane,
Mitsubishi A6M Zero, Focke-Wulf Fw 190, i einum
pakka. Auk þess fylgja litir og leiðbeiningar á islenzku.
Módelin, sem auðvelt er að búa til og gaman er að
fljúga. Fást í bóka- ritfanga-og leíkfangaverslunum.
HEILDSÖLUBIRGÐIR
ANDVARI HF.
Sundaborg sími 84722