Morgunblaðið - 24.01.1989, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1989
Rannsókn á meintri sölu á
nýrum úr mönnum í Bretlandi
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Heilbrigðisráðuneytið hefur fyrirskipað rannsókn á ásökunum
um, að nýru úr mönnum séu seld á einkasjúkrahúsi í London, að
sögn The Sunday Telegraph sfð
Tyrkneska lögreglan handtók
Tyrlq'a í Ankara í síðustu viku og
er hann talinn hafa skipulagt ferð-
ir landa sinna til London til að
selja úr sér annað nýrað.
Blaðamenn The Sunday Tele-
graph náðu tali af Ferhat Usta,
sem hafði komið til London á þeim
forsendum, að hann væri að fylgja
ættingja, sem ætti að gangast
thðum sunnudag.
undir nýmaaðgerð. í reynd var það
hann sjálfur, sem gekkst undir
aðgerð. Hann segist hafa átt að
fá 4000 pund (tæplega 360.000
ísl. kr.) fyrir vikið, en einungis
fengið helming þeirrar upphæðar.
Dr. Raymond Crockett, sérfræð-
ingur með stofu í Harleystreet, á
að hafa framkvæmt aðgerðina á
Humana Wellington-sjúkrahúsinu
í London. Nýrað, sem tekið var
úr Usta, fór til National Cidney
Center í London.
Dr. Crockett hefur neitað þess-
um ásökunum og segist ekki vita
til, að Tyrkinn hafi komið til Lon-
don fyrir greiðslu. Usta hafí verið
skoðaður og talinn hæfur til að
missa annað nýrað. Læknirinn seg-
ir, að hvorki hann né samstarfs-
menn hans hafí vitað um neinar
annarlegar ástæður fyrir för
mannsins eða að hann hafi verið
þvingaður til fararinnar.
Hólshrauni 2,Hafnarfirði
sími 52866.
Vor og sumar '89
1113 síður.
Frægustu merkin
í fatnaði.
Búsáhöld,
sportvörur,
leikföng o.fl.
Kr. 190
án burðargjalds
dregst frá
fyrstu pöntun.
B.MAGNÚSSONHF.
á teppum og mottum.
afstáttur.
TEPPAVERSLUN
FRIÐRIKS BERTELSEN
SÍÐUMÚLA 23 SÍMI 68 62 66
SAMNINGAR
Bush hefur störf
George Bush Bandaríkjaforseti sést hér við skrifborð sitt i Hvita
húsinu á laugardag, daginn eftir að hann sór embættiseið sinn.
Á sunnudag lauk hátiðahöldum vegna embættistökunnar með þvi
að forsetinn bað fyrir friði ásamt fúlltrúum rómversk-kaþólskra,
mótmælenda, gyðinga og grisk-kaþólskra saftiaða í Bandaríkjun-
um. Fjölmiðlar áttu viðtöl við nokkra af helstu ráðamönnum i
rikissfjórn Bush um helgina. John Sununu, skrifstofusfjóri forset-
ans, gaf i skyn að kosningaloforð Bu ,h um engar skattahækkan-
ir yrði e.t.v. ekki efnt að fullu; aðstæður gætu breyst og enginn
gæti spáð fyrir um stöðu efnahagsmála eftir Qögur eða átta ár.
Richard Thornburgh dómsmálaráðherra lagði áherslu á það að
stjóm Bush myndi gera sitt til að vinna bug á kynþáttamisrétti
en Reagan-stjórnin hlaut ámæli blökkumannaleiðtoga fyrir skiln-
ingsleysi i þeim efiium.
Tékkóslóvakía;
Skora á ráðamenn til
sjónvarpskappræðna
Prag. Reuter.
Tékknesku samtökin Mannréttindi '77 skomðu i gær á kommúniska
ráðamenn i landinu að mæta til kappræðna i sjónvarpi og kröfðust
um leið afsagnar þeirra embættismanna, sem borið hefðu ábyrgð á
aðgerðum lögreglunnar í sfðustu. Þá vora rúmlega 800 manns hand-
teknir fyrir að mótmæla stjómarfarinu í landinu.
