Morgunblaðið - 02.10.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986
á
Morgunblaðið/Karl T. Sæmundsson
Vatnsborð lækkaði um 30 metra í Grænaióni
Hlaup varð í Súlu fyrir nokkru og er talið að vatnsborð í Grænalóni hafi lækkað um 25 til 30 metra. Myndina tók Karl T.
Sæmundsson þegar hann flaug yfir lónið í bUðskaparveðri eftir hlaupið. í baksýn sjást Skaftafellsfjöllin og Öræfajökull.
Skaftá seld:
Söluverð 22
millj. króna
EIMSKIP seldi í fyrradag Skaft-
ána, sem fyrirtækið keypti af
Útvegsbankanum á sínum tima.
Söluverðið var 22 milljónir
króna, sem er sama upphæð og
Eimskip keypti Skaftána á á
sínum tima.
Eins og kunnugt er, var Skaftáin
kyrrsett á sínum tíma í Antwerpen.
Útvbegsbankinn keypti hana svo á
uppboði í Antwerpen og seldi Eim-
skip. Hörður Sigurgestsson forstjóri
Eimskips, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að sama verð hefði
fengist, og Eimskip greiddi fyrir
skipið. Hann sagði að skipið hefði
verið slet í því ástandi sem það
var, þegar Eimskip keypti það.
Hefði það verið afhent nýju eigend-
unum í Antwerpen í fyrradag, og
myndi að líkindum fara í ávaxta-
flutninga frá höfnum við Miðjarðar-
hafið, til hafna á meginlandi
Evrópu.
Háskóli íslands
75ára:
Gefur Líf-
fræðistofnun
smásjár-
sneiðartæki
HARALDUR Ágústssou viðar-
fræðingur afhenti í gær
Liffræðistofnun Háskólans smá-
sjársneiðartæki að gjöf.
Smásjársneiðartækið, sem er af
vönduðustu gerð, er gefið í tilefni
75 ára aftnælis Háskólans. Tækið
er notað til að gera þunnsneiðara
af plöntu- og dýravefjum fyrir smá-
sjár. Verðmæti þess er um 220
þúsund krónur ásamt fylgihlutum.
Haraldur hefur einnig ánafnað
Háskóla íslands viðarsafn sitt, sem
í dag telur nær 1700 sýni.
Skotmaðurinn
í gæzluvarðhald
til 8. október
MAÐURINN, sem var handtek-
inn vegna gruns um að hann
hefði skotið á bifreið í Breið-
holti, hefur játað verknaðinn.
Skotið var á bifreið í Breiðholti
á miðvikudag í síðustu viku. Rann-
sóknarlögreglan handtók manninn
á föstudag og var hann úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald á laugardag
fram til 8. október.
Svíþjóð-
arför Stein-
gríms frestað
HEIMSÓKN Steingríms Her-
mannssonar, forstætisráð-
herra, til Sviþjóðar hefur verið
frestað.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, fór þess á leit að
heimsókninni, sem vera átti dag-
ana 6. - 7. okt. n.k, yrði frestað
vegna fundar leiðtoga Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna í
Reykjavík 11. - 12. okt. n.k. og
varð Ingvar Carlsson, forsætis-
ráðherra Svía við þeirri beiðni.
Metsölublad á hverjum degi’
Gakktii imi í töfrafieim tótústarmnaf
Saía Causamiða á tónCdka SirfóníufiCjómsveitarmnar
í októBermánuði er fiafln.
Einnuj forsaCa á aukatónCeika vetrarins.
Lausamiðar ocj áskriftarkort eru seCcf
í Girnd við Lcekjargötu aCCa virka cfaga kL 13—17.
Komdu og vetdu pér sceti jýrir veturinn.
Áskriftarkort giCdir á 8 tórdeika í einu.
Kortin eru ekki persónuBundin þannig að
áskrijandi sem cf einkverri ástceðu kemst
ekki á tónCeika getur Cánað það öðrum.
TónCeikaskrá vetrarins Ciggur jrammi
í GimCi og á öCCum FieCstu jerðaskrifstojum
Sorgarinnar^ CíCjómpCötu- og CiCjóðfcera-
versCunum og menningarmiðstöðvum.
Náðu þér í eintak eða kringdu
og við sencCum þér skrána Cieim.
ECCiCífeyrisþegar njóta 30% afsCáttar cfverði
áskriftarkorta.
Símar SinfóníuhCjómsveitarinnar eru
622255 og 22310.
GreiðsCukortaþjónusta.
<
í