Morgunblaðið - 24.01.1989, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1989
Indland:
Ósigur á ósigur
ofan fyrir Gandhi
Madras. Reuter.
RAJTV Gandhi, forsætisrádherra Indlands, varð fyrir miklnm hnekki
á tvennum vígstöðvum á sunnudag. Annars vegar beið flokkur hans,
Kongressflokkurinn, mikinn kosningaósigur í Tamil Nadu-riki á
Suður-Indlandi og hins vegar var oddviti flokksins í Madhya Prades-
h-riki neyddur til að segja af sér. Er hann grunaður um spillingu.
Tamil Nadu er aðallega byggt
dravídum og virtist flokkur þeirra
vera öruggur um hreinan meirihluta
en kosið var á laugardag. Raunar
var vitað með vissu, að Kongress-
Kína:
Vextir
hækkaðir
Peking. Reuter.
ALÞÝÐUBANKI Kína tíl-
kynnti á fimmtudag að vextir
yrðu hækkaðir í áföngum á
næstunni en embættismenn
vöruðu við því að erfitt yrði
að draga úr verðbólgunni
þar sem eftirspurn neytenda
væri miklu meiri en framboð-
ið.
Dagblað alþýðunnar hafði
eftir Liu Hongru, aðstoðar-
bankastjóra bankans, að vextir
af sparifé og lánum yrðu hækk-
aðir smám saman til að örva
spamað landsmanna og draga
úr lántöku þeirra. Lántöku-
kostnaður er miklu minni en
verðbólga í landinu og því geta
fyrirtæki hagnast á lánum á
skömmum tíma. Ársvextir lána
til fyrirtækja eru níu af hundr-
aði meðan verðbólgan er 18.5
prósent, sú mesta síðan komm-
únistar komust til valda árið
1949.
Auk vaxtahækkana hafa
stjómvöld gripið til ýmissa að-
gerða til að draga úr verð-
bólgunni, til að mynda dregið
úr seðlaúgáfu, lánveitingum og
framkvæmdum. í Dagblaði al-
þýðunnar segir hins vegar að
ekkert lát sé á verðbólgunni,
meðal annars vegna þess að
sveitarfélög og fyrirtæki reyni
allt sem þau geti til að komast
jrfir lán. Verðbólgan muni auk-
ast um átta af hundraði aðeins
vegna verðþrýstings frá liðnu
ári. Þá hafí bilið milli framboðs
og eftirspumar aukist til muna
í fyrra.
flokkurinn myndi ekki bera sigur
úr býtum en ósigurinn er hins veg-
ar meiri en nokkum óraði fyrir.
Gandhi verður að boða til almennra
þingkosninga fyrir árslok og því
reið á miklu, að Kongressflokkurinn
kæmi sæmilega út og sjálfur lagði
Gandhi sig allan fram í kosninga-
baráttunni. Á laugardag var einnig
kosið í norðausturríkjunum Naga-
landi og Mizoram en þar átti talning
ekki að hefjast fyrr en í gær.
Á sunnudag ákvað forysta Kon-
gressflokksins í Madhya Pradesh,
að forsætisráðherrann, Arjun
Singh, skyldi segja af sér meðan
fram færi rannsókn á lottói, sem
fjölskylda hans rekur. Fyrir aðeins
ári sendi Gandhi Singh til Madhya
Pradesh til að drífa Kongressflokk-
inn upp fyrir kosningamar á þessu
ári.
Reuter
Elstu frímerki Bretlands
Sérfræðingur við Stanley Gibbons-frimerkjaverslunina í Lundún-
um skoðar tvö frímerki lirá árinu 1840, fyrstu póstfrfmerkin útgef-
in í Bretlandi. Frímerkin eru í svo góðu ástandi að upprunalega
limið hefur haldist. Þau eru metin á 5.750 pund, eða rúma hálfa
milljón ísl. kr.
ERLENT
Brent Scowcroft, öryggisráðgjafí George Bush:
Kalda stríðinu er
ekki að fullu lokið
Washingfton. Reuter.
BRENT Scowcroft, ráðgjafí George Bush Bandaríkjaforseta í örygg-
ismálum, sagði á sunnudag, að hann Iiti ekki svo á, að Kalda striðinu
væri endanlega lokið þrátt fyrir bætt samskipti við Sovétmenn.
í viðtalsþætti á ABC-sjónvarps-
stöðinni sagði Scowcroft, að þótt
Míkhaíl Gorbatsjov, léiðtoga Sov-
étríkjanna, væri umhugað um að
draga úr spennu til að geta tekist
betur á við endurreisnina og
„óskapleg vandamál" í sovéskum
efnahagsmálum, hefði hann samt
Krafa í sovésku tímariti:
Sakaruppgjöf fyrir
alla samviskufanga
Brýnt að endurreisa fórnar-
lömb Brezhnevs og Khrústsjovs
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKA tímaritið Ogonjok birti á sunnudag grein þar sem því
var haldið fram að veita bæri þúsundum manna, er fangelsaðir voru
fyrir pólitískar sakir á stjórnarárum Nikítas Khrústsjovs og Leoníds
Brezhnevs, algera uppreisn æru eins og fórnarlömbum Stalin-
tfmans. Föngunum fyrrverandi væri oft neitað um leyfi til að setj-
ast að á heimaslóðum, þeir fengju ekki störf í samræmi við mennt-
un og hæfileika og þess vegna væri þrautalending þeirra oft að
sækja um leyfi til að yfirgefa landið.
mikinn áhuga á að „valda Atlants-
hafsbandalaginu sem mestum erfíð-
leikum".
„Ég held, að hann telji árang-
ursríkara að gera það með eins
konar friðarsókn í stað þvergirð-
ingsins og hamagangsins í sumum
fyrirrennara hans. Ég er ekki þeirr-
ar skoðunar, að Kalda stríðinu sé
lokið. Við sjáum að vísu ljósglætu
úti við sjóndeildarhring en það er
undir okkur sjálfum komið að sumu
leyti hvort hún reynist villuljós eða
sólin sjálf," sagði Scowcroft.
Scowcroft, sem var áður hers-
höfðingi í flughemum, efaðist að
ýmsu leyti um stefnu Ronalds Reag-
ans og stjómar hans í afvopnunar-
málum, til dæmis um að rétt væri
að fækka langdrægum kjamorku-
vopnum um 50%.' Gaf hann einnig
í skyn, að Bush-stjómin myndi
koma með nýjar eða nokkuð breytt-
ar tillögur þegar viðræðumar um
langdrægu vopnin, START-viðræð-
umar, hefjast í Genf 15. febrúar.
„Það vakir ekki fyrir okkur að tefja
fyrir þeim á nokkum hátt en við
viljum vera vissir um hvað við erum
að semja," sagði Scowcroft.
Reuter
Brent Scowcroft
í viðtalinu bar Scowcroft á móti
því, að hann hefði verið andvígur
geimvamaáætiun Reagans en sagð-
ist telja, að rétt væri að fara hægar
í sakimar. „Ég hef alltaf v,erið
andvígur því að ráðast í miklar
áætlanir áður en vitað er með vissu
hvort þær gagnast okkur yfírleitt,"
sagði hann.
Greinin er rituð af Anatólíj
Golovkov. Þar segir að aðstoða beri
andófsmennina í nafni réttlætis og
jafnframt af því að landið hafi ekki
efni á að missa hæfileikafólk úr
landi.
Fyrr í mánuðinum birtu sovésk
yfirvöld tilskipun sem gera á mögu-
legt að „endurreisa" milljónir af
fómarlömbum ofsókna stjómvalda
á Stalín-tímabilinu. Samkvæmt til-
skipuninni verða nær allir þeir sem
fangelsaðir vom eða drepnir frá því
á fjórða áratugnum og fram til
dauða Stalíns 1953 lýstir saklausir.
Þetta gildir hins vegar ekki um þá
sem dæmdir vom síðar. Golovkov
sagði að fólk yrði enn þakklátara
yfirvöldum ef þau endurreistu skil-
yrðislaust. þá sem síðar vom dæmd-
ir. „Þeir urðu að þjást aðeins vegna
þess að þeir neituðu að taka trúan-
legar ósvífnar lygar, hræsni og inn-
antóm loforð", segir í greininni og
því er bætt við að pólitísku fangam-
ir hafi í mörgum tilvikum haldið á
loft sömu hugmyndum og núver-
andi Sovétleiðtogi, Mikhaíl Gorb-
atsjov.
Pylsa með öllu?
HINN mikli fiöldi þjóðtungna í
Evrópubandalaginu veldur oft
misskilningi einkum þegar þýð-
endum tekst illa upp. Danska blað-
ið Jyllands-Posten sagði nýlega frá
hrapallegum mistökum á þessum
vettvangi.
Lesa mátti í skýrslu um ákveðnar
samningaviðræður að breskur þing-
maður á Evrópuþinginu hefði sagt
að jarðgöngin undir Ermarsund
myndu hafa áhrif á „breska pylsu."
Á næsta samningafundi fór þingmað-
urinn þess á leit að þessu yrði breytt
í skýrslunni. Hann sagðist hafa verið
að tala um breska héraðið Sussex en
ekki pylsu (á ensku: sausage).
Júgóslavía:
Markovic
hveturtil
samstöðu
Belgrað. Reuter.
ANTE Markovic, hinn nýi forsæt-
isráðherra Júgóslavíu, hefur hvatt
landa sina til að vinna sameigin-
lega að efiiahagsúrbótum i
landinu. Markovic, sem Forsætis-
nefnd kommúniataflnkksina út-
nefndi á fimmtudag, er Króati og
pólitískur keppinautur Stipe Su-
vars, leiðtoga júgóslavneska
kommúnistaflokksins.
Ante Markovic hefur áður gegnt
embætti forseta og forsætisráðherra
í Króatíu og átti jafnframt sæti í
miðstjóm kommúnistaflokksins. „Ég
fæ engu áorkað, enginn fær neinu
áorkað, nema við stillum saman
strengi okkar," sagði Markovic og
vísaði til efnahagsvanda landsins.
Erlendar skuldir Júgóslava nema 22
milljörðum dala, jafnvirði 1.100 millj-
arða ísl. króna, og verðbólgan er
251%. Skuldir ríkja þriðja heimsins
við Júgóslava nemur sex milljörðum
dala, eða 300 milljörðum ísl. kr.
Markovic, sem er talinn frjálslynd-
ur umbótasinni, sat í nefnd sem fjall-
aði um efnahagsúrbætur í landinu.
Hann er hlynntur víðtækri endur-
skoðun á sósíalískri efnahagsstjóm
og vill stuðla að flárfestingum er-
lendra aðila í landinu og sterkari
efnahagstengslum við Vesturlönd,
einkum aðildarríki Evrópubanda-
lagsins.
Helsti keppinautur Markovics um
forsætisráðherraembættið var Serb-
inn Borisav Jovic sem sæti á í mið-
stjóm júgóslavneska kommúnista-
flokknum. Vestrænir og júgóslav-
neskir fréttaskýrendur telja hugsan-
legt að samkomulag hafi orðið um
útnefningu Markovics meðal Serba
og Króata, sem mynda tvö stærstu
lýðveldin í Júgóslavíu. Samkomulag-
ið gæti þýtt að Jovic og jafnvel fleiri
stjómmálamenn frá Serbíu hlytu
mikilvæg ráðherraembætti í væntan-
legri ríkisstjóm Markovics.
Jovic er einarður stuðningsmaður
Slobodans Milosevics, leiðtoga serb-
neska kommúnistaflokksins, sem
unnið hefur markvisst að því að auka
áhrif Serba í sjálfstjómarhéruðunum
Kosovo og Vojvodina.
Olíufundur í Perú:
Forsetinn
segir land-
ið verða
útflutn-
ingsríki
Lima. Reuter.
BANDARÍSKA olíufyrirtæk-
ið Occidental Petroleum hef-
ur fundið mikið af hágæða-
olíu í Perú og er fiindurinn
talinn meira en tvöfalda þær
birgðir sem áður var vitað
um í landinu. Forseti lands-
ins, Alan Garcia, segir að
Perú verði olíuútflutnings-
ríki fram yfir aldamótin.
Að sögn forsetans er and-
virði olíunnar, sem nú hefur
fundist, um 10 milljarðar
Bandaríkjadala. Hann sagði að
þetta kæmi sér sérstaklega vel
nú en efnahagserfiðleikar eru
gífurlegir í Perú og auk þess
eiga stjómvöld í blóðugri bar-
áttu við skæruliðasamtök maó-
ista er nefnast „Skínandi
stígur.". Atvinnuleysi er mikið,
verðbólgan 1700%, erlendar
skuldir meira en 16 milljarðar
Bandaríkjadala og alþjóðlegar
lánastofnanir hafa neitað að
veita meiri lán.