Morgunblaðið - 24.01.1989, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚÁR 1989
VONSKUVEÐUR UM ALLT LAND
Þorlákshöfii:
Ófærð og
mnflúensa
truflar
skólahald
Þorlákshöfh
AÐFARANÓTT sunnudags gerði
hér töluverða ofankomu og þar
sem vindur var mikill dró fljót-
lega í skafla. Þegar komið var
út um morguninn komust færri
leiðar sinnar en vildu. Aðeins
þeir, sem eiga góða jeppa kom-
ust áfram. Þeir létu þetta
draumaveður jeppaeigandans
sér ekki úr greipum ganga frek-
ar en eigendur fjórhjóla og vél-
sleða sem þeystu fram og aftur
um þorpið.
Herjólfur komst ekki frá Vest-
mannaeyjum sökum veðurs og rútu-
ferði féllu niður þar til Þrengslaveg-
ur hafði verið opnaður um kvöld-
matarleytið.
Stór' hópur bama fór á sundmót
í Borgamesi og var fyrirhugað að
koma heim á sunnudag en ákveðið
var að fresta heimferð til kvöldsins
og vom öll bömin nema eitt komin
til síns heima undir miðnætti en
sökum inflúensu sem er farin að
stinga sér hér niður varð að skilja
það eftir í Borgamesi.
Skólahald fór vemlega úr skorð-
um sökum ófærðar og ekki síður
vegna innflúensunnar sem hefur
nú lagt um 30% nemenda í rúmið
og einnig allmarga kennara þó þeir
hafi verið sprautaðir.
JHS
Morgunblaðið/Magnús Gíslason
Um 30 ferðalangar gistu í Staðarskála aðfaranótt mánudags, eftir að skollin var á stórhrið og
Holtavörðuheiðin hafði lokast. Þessi mynd var tekin heima á hlaði og þar virðast erfiðleikamir
hafa verið ærnir.
Borgarfjörður:
Komust í sterðfræði-
prófín á réttum tíma
Norðurleiðarrúta tepptist í 6 tíma við Fornahvamm
Borgarnesi.
í BORGARFIRÐI stóð óveðrið frá því snemma morguns á sunnu-
dag og fram eftir degi. Um tíma urðu allar götur ófærar, sem
er sjaldgæft. Félagar úr Björgunarsveitinni Brák og lögreglu-
menn voru að störfum við að aðstoða fólk sem lent hafði í vand-
ræðum í ófærðinni eða þurfti að komast til og frá vinnu. Þá
fóru björgunarsveitarmenn upp að Gufá til að aðstoða háskóla-
nema sem þar voru i sumarbústað að lesa undir próf og með
lækni úr Borgarnesi í sjúkravitjun. Háskólanemarnir komust suð-
ur um nóttina og náðu í stærðfræðiprófið á réttum tíma í gær-
morgun. Norðurleiðarrúta lenti i aftakaveðri við Fornahvamm
og varð fólkið að bíða þar í rútunni í 6 klukkutíma.
Akranes:
Dlfeert var
um bæinn
á tímabili
Akranesi.
SLÆMT VEÐUR var á Akranesi
á sunnudag og má segja að um-
ferð bifreiða hafi að mestu stöðv-
ast í efri hverfum bæjarins.
Fram eftir degi var mikið hvass-
viðri og skóf snóinn í skafla og fest-
ust bifreiðir víða í bænum. Reynt
var að hala götum opnum, en á
tímabili var það ekki hægt. Þegar
líða tók á daginn gekk veðrið niður
og var orðið skaplegt undir kvöld.
Þegar hlýnaði í veðri kom mikil
hláka og er víða vatnsflaumur á
götum bæjarins. Ekki er vitað til
að nokkur slys hafi orðið á fólki í
veðrinu og engar skemmdir á hús-
eignum.
- JG
Lítinn snjó setti niður á þjóðveg-
inn til suðurs frá Borgamesi og var
til dæmis nær auður vegur frá
Borgamesi út á Akranes. Ófært
varð þó fljótlega til Reylqavíkur og
sneri Borgamesrútan, sem var á
suðurleiðj við í Hvalfírði um hádeg-
isbilið. Aætlunarbifreið frá Sæ-
mundi braust suður um kvöldið og
í kjölfarið fóru þrjár rútur með um
80 unglinga frá Reykjavík og Suð-
urlandi, sem um helgina voru að
keppa á nýjárssundmóti Skalla-
gríms. Um 20 keppendur frá
Hvammstanga komust þó hvergi
og gistu í Borgamesi.
