Morgunblaðið - 24.01.1989, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1989
Okkar landsþekkta víkingaskip er hlaóið
gómsætum réttum í hódeginu, þannig að
allir finna eitthvað Ijúffengt við sitt hæfi.
Víkingabóturinn svignar af þorramat.
Verd pr. mann aðeins kr. 995,-
Sérstakur sérréttamatseðill ó kvöldin.
Borðapantanir í síma 22322.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA
HÓTEL
Hér á eftir verða taldar þaer bjór-
tegundir sem tilboðum var skilað
fyrir. Á eftir tegundinni er skráður
umboðsaðilinn ef hann er kunnur,
en óljóst þar sem óstaðfest er hver
fer með umboðið. Síðast er verð
hverrar tegundar fyrir eina 33/35,5
sentilítra dós. Fyrst er fob verð og
síðan cif þar sem það liggur fyrir.
Frá Bandaríkjunum: Budweiser,
umboð 3K/Magnús Jónasson, verð
8,84/11,41; Miller Lite, umboð ís-
lensk-ameríska, verð 9,04/12,05;
Schlitz, umboð óljóst, verð
10,16/12,86.
Frá Austurríki: Keiser, umboð Út-
gafðar sf, verð 11,19/-.
Frá Danmörku: Tuborg, umboð
óljóst, verð 11,81/13,70; Carlsberg,
umboð K. Karlsson/Helgi Ingvar
Karlsson, verð 12,99/14,89; Royal,
umboð O. Johnson & Kaaber, verð
15,50/-.
Frá Svíþjóð: Pripps, umboð Vífílfell
hf, verð 14,48/-; Falcon, umboð
óljóst, verð 13,89/-; Röde Orm,
umboð Nýlenduvörur sf, verð
21,03/23,18.
Frá V-Þýskalandi: Holsten, umboð
Konráð Axelsson, verð 12,83/16,11;
Beck’s, umboð óljóst, verð
13,28/15,22; DAB, umboð G.
Óskarsson & Co., verð 12,59/-;
Kronbacher, umboð Atli Þór Ólafs-
son, verð 18,06/-; Ekki var við opn-
un útboðsins tilkynnt um verð á
dósum fyrir Dortmunder Union, en
flöskuverð er nokkru hærra en Hol-
stein og DAB. Umboð fyrir Dort-
munder Union er skráð á Takt hf.
Frá öðrum löndum: Heineken,
umboð Rolf Johansen & Co, verð
15,10/19,35; San Miguel, umboð
Kristján Arnason, verð 15,77/19,23;
Maes Pils, umboð óljóst, verð
13,11/-; og loks Bass Export, um-
boð óljóst, verð 14,51/16,56.
Alls eru þetta 19 tegundir. Af
þeim fara þijár í sölu í verslunum
ÁTVR, þó ekki fleiri en ein frá
hveiju landi.
Nemendaleikhús Leiklistarskóla íslands, frumsýnir í Lindarbæ,
„og mærin fór í dansinn . . .“
Nemendaleikhúsið
frumsýnir í Lindarbæ
Nemendaleikhús Leiklistarskóla íslands, frumsýnir fimmtudag
26. janúar kl. 20 í Lindarbæ sitt annað verkefni af þremur sem
sýnd verða í vetur. Leikritið heitir „og mærin fór í dans-
inn . . .“ og er eftir Debbie Horsfield.
Debbie Horsfield er ungur
breskur höfundur. Hún er fædd
og uppalin í Manchester. Hún hóf
að skrifa leikrit upp úr ’79, þegar
hún var á síðasta ári enskunáms
í Newcastle-háskóla.
Hún og nokkrir samnemendur
hennar ákváðu að skrifa leikrit
fyrir Edinborgarhátíðina og það
kom í hennar hlut að skrifa leikri-
tið. Þetta fyrsta leikrit hennar var
um stelpnahóp, sem voru áhang-
endur fótboltaliðs Manchester Un-
ited. Debbie hélt áfram að skrifa
og vann til ýmissa verðlauna. Hún
þróaði hugmyndina um stelpna-
hópinn og aðalsöguhetjumar þær,
Alice, Beth, Nitu og Phil, og úr
henni urðu til 3 leikrit. Eitt af
þessum þremur verkum er „og
mærin fór í dansinn . . .“ (True,
Dare, Kiss) sem hlaut síðan verð-
laun Thames sjónvarpsfélagsins
árið 1983.
Verkið er samsett úr stuttum
myndum úr lífí söguhetjanna og
Qallar um ungt fólk í nútíma sam-
félagi.
Leikstjóri sýningarinnar er Stef-
án Baldursson, leikmynd er í hönd-
um Messíönu Tómasdóttur, umsjón
með búningum hefur Ása Björk
og lýsingu annast Ámi Baldvins-
son. Þýðandi er Ólafur Gunnars-
son, hárgreiðslu annaðist Ámi
Kristjánsson og tæknimaður er
Ólafur Öm Thoroddsen.
