Morgunblaðið - 24.01.1989, Síða 25
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1989
Útgefandi Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri BaldvinJónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Heilbrigði
og hagsýni
Arúmum mannsaldri eða svo
hefur aðbúð fólks í landinu
gjörbreytzt til hins betra. Þetta
á við um flesta þætti mannlífs-
ins: íbúðarhúsnæði, vinnuskil-
yrði, heilbrigðisþjónustu,
menntunaraðstöðu, samgöng-
ur, tómstundir o.s.frv.
Margt hefur stuðlað að þess-
ari þróun. Meginskýringin er
stóraukin menntun og þekking
þjóðarinnar, bæði almenn og
sérhæfð. Það er þessi þekking,
ásamt tæknivæðingu atvinnu-
veganna, sem hefur margfaldað
þjóðartekjur íslendinga; bætt
lífskjör þeirra. Verðmætin og
lífskjörin verða til í atvinnulíf-
inu en ekki í Karphúsinu. Það
er engu að síður fólkið sjálft,
menntun þess, þekking og
starfshæfni sem vega þyngst í
þjóðarbúskapnum.
Réttur fólks til að semja um
kaup og kjör — með þeim hætti
sem viðgengizt hefur á Vestur-
löndum — er hluti mannrétt-
inda. Þessi réttur er löghelgað-
ur hér sem víðar. Það eitt sýnir
gildi hans í samskiptum frjálsra
manna. Annað mál er að öll
löggjöf, einnig vinnulöggjöfín,
þarfnast endurskoðunar í ljósi
reynslu og breyttra aðstæðna.
Rætur aimennrar velferðar
liggja víða í flóknu samfélagi
nútímans. Mikilvægt er að þjóð-
arbúskapurinn skili verðmæt-
um til að rísa undir lífsmáta
þjóðarinnar; að hún sníði þjóð-
areyðslu að þjóðartekjum; leggi
fyrir í góðum árum til að mæta
mögrum; eigi fremur en skuldi.
A þetta hefur skort, ekki sízt
í ríkisbúskapnum.
Kenningar af þessu tagi
mega þó ekki skyggja á þá
mikilvægu staðreynd að heil-
brigði manneskjunnar, bæði til
líkama og sálar, er verðmæt-
asta eign hvers einstaklings —
og heilbrigði fólks vegur þyngra
í þjóðarbúskapnum en margur
gerir sér grein fyrir,
Hver og einn hefur áhrif á
eigið .heilbrigði með lífsmáta
sínum. Áhrif samfélagsins, ekki
sízt fræðslu- og heilbrigðiskerf-
is, vega og þungt. Fjölmörg
heilbrigðissamtök hafa og lyft
Grettistökum á þessum vett-
vangi. Og þess sjást merki að
starfsmanna- og stéttarfélög
geri sig gildandi, ekki sízt í
baráttu gegn atvinnusjúk-
dómum.
Starfsmannafélagið Sókn
hefur haft forystu um sitt hvað
er lýtur að heilbrigði meðlima
sinna. í húsi félagsins við Skip-
holt er sérhæfð þjónusta, m.a.
fyrir fólk sem þjáist af slitgigt.
Þar getur fólk sinnt ýmiss kon-
ar heilsurækt. Þar eru bekkir
með gigtarlömpum og leir-
bakstrar með djúphitun. Félag-
ið tekur þátt í kostnaði við end-
urþjálfun sjúkra meðlima sinna.
Það er og fyrsta starfsmanna-
félagið sem greiðir fyrir
krabbameinsskoðun meðlima
sinna og hefur sérstaklega sa-
mið við Krabbameinsfélagið um
slíkt eftirlit.
í þessu efni hefur Starfs-
mannafélagið Sókn fært út
hagsmunagæzlu í þágu með-
lima sinna — og varðað veg,
sem liggur til réttrar áttar.
Dómstólar
og rétt-
arríkið
Skömmu eftir myndun ríkis-
stjómarinnar setti hún
bráðabirgðalög sem fólu í sér
launafrystingu og skertan
samningsrétt, tímabundið.