Félagar úr Björgunarsveitinni
Heiðari voru á ferðinni á snjóbíl
sveitarinnar til aðstoðar ferðafólki
í Norðurárdal. Ökumaður snjóbfls-
ins, Gísli Þorsteinsson bóndi á
Hvassafelli, sagði í gær að bfll fólks-
ins hefði farið útaf fyrir framan
bæinn Hreimsstaði. Fjórir voru í
bflnum og voru þeir fluttir í Hreða-
vatnsskála. Gísli sagði að fólkið
hefði þurft að bíða í bflnum í nokkra
klukkutíma en liðið vel.
Komst ekki út úr
rútunniíBtíma
í Norðurárdalnum tepptust tvær
rútur frá Norðurleið síðdegis. Önn-
ur var á suðurleið með rúmlega 40
manns og stöðvaðist hún við Foma-
hvamm. Hin var á leið norður með
15 manns og komst hún að Hreða-
vatnsskála en var snúið þar við.
„Ég lagði af stað klukkan hálf
tíu á sunnudagsmorgun frá Akur-
eyri og gekk ferðin vel í Staðar-
skála, þar var ég á sumartíma,“
sagði Óskar Stefánsson bflstjóri
Norðurleiðarrútunnar. „Þaðan fór
ég klukkan 14 og komst með góðu
móti suður fyrir Holtavörðuheiði en
þar lentum við í aftakaveðri niður
undir þar sem Fomihvammur var.
Þar biðum við í 6 klukkústundur
en þá komu þeir frá vegagerðinni
I Borgamesi og stungu í gegn fyrir
okkur og við vorum komin til
Reykjavíkur um kl. 3 um nóttina.
Fólkið var að vonum orðið óró-
legt eftir að hafa setið í bflnum án
þess að komast út allt frá því lagt
var upp frá Staðarskála klukkan
14 eða í rúmar 8 klukkustundir.
Sumir höfðu eitthvað lítilsháttar
með sér til að maula en fólk var
hrætt við að drekka mikið því eng-
inn komst út. í Hreðavatnsskála
var tekið vel á móti okkur og þar
fengum við að borða," sagði Óskar.
- TKÞ
Neskaupstaður:
Mýrdalur:
Fljótt skipast veður í lofti
Litla Hvammi, Mýrdal.
MIKIÐ indæÚs veður var hér síðastliðinn laugardag þegar Víkurbú-
ar Qölmenntu á Þorrablót. En fljótt skipast veður í loflti og um það
bil þegar flestir voru komnir heim til sín aðfaranótt sunnudagsins,
að visu seint, skall hér á með miklum byl er gjörsamlega hindraði
menn til nokkurra ferðalaga. Lokaðist vegurinn nálægt Vík en mun
annarsstaðar hafa verið mikið til auður en sökum þess hve úrkoman
var mikil og veðurhæð, sást engan veginn til að halda réttum vegi.
Þrátt fyrir mikla veðurhæð er ekki vitað til að tjón hafi orðið á
mannvirkjum,
Vegagerð ríkisins opnaði síðan
aðalleiðina í gærmorgun og mun
vart hafa tekið nema tvær klukku-
stundir að stinga braut í gegn, þann-
ig að hægt var að hleypa á umferð.
Skólar voru lokaðir í gær en í
Víkurskóla átti skólastarfíð þessa
viku að tengjast listum og var fyrir-
hugað að fá kennslukraft að. Sú
áætlun hefur öll farið úr skorðum,
fyrst og fremst vegna veðurs og
sagði Halldór Óskarsson skólastjóri,
að þeir yrðu að stokka upp á nýtt.
Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri
Ketilsstaðarskóla, sagði þar enga
kennslu í gær og væri það fyrst og
fremst um að kenna innflúensufar-
aldi er heijaði á kennara og nemend-
ur en hann væri þó í rénun.
Sigþór
Gerði smá
hríðargusu
Neskaupstað.