Nemendur 2. bekkjar sjá um
alla aðstoð við sýninguna. Nem-
endur á 4. ári Leiklistarskóla ís-
lands em: Bára Lyngdal Magnús-
dóttir, Christine Carr, Elva Ósk
Ólafsdóttir, Helga Braga Jóns-
dóttir, Ólafur Guðmundsson, Sig-
urþór A. Heimisson, Steinn Á
Magnússon og Steinunn Ólafs-
dóttir.
Kynning á notkun rafeinda-
smásjár á Iðntæknistofhun
DAGANA 24.-27. janúar mun
sérfræðingur Cambridge Instru-
ments frá Bretlandi halda röð
fyrirlestra um notkun rafeínda-
Þetta eru tölurnar sem upp komu 21. janúar.
Heildarvinningsupphæð var kr. 2.959.792,-
Engínn var með fimm tölur réttar og baetist því fyrsti vinningur sem var kr.
2.526.479,- viö 1. vinning á laugardaginn kemur.
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 438.582,-
skiptist á 3 vinningshafa og fær hver þeirra kr. 146.194,-
Fjórar tölur réttar, kr. 756.510,-skiptastá 151 vinningahafa, kr. 5.010,-á mann.
Þrjár tölur réttar, kr. 1.764.700,- skiptast á 5.042 vinningshafa, kr. 350,- á mann.
Sölustaðir eru opnir f rá mánudegi til laugardags og er lokað 15 mínútum fyrir útdrátt.
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.
smásjár með efnagreiningarbún-
aði í eigu ITÍ, RB og HL Fyrir-
lestrunum verður skipt eftir far-
sviðum, tveir fyrirlestrar fyrir
hvert fagsvið. Fyrri fyrirlestur-
inn verður almenn kynning á bún-
aðfnum og notkunarsviðum hans
innan greinarinnar, en siðari fyr-
irlesturinn beinist að sérhæfðarí
notkun búnaðarins og þá meðal
annars á sýnum þátttakenda.
Kynningamar verða sem hér seg-
ir: Málmtækni þriðjudag kl. 9—12
og miðvikudag kl,- 13—16. Berg-
fræði og steinefni þriðjudag kl.
9—12 og fimmtudag kl. 13—16.
Plast-, málningar- og efnatækni
þriðjuda.g kl. 13—16. Líf- og læknis-
fræði miðvikudag kl. 9—12 og föstu-
dag kl. 9—12.
Kynningamar eru ætlaðar þeim
sem starfa í viðkomandi greinum og
verða haldnir í Iðntæknistofnun ís-
lands, Keldnaholti. Aðgangur er
ókeypis.
í framhaldi af kynningunum verð-
ur haldið notendanámskeið í mars
næstkomandi, þar sem þátttakendur
verða þjálfaðir í að nota búnaðinn á
eigin spýtur.
- segir Höskuldur Jónsson fors^óri ÁTVR
AF ÞEIM 19 tegundum bjórs, sem verðtilboð komu um síðastliðinn
fimmtudag, eru ekki allar gildar í samkeppninni um pláss í hillum
verslana ATVR, að sögn Höskuldar Jónssonar forstjóra ÁTVR.
Hann segir að útboðið hafi veríð lokað og að valdar hafi veríð úr
tegundir sem ætla mætti að séu kunnar á íslandi, auk þess sem
framleiðendur þeirra gátu uppfyllt skilyrði um pakkningar. Hins
vegar skiluðu sér tilboð frá fleiri aðilum og eru þar á meðal nöfii
sem lítt eða ekki hafa heyrst hér á landi. Mjög mikil samkeppni
virðist vera um umboð fyrír nokkrar tegundir og sagði Höskuldur
að birst hefðu nokkrir aðilar fyrír sumar tegundir við opnun tilboð-
anna.
Meðal hinna lítt þekktu tegunda
eru Bass Export og Maes Pils. Hös-
kuldur sagði að óvíst væri að tekið
yrði tillit til þeirra tilboða þegar
valdar verða tegundimar. Þá sagð-
ist hann ekki vita enn, hvort miðað
yrði við fob verð eða cif. Hugsan-
lega gæti Afengisverslunin fengið
hagstæðari flutningsgjöld heldur en
bjórframleiðendumir. Hann sagði
að skipafélögunum hefði verið sent
erindi þess efnis, að þau megi búast
við að flutningamir verði boðnir út
innan skamms. Einnig er hugsan-
legt að ná samningum um að bjór-
flutningar til landsins falli inn í
samninga um vínflutninga, sem nú
eru í höndum Skipadeildar Sam-
bandsins samkvæmt útboði.
Meðal þess sem ekki er enn ljóst
varðandi verðið er, að sumir fram-
leiðendur miðuðu verð sitt við 35,5
sentilítra dósir, eins og em á mark-
aði í Bandaríkjunum. Höskuldur
sagði að þær dósir væm jafngildar
í samkeppninni og 33 sentilítra dós-
imar. Hann bjóst við að bandarísku
framleiðendumir miðuðu við 35,5
sentilítra dósir og hugsanlega ein-
hveijir evrópskir líka.
Óljóst með sum umboð
Ekki liggur ljóst