Af þessu tilefni leitaði ASÍ
umsagnar erlends aðila, Al-
þjóðavinnumálastofnunarinnar.
Þetta var gert vegna þess að
Alþingi „hefur staðfest tvær
alþjóðlegar samþykktir um
verkalýðsmál og samnings-
rétt“, eins og forseti ASÍ komst
að orði í ræðu í Háskólabíói.
Alþingi hefur og sett lög í
landi um samskiptareglur deilu-
aðila á kjaravettvangi, m.a.
þegar til verkfalla kemur. Það
getur ekki talizt óeðlilegt að
ágreiningsefnum af þessu tagi
sé skotið til hlutlausra dóm-
stóla. Það er þvert á móti meg-
inreglan í réttarríkinu.
Þegar það er gert bregður
hinsvegar svo við að forysta
ASI hefur allt á hornum sér og
telur dómstólaleiðina hina
mestu goðgá. Hversvegna? Ef-
ast forseti ASÍ um hlutleysi
dómstólanna? Eða telur hann
málstað sinn hæpinn?
Viðbrögð ASÍ í þessu máli
eru varasöm, að ekki sé meira
sagt. Réttarríkið á að skjalda
þann sem ranglæti er beittur.
Dómstólar eiga að vera skjól
þess sem hefur lögin, sam-
skiptareglur samfélagsins, sín
megin. Það eiga að vera hags-
munir ASÍ ekki síður en ann-
arra að skorið sé úr ágreinings-
efnum eftir réttum lagareglum.
Launavísitala tekin inn í lánskjaravísitölu:
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra:
Markmiðið að sætta sjón-
armið í þjóðfélaginu
Á blaðamannafundi þar sem
breytingar á grundvelli láns-
kjaravísitölunnar voru kynntar
sagði Jón Sigurðsson, viðskipta-
ráðherra að launaviðmiðun í vísi-
tölunni að Vs væri hugsuð til
þess að sætta sjónarmið í þjóð-
félaginu og koma i veg fyrir
misgengi launa og lánskjara. Nýi
grundvöllurinn væri vægari
skuldurum þegar verr áraði og
öfiigt í góðæri, en til lengri tima
jafiiaði þetta sig út.
Jón benti á að aðdragandinn að
þessari breytingu væri langur. Þessi
umræða hefði komið upp þegar
misgengi milli launa og lánskjara
varð 1983-84. Þá hefði ekki náðst
samkomulag um að taka laun til
greina í lánskjaravísitölu, en tekin
upp launavísitala í tengslum við lög
um greiðslujöfnun húsnæðislána nr.
63/1985. í stjómarsáttmála núver-
andi ríkisstjómar væri gert ráð fyr-
ir að laun skyldu hafa helmings-
vægi í lánskjaravísitölu, en full sam-
staða væri í ríkisstjóminni um þessa
niðurstöðu og hann vonaðist til þess
að almenn samstaða myndaðist um
hana í þjóðfélaginu. Hann tók fram
að Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra fyrri ríkisstjómar, hefði gert
þetta að tillögu sinni á ríkisstjómar-
fundi 12. september síðastliðinn að
því er hann minnti.
Hann sagði aðspurður tilganginn
með þessari breytingu ekki þann
að setja verkalýðshreyfinguna í
spennitreyju varðandi launakröfur.
Hins vegar sé ekki óeðlilegt að
menn líti til þess hvað geti fylgt í
kjölfar kjarasamninga. Hann bindur
Hallgrímur Snorrason, hagstofu-
stjóri, segir að frumvarpið um
launavísitöluna sé fyrst og fremst
lögfesting þeirra aðferða sem nú
er beitt við útreikning vísitölunnar.
Samkvæmt núgildandi lögum um
launavísitöluna á að miða hana að
helmingi við taxtakaup og að helm-
ingi við áætlaðar breytingar á at-
vinnutelqum. Undanfarin tvö ár
hefur það hins vegar ekki verið
mögulegt vegna þess að taxtakerfið
var lagt niður í lqarasamningunum
í desember 1986 og Þjóðhagsstofn-
un hefur hætt mánaðarlegum út-
reikningi á breytingum atvinnu-
tekna sökum vandkvæða þar á. Við
útreikningin nú er því stuðst fyrst
og fremst við breytingar á dag-
vinnulaunum, jafnframt því sem
tekið er tiliit til samningsbundinna
breytinga á öðrum launaþáttum,
að sögn Hallgríms. Aðspurður hvort
þessi útreikningur styddist þá ekki
við lög sagði Hallgrímur að ef til
vill væri hægt að túlka það svo
strangt til tekið og eflaust mætti
gagnrýna hann fyrir að hafa ekki
haft forgöngu um að lögum yrði
breytt í samræmi við þessar breyttu
aðstæður. Á hinn bóginn teldi hann
að markmiðum gildandi laga um
vonir við að forystumenn í verka-
lýðshreyfingunni hafí í huga að
peningaleg hækkun væri ekki best
til þess fallin að tryggja betri
lífslq'ör umbjóðenda þeirra. Hann
sagði að breytingin hefði ekki verið
borin undir launþegasamtökin, en
rætt hefði verið við einstaka for-
ystumenn í verkalýðshreyfíngunni.
Miðað við þennan nýja grundvöll
hækkar lánskjaravísitalan um
1,67%, en hefði hækkað samkvæmt
eldra grunni um 2,23%. Þetta jafn-
gildir því að verðbólguhraðinn á
mælikvarða lánskjaravísitölu sé
22% í janúar, en hefði verið 30%
samkvæmt eldra grunni. Aðspurður
um af hveiju sæst hefði verið á
þriðjungsvægi en ekki helmings,
sagði hann að sú breyting hefði
lagt meira á lánskjaravísitöluna.
Það væri meiri breyting á högum
sparifíáreigenda og launavísitalan
væri varla nægilega áreiðanleg til
að vega svo þungt. Markmiðið væri
áfram að sparifé væri tryggt fyrir
verðbólgu.
Dregið úr hættu á misgengi
launa og lánskjara
Á blaðamannafundinum var lögð
fram eftirfarandi fréttatilkynning:
Á vegum ríkisstjómarinnar hafa
að undanfömu farið fram víðtækar
athuganir á því hvemig breyta
megi grundvelli lánskjaravísi-
tölunnar með því að taka launavísi-
töluna inn í hann eins og áformað
er í málefnasamningi stjómarinnar.
Niðurstaða lögfræðilegra athugana
er sú að unnt sé að gera slíka breyt-
greiðslujöfnun vegna húsnæðislána
væri eins náð með þessari útreikn-
ingsaðferð.
í greinargerð með fmmvarpinu
segir að ákvæði gildandi laga um
launavísitölu séu ófullnægjandi
samkvæmt skilyrðum sem sett em
í svonefndum Ólafslögum nr.
13/1979 um vísitölu sem heimilt
sé að miða verðtryggingu við. Enn-
fremur kemur fram að útreikningur
launavísitölu sé ákaflega flókinn og
erfíður sökum skorts á áreiðanleg-
um samtímaupplýsingum um launa-
breytingar. Því sé óhjákvæmilegt
að vísitalan sé leiðrétt eftir á og
nefnt er sex mánaða tímabil í því
sambandi.
Hallgrímur sagði að hann og
fleiri væm þeirrar skoðunar að setja
þyrfti sérstök lög, þar sem laga-
gmnnur núverandi launavísitölu
væri ófullnægjandi. Sjálfsagt væri
verið að ákveða þessa breytingu í
trausti þess að ný lög verði sett hið
fyrsta. „Það er mjög erfítt að reikna
út launavísitölu og hana verður í
reynd að áætla að talsverðu leyti.
Það er því spuming hvort setja eigi
hana inn í gmnn lánskjaravísitölu,"
sagði Hallgrímur að lokum.
ingu á gmndvelli gildandi laga um
verðtryggingu fíárskuldbindinga
enda sé breytingin almenns eðlis
og byggð á opinberlega birtum vísi-
tölum og raski ekki vemlega hags-
munum sem lánskjaravísitölunni
em tengdir þegar til lengdar lætur.
Mikilvægt er að eyða óvissu um
lánskjaravísitöluna sem fyrst. Við-
skiptaráðuneytið hefur því í dag
sett reglugerð um endumýjun á
gmndvelli lánskjaravísitölunnar á
þann hátt að hún breytist fram-
vegis þannig að breytingar fram-
færsluvísitölu, vísitölu byggingar-
kostnaðar og launavísitölu vegi
þriðjung hver. Þessi breyting á láns-
kjaravísitölunni tekur jafnt til nýrra
sem fyrri lánssamninga. Þar til lög
hafa verið sett um launavísitölu
verður farið með útreikning hennar
skv. lögum nr. 63/1985. Seðlabank-
inn mun í dag birta auglýsingu um
lánskjaravísitölu á gmndvelli hinn-
ar nýju reglugerðar og ákvæða í
lögum nr. 13/1979. Vegna þessarar
breytingar hækkar lánslqaravísital-
an um 1,67% 1. febrúar nk. í stað
2,23% ef miðað hefði verið við fyrri
gmndvöll hennar.
Með þessari breytingu er dregið
úr hættunni á misgengi launa og
lánskjara og mismunandi sjónarmið
um gmndvöll lánskjaravísitölunnar
sætt. Þess er vænst að um hana
geti nú tekist almenn samstaða. í
þvf sambandi er rétt að minna á að
í september 1988 lagði forsætisráð-
herra fyrri ríkisstjómar fram tillögu
um að ríkisstjómin fæli Seðlabank-
anum að breyta gmndvelli láns-
kjaravísitölunnar á þann hátt sem
nú hefur verið gert.
Reglugerð um
lánskjaravísitölu til
verðtryggingar spariQár
oglánsQár
Reglugerð ráðuneytisins er svo-
hljóðandi:
1. gr.
Á gmndvelli 39. og 65. gr. laga
nr. 13/1979 um stjórn efnahagsÐ-
Ðmála o.fl. skal gmndvelli láns-
Ðkjaravísitölunnar, sbr. auglýsingu
Seðlabanka íslands frá 26. ágúst
Ð1983, breytt þannig að hún verði
samsett eins og segir í 2. gr. hér á
eftir.
2. gr.
Gmndvöllur lánskjaravísitölunn-
ar verður samsettur áð */3 af vísi-
tölu framfærslukostnaðar skv. lög-
um nr. 5/1984, að Vs af vísitölu
byggingarkostnaðar skv. lögum nr.
42/1987 og að */s af launavísitölu,
sem Hagstofa islands reiknar og
birtir mánaðarlega, sbr. lög nr.
63/1985, þar til sett hafa verið
sérstök lög um launavísitölu, en þá
taki sú vísitala við.
3. gr.
Lánskjaravísitala skv. 2. gr.
tengist þeirri er tók gildi 1. janúar
1989 og kemur að öllu leyti í stað
lánskjaravísitölu skv. fyrri gmnd-
velli.
4. gr.
Lánskjaravísitalan breytist skv.
2. og 3. gr. í fyrsta skipti frá janúar-
gildi hennar til febrúargildis 1989.
5. gr.
Seðlabanki Islands skal birta
auglýsingu um lánskjaravísitöluna
á gmndvelli þessarar reglugerða
sbr. 39. gr. laga nr. 13/1979.
6. gr.
Reglugerð þessi er sett skv.
heimild í 3. mgr. 65. gr. laga nr.
13/1979 og öðlast gildi nú þegar.
Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri:
Launavísitölu verð-
ur að áætla að hluta
Launavístalan sem verður Va af grunni lánskjaravísitölu er reiknuð
út af Hagstofu íslands mánaðarlega, samkvæmt lögum nr. 63/1985
um greiðslujöfhun húsnæðislána. Þessi vísitala hefúr ekki hækkað
siðan í júlí í sumar vegna launafrystingar í landinu og næstu hækkun-
ar hennar er að vænta þegar laun hækka um 1,25% samkvæmt lögum
í febrúar. Þessa visitölu á ný launavisitala að leysa af hólmi, þegar
Alþingi hefúr samþykkt frumvarp um launavisitölu, sem liggur nú
fyrir þinginu.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1989.
25
Morgunblaðið/Bjami
Frá blaðamannafúndinum, Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra og Birg-
ir Árnason, aðstoðarmaður hans.
Asmundur Stefánsson forseti ASI:
Mér fínnst þessi
breyting fráleit
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ segir að sér finnist breytingin á
lánskjaravisitölunni fráleit. Nú sé kaupmáttur í lágmarki og hækkan-
ir væntanlegar i kjölfar samninga á næstu vikum og mánuðum. Þvi
sé ljóst að þessi breyting muni auka greiðslubyrði þeirra sem skulda
og til þess sé ekkert tilefiii.
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins:
Breytingin er ekki veiga-
mikil efiiahagsaðgerð
„Það er alveg ljóst að þessi breyt-
ing mun torvelda kjarasamninga.
Annarsvegar mun launafólk horfa
til þess með angist að launahækkun
skrúfar upp lánskjaravísitöluna í
enn meira mæli en nú er. Hinsveg-
ar munu atvinnurekendur bregðast
harkalega við þegar þeir sjá fram
á að launahækkunin veldur jafn-
framt snöggri hækkun á fjármagns-
kostnaði," segir Ásmundur Stefáns-
son.
Með þessari breytingu verða laun
meir en helmingur lánskjaravísi-
tölunnar. Þannig að þegar laun
hækka um 10% hækkar 2 milljón
króna lán á annað hundrað þúsund
krónur.
PÉTUR Blöndal, formaður
Landssambands lífeyrissjóða,
segir að við síðustu samninga
sem landssambandið gerði við
ríkisvaldið um kaup á ríkis-
skuldabréfiim hafi verið samið
um að gamla lánskjaravísitalan
myndi gilda í þeim samningum.
Samingar þessir voru gerðir í
síðasta mánuði og skuldbundu
lífeyrissjóðirnir sig til að veija
55% af ráðstöfúnarfé sínu til
Þá má einnig benda á, að sögn
Ásmundar, að launavísitalan er
ákaflega ófullkominn mælikvarði á
launabreytingar. Bæði eru þær upp-
lýsingar sem stuðst er við ófull-
komnar og niðurstöður úr launa-
könnunum sem stuðst er við eru
yfirleitt nokkurra mánaða gamlar
er upplýsingar liggja fyrir. Einnig
er ætlunin að miða við laun fyrir
fastan vinnutíma þannig að ef
vinnutími styttist getur launavísi-
talan hækkað þó svo að heildartelq-
ur minnki. Og eins getur láns-
kjaravísitalan hækkað vegna launa-
skriðs þó svo að kauptaxtar standi
óbreyttir.
kaupa á skuldabréfúnum.
„Þessi breyting á grundvelli láns-
kjaravísitölunnar nú vekur upp alls-
konar lögfræðilegar spumingar í
sambandi við kaup okkar á skulda-
bréfunum og raunar flestra annarra
fjármagnseigenda og lántakenda.
Til dæmis virðist ríkisvaldið geta
breytt grunni vísitölunnar upp á
sitt eindæmi. Það vekur þá spurn-
ingu hvort slíkt muni til dæmis
verða gert ef miklar launahækkanir
ÞORSTEINN Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins segir að
breytingin á lánskjaravísitölunni
sé ekki veigamikil efiiahagsað-
gerð. Það væri nær fyrir ríkis-
stjórnina að snúa sér að þvi að
renna traustari stoðum undir
atvinnuvegina en slíkt væri jafii-
an látið sitja á hakanum og væri
dæmi um ringulreiðina á stjórn-
- segir Sigurður B
kvæmdasfíóri VIB
„Ég held að þessi breyting fel-
ist aðallega í því að nú verður
ekki hægt að verðtryggja sparifé
í bönkum þar sem lánskjaravísi-
talan mælir ekki lengur breyt-
ingar á verðlagi heldur sambland
af atriðum sem ekki eru tilbúnar
reglur um,“ segir Sigurður B.
Stefánsson framkvæmdastjóri
Verðbréfamarkaðar Iðnaðar-
bankans um breytinguna á láns-
kjaravísitölunni.
Hann segir að ekki sé hægt að
rökstyðja samsetningu lánslq'ara-
vísitölunnar sem mælingu á verð-
lagi og því sé þetta ósigur í grund-
vallaratriðum að því leyti að þeir
sem taka lán geta ekki verið vissir
um að þeir skili því til baka sem
þeir tóku að láni.
Gamla vísitalan, segir Sigurður,
mældi verðhækkun á neyslu- og
„Með þessari ákvörðun er verið
að koma á meira samræmi milli
launa og lánskjara en verið hafa,“
segir Steingrímur Hermannsson.
„Þama er einnig dregið dálftíð úr
mismun launa og fíármagnskostn-
aðar, sérstaklega ef laun lækka sem
hlutfall af honum, til dæmis með
gengisfellingu.“
í máli Steingríms kemur fram
verða framundan. Þetta er stór-
hættulegt atriði sem skapar óvissu
á fíármagnsmarkaðinum þar sem
ríkið er langstærsti skuldarinn á
markaðinum," segir Pétur Blöndal.
í máli Péturs kemur fram að við
síðustu samninga sem lífeyrissjóð-
imir gerðu við ríkisvaldið um kaup
á ríkisskuldabréfum hafi þeim verið
boðið upp á að nota gömlu eða
nýju lánskjaravísitöluna sem taka
átti í notkun. Þeir hafi valið þá
arheimilinu. Sér virtist sem þessi
breyting væri eingöngu til þess
að lækka vísitöluna nú.
„Varðandi þessa breytingu er
rétt að ég lagði hana til í síðustu
ríkisstjóm og þá sem málamiðlun-
artillögu og svar við kröfum Fram-
sóknarflokksins. Ég taldi á þeim
tíma að veijandi væri og réttlætan-
Stefánsson firam-
fjárfestingavörum og virkaði þann-
ig sem góður mælikvarði á verðlag.
Um það hafi ekki verið deilt.
„Að mínu mati mun þessi nýja
vísitala hækka meir en sú gamla
er fram í sækir og hún mun koma
þyngst niður á þeim sem lægst
hafa launin, segir Sigurður. „Það
liggur fyrir að aðallántakendur eru
fyrirtæki en ekki einstaklingar og
þessi nýja vísitala kemur illa út
fyrir þau. Fyrir utan að taka á sig
launahækkanir verða þau einnig að
taka á sig aukinn fíármagnskostnað
vegna þess að hærri iaun þýða
hærri lánskjaravísitölu."
Sigurður segir að þessi breyting
sé ótrúlega skammsýn ráðstöfun
þar sem fómað er fyrirkomulagi,
sem fólk var farið að treysta, fyrir
örlitlar breytingar sem hafa í sjálfu
sér ekki mikil áhrif.
að þessi breyting sé að hans áliti
enginn lokaáfangi í þessu máli.
Hann vísar aftur til málefnasamn-
ingsins þar sem fram kemur að
afnema eigi lánskjaravísitöluna
þegar jafnvægi kemst á í efna-
hagslífí Islendinga. Á þetta muni
hann leggja höfuðáherslu en hann
segist ekki vera það mikill spámað-
ur að geta sagt um hvenær það yrði.
gömlu og nú sé spuming hvort þessi
nýja breytta lánskjaravísitala sé sú
gamla eða sú nýja sem fyrirhugað
var að taka í notkun.
Pétur segir að lántakendur geti
tapað á nýju vísitölunni ef launa-
hækkanir verða umtalsverðar á
næstunni og þá munu sparifíáreig-
endur hagnast. Þess vegna er Ijóst
að margskonar ágreinings er að
vænta.
legt að leggja hana fram sem mála-
miðlun þótt efnislega leysti hún
ekki nein vandamál," segir Þor-
steinn Pálsson.
Þorsteinn gagnrýnir það að ekki
skuli hafa verið staðið að þessari
breytingu með lagasetningu. Slíkt
hafí í för með sér réttaróvissu. Er
hann lagði tillöguna fram var gert
ráð fyrir því að fela Seðlabankanum
að annast framkvæmdina og meðal
annars ganga úr skugga um lagaleg
álitaefni.
„Ef þessi breyting hefði verið
framkvæmd með lögum hefði það
eytt þeirri óvissu sem nú kemur
upp. I fljótu bragði má gefa sér að
þegar launafrysting er í gangi sé
það til bóta fyrir skuldara en ef
laun hækka er það til bóta fyrir
spari-og fjármagnseigendur,“ segir
Þorsteinn, og bætir því við að til
lengri tíma litið óttist hann að þetta
samspil gæti leitt til spákaup-
mennsku þegar von er á sveiflum
á vísitölunni.
Afskaplega
varasamt
- segirJón
Adolf Guðjónsson
„ÉG HELD að það sé afskaplega
varasamt að fara út á þessa
braut. Launin vega æði þungt f
vísitölunni í dag eins og menn
vita og hlutur þeirra verður nú
gerður enn meiri,“ sagði Jón
Adolf Guðjónsson bankastjóri
Búnaðarbanka íslands. „Á þeim
tímum sem fram undan eru held
ég að það sé afskaplega hæpið.“
„Hitt er annað mál að þetta
hefíir þau áhrif núna að hækkun
verður minni en reiknað var með,
en þegar litið er til lengri tíma
held ég að þama sé enn meiri
hætta á ferðum og þessi vísitala
verði viðkvæmari, einkum og sér
í lagi varðandi kjaramálin," sagði
Jón Adolf Guðjónsson.
Kemur á
óvart núna
- segir Arnar
Sigurmundsson
„ÉG STÓÐ í þeirri meiningu að
ríkisstjómin hefði frestað þessu
máli, meðal annars vegna
harðra viðbragða frá verkalýðs-
hreyfingunni," sagði Amar Sig-
urmundsson formaður Sam-
bands fiskvinnslustöðva. „Þess
vegna kom þessi ákvörðun mér
nokkuð á óvart núna, þótt hún
hefði legið í loftinu í kringum
áramót.“
„í augnablikinu hefur þetta í för
með sér lækkun á lánskjjaravísi-
tölunni en ég skil mjög vel við-
brögð verkalýðshreyfingarinnar,
sérstaklega láglaunahópanna, sem
telja þetta ekki af hinu góða til
lengri tíma litið," sagði Amar Sig-
urmundsson.
Sjá ennfremur bls. 27.
Sömdum um gömlu vísitöluna
- segir Pétur Blöndal formaður Landssambands lífeyrissjóða
Ekki hægt að verð-
tryggja spariféð
Steingrímur Hermannsson:
Lít á breytinguna
sem málamiðlun
STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra segir að hann líti á
breytinguna á lánskjaravisitölunni sem málamiðlun. Hann bendir á
að samkvæmt málefiiasamningi ríkisstjómarinnar hafi verið gert
ráð fyrir nýrri lánslgaravísitölu þar sem launavísitalan hefði helm-
ingsvægi. Þetta hefði verið gagnrýnt og talið að launin vægju óf
þungt. Þvi væri þessi niðurstaða málamiðlun við þau sjónarmið.