„Við erum tilbúnir til að taka þátt
í sjónvarpsviðræðum ásamt fulltrú-
um stjómvalda," sagði í yfírlýsingu
mannréttindasamtakanna, sem send
var ríkisstjóminni og þinginu. Kom
þar fram, að samtökin vildu taka
þátt í að lægja öldumar meðal al-
mennings, sem sjaldan hefðu risið
hærra en í síðustu viku þegar lög-
reglan handtók rúmlega 800 mót-
mælendur og misþyrmdi mörgum.
„Án umræðna verður engin lýðræð-
isleg þróun, engar framfarir í efna-
hags- og þjóðfélagsmálum," sagði í
yfírlýsingunni.
Tékknesk yfírvöld hafa hvað eftir
annað neitað að ræða við fulltrúa
mannréttindasamtakanna og ekki
er talið líklegt, að af því verði nú.
Sovétmenn yfírgefa Afganistan;
Astandið gerist æ
hörmulegra í Kabúl
„VIÐ ráðleggjum þér að yfirgefa Afganistan tafarlaust á meðan enn
er hægt að komast héðan með áætlunarflugi," segir í bréfi breska
sendiráðsins í Kabúl til 64 Norður-Evrópubúa og Astrala f borginni.
Ástandið f landinu, einkum i höfúðborginni, gerist æ viðsjárverðara.
Af þeim sökum hefúr allt þýskt starfsfólk vestur-þýska sendiráðsins
i Kabúl verið kallað heim og alþjóðlegar þjálparstofiianir hafa mælst
til hins sama af sinu starfsfólki. Höfúðborgin, helsta vigi leppstjóraar
Sovétmanna, er umsetin skæruliðum og þar er mikill skortur á matvæl-
um og öðrum nauðsynjum. Þar á bætast miklir vetrarkuldar. Mo-
hammed Hakim, borgarstjóri Kabúl, segir að ástandið hafi aldrei
verið jafii hörmulegt í borginni. Sovésk yfirvöld hafa heitið þvi að
standa við samninga um að brottflutningi sovéska hersins frá Afgan-
istan verði lokið 16. febrúar „nema ástandið versni til muna,“ eins
og Viktor Karpov, aðstoðarutanrikisráðherra í Sovétríkjunum, orðar
það.
„Arla morguns þegar snæviþaktir
tindar við sjónarrönd kasta af sér
næturhulunni og dagsbirtan fikrar
sig niður í dalinn líkist umsátrið
helst slæmum draumförum," skrifar
fréttaritari vestur-þýska vikublaðs-
ins Der Spiegel frá Afganistan.
Klukkan sex berst tilbreytingarlaus
rödd bænakallarans um Kabúlborg.
Úr hátölurum hins opinbera hljómar
danstónlist og fregnir af „sigrum á
vígstöðvunum“. Skyndilega hefst
skothríðin og heyra má rúður brotna.
Hjörtu mannanna sem þraukað hafa
í níu löng ár slá ekki lengur örar.
Frá morgni til kvölds veijast 35.000
afganskir stjómarhermenn 40.000
umsátursmönnum. Einn lærdóm
hefur stjómarherinn dregið af
stríðinu: Hver skæruliði er tuttugu
manna maki.
í upphafí hétu þeir á opinberu
máli einfaldlega „stigamenn", síðan
„vopnaðir öfgamenn" og um þessar
mundir á tímum „þjóðarsáttarinnar"
kallast þeir „stjómarandstæðingar".
Sjálfir nefna þeir sig „mudsjahidín",
hermenn hins heilaga stríðs. Þeir
bfða síns vitjunartíma, 15. febúar,
þegar sovéski herinn verður á brott.
Þá hefst innreiðin í Kabúl og nýtt
skeið í sögu Afganistans.