Morgunblaðið - 24.01.1989, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1989
HONIG
-merkið sem þú
velur fyrst.
P EGAR EITTHVAÐ
XTENDURTIL!
Hvort sem það er
árshátíð, þorrablót, brúðkaup
eða fermingarveisla er nauðsynlegt að
hafa líflegt í kringum sig. dúkarúllur
eru til í mörgum fallegum litum og ávallt í nýjustu
tískulitunum. dúkarúllur eru 40 m á lengd
og 1,25 m á breidd. Þeim má rúlla út á hvaða
borðlengd sem er Og síðan skærin á.
Þægilegra getur það ekki verið.
Fannir hf. H. Sigurmundsson hf„ heildverslun Hafsteinn Vilhjálmsson
Bildsholða 14. s 91 - 672511 Vestmannaoyjum, s 98-2344/2345 Hliðarvegi 28, Isafiröi. s 94-3207
Osta- og smjörsalan sf Rekstrarvörur Þ. Björgúlfsson hf„ heildverslun
Bitruhálsi 2. Reykjavik. s 91-82511 M. Snasdal, heildverslun Lagarfelli 4. Egilsstoóum, s 97-1715 Rétlarhálsi 2. Reykjavik. s. 91-685554 Hafnarstræti 19, Akureyri. s 96-24491
Erlendum ríkisborgurum
Qölgaði um 25% í fyrra
ERLENDIR ríkisborgarar búsettir hér á landi voru 4.829 talsins sam-
kvæmt þjóðskrá 1. desember síðastliðinn, og fjölgaði þeim um 24,7%
á árinu 1988. íbúar fæddir erlendis sem eiga lögheimili hér á landi
voru 9.351 talsins og Qölgaði þeim um 15,0% á árinu. Mannfjöldi
fæddur á íslandi en með lögheimili erlendis var samtals 12.822, og
íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis voru alls 13.838 talsins.
Tata fólks með erlent ríkisfang
hækkar árlega við flutning þess til
landsins, en lækkar við brottflutning
þess síðar og við það að því er veitt
íslenskt ríkisfang. Erlendir sendi-
ráðsmenn hér á landi og varnarliðs-
menn eiga ekki lögheimili á íslandi,
og koma þeir því ekki í ofangreindar
tölur.
í skýrslu frá Hagstofu íslands
kemur fram að flestir erlendu ríkis-
borgaranna sem búsettir voru hér á
landi 1. desember síðastliðinn eru
frá Norðurlöndum, en þeir eru 1.785
talsins. Frá öðrum Evrópulöndum
eru 1.582, Ameríkumenn eru 965
talsins, þar af eru Bandaríkjamenn
816, frá Asíu eru 240, frá Eyjaálfu
eru 151 og frá Afríku eru 99.
Af þeim íbúum sem fæddir eru
erlendis og áttu lögheimi hér á landi
1. desember eru 4.334 fæddir á
Norðurlöndum, 2.667 í öðrum Evr-
ópulöndum, 1.468 í Ameríku, þar
af 1.166 í Bandaríkjunum, 544 í
Asíu, 166 í Afríku og 164 í Eyjaálfu.
Mannfjöldi fæddur á íslandi en
með lögheimili erlendis 1. desember
síðastliðinn var alls 12.822. íslenskir
ríkisborgarar búsettir erlendis voru
þá 13.838.
Af þeim sem sem fæddir eru hér
á landi en eru með lögheimili erlend-
is eru flestir búsettir á Norðurlönd-
um, eða 8.114. í öðrum Evrópulönd-
um eru búsettir 1.110, í Ameríku
3.148, þar af 2.762 í Bandaríkjun-
um, 257 eru búsettir í Eyjaálfu, 52
í Afríku og 31 í Asíu.
íslenskir ríkisborgarar búsettir
erlendis eru 10.349 talsins á Norð-
urlöndum og 1.353 í öðrum Evrópul-
öndum. í Ameríku eru 2.988 íslensk-
ir ríkisborgarar búsettir, þar af
2.582 í Bandaríkjunum, í Eyjaálfu
eru 308, í Afríku eru 52 og í Asíu
eru búsettir 48 íslenskir ríkisborgar-
ar.
Þeir sem fara til útlanda til at-
vinnudvalar flytja að jafnaði lög-
heimili sitt til viðkomandi lands, en
námsmenn halda yfirleitt lögheimili
sínu á íslandi. Þetta á þó ekki við
þá sem hafa farið til náms á Norðurl-
öndum, en námsmenn þar og skyldu-
lið hafa bæst í hóp þeirra sem telj-
ast til íslendinga erlendis samkvæmt
þjóðskrá.
í
FARARBRODDI
með lágan viðhalds- og
rekstrarkostnað
„Sænska blaðið Expressen hefur undanfarin tvö ár
verið með bíla af sjö gerðum í prufukeyrslu, samtals
100 þúsund kílómetra akstur.
Nýlega sagði blaðið frá niðurstöðum sínum og miðar
við viðgerðarkostnað — fyrir utan venjulegan
reksturskostnað - sem hlutfall af kaupverði
nýs bíls af sömu gerð.
í fararbroddi með lágan viðhaldskostnað er
Suzuki Swift 1,3 GS, með 0,1% viðhaidskostnað
miðað við nýverð."
DV-Bílar, 12. nóv. 1988
SPARNEYTNASTIBIU SEM
FLUTTUR ÍR TIL LANDSINS
Það eru ekki aðeins dagblöðin
sem eru ánægð með Suzuki Swift.
Síðan hann kom á markaðinn
hefur hann unnið allar
sparaksturskeppnir hérlendis.
Tilboðsverð fró kr. 448.000,-
Suzuki Swift, alhliða gceðingur — léttur á fóðrum
$ SUZUKI
----//M-------------------
SVEINN EGILSSON • HÚSI FRAMTÍÐAR
FAXAFENI 10 • SlMI 689622 OG 685100