SMÁ hríðargusu gerði hér á
sunnudag. Nú er hér svolítill
snjór, ekki mikill og allt fært
innanbæjar.
Oddsskarðið varð ófært og var
ekki rutt f gær en vegurinn um
Fagradal og Fjarðarheiði var opn-
aður, svo og vegurinn suðúr með
fjörðum. Austflarðaleið ætlaði að
fara yfír Oddsskarð síðdegis í gær.
Þeir eru með snjóbíl til að hjálpa
rútunni yfir ef á þarf að halda,
annaðhvort með því að ýta snjónum
frá eða draga rútuna.
Ófært um Strandir:
Mikiðólagá
síma veldur
öryggisleysi
Laugarhóli, Bjarnarfírði.
AUSTLÆGT vonskuveður hefur
verið hér um slóðir flrá því fyrir
helgi og ófærð á öllum vegum. Á
föstudag tókst með herkjum að
koma börnum heim í Bjarnar-
firði, bæði frá Klúkuskóla og frá
skólanum á Hólmavík, en ekki
var viðlit að koma þeim í skólana
aftur á sunnudag og mánudags-
morgun. Stóð þetta fárviðri alla
helgina og reyndi ekki nokkur
maður að fara á milli bæja.
Á hádegi í gær hafði veðrinu slot-
að í bili og átti að reyna að koma
bömum að minnsta kosti í Klúku-
skóla en þar er góð heimavist.
Ófært er um allar Strandir og
Steingrímsfjarðarheiði en vegimjr
verðá opnaðir í dag. Vegurinn í
Bjamarfjörð og Drangsnes verður
þó ekki opnaður fyrr en á morgun,
miðvikudag.
Amarflug áætlaði flug á Hólmavík
síðdegis í gær og er það áætlunar-
dagur flugsins. Einnig flugu þeir
síðastliðinn fímmtudag svo hjá þeim
hefur ekki fallið niður áætlun. Aætl-
unarbifreið frá Guðmundi Jónassyni
komst ekki nema á Hólmavík á föstu-
daginn, en landpósturinn flutti vörur
og póst sem með henni var áfram í
Bjamarfjörð og Drangsnes. Var það
síðasta ferðin hér um eftir að veðrið
skall á.
Það sem kannski mest hefur háð
íbúum hér er að símasamband hefur
verið með afbrigðum lélegt allt síðan
á jólum. Hefur tímunum saman ekki
náðst í neitt númer, jafnvel ekki
fengist sónn í síma. Verst hefur
gengið að ná sambandi innan 95-
svæðisins. Hafí á annað borð fengist
sónn hefur frekar náðst til símanúm-
era á öðrum svæðum. Hefur þetta
valdið fólki þungum áhyggjum, til
dæmis ef þyrfti að ná til læknis.
Yrði þá að ná í gegn um 02 í slíkum
neyðartilvikum.
SHÞ
Aftakaveður í
Miklaholtshreppi:
SkríðufóU í
Álftafírði
Borg’ i Miklaholtshreppi.
HELDUR sýndi þorrinn verri
hliðar sínar síðastliðinn sunnu-
dag. Nokkur snjór var kominn
og hvessti all hressilega fyrir
hádegið. Aftakaveður, mikill
skafrenningur og ofankoma, var
fram til klukkan 23. Um morgun-
inn var frostið 11—12 stig og fór
ekki að minnka fyrr en eftir
klukkan 16.
Engu farartæki var fært um vegi
vegna blindu og stórhríðar. Engar
truflanir urðu á rafmagni og ekki
er mér kunnugt um að óhöpp hafi
orðið. Skólahald í Laugargerðis-
skóla féll niður í gær. Þó var reynt
að ná í skólann þeim bömum sem
eru í heimavist svo kennsla geti
hafíst á réttum tíma í dag.
I gær var komið bærilegasta veð-
ur, frostlaust en mikil hálka alls-
staðar. Áætlunarbifreiðin frá Sér-
leyfisbifreiðum Helga Péturssonar
hf. fór frá Reykjavík í gærmorgun
á réttum tíma. Fært er um Kerl-
ingaskarð, en Fróðárheiði var ekki
mokuð í gær. Þá varð vegurinn um
Álftaíjörð ófær vegna skriðufalla
en átti að ryðja í gær.
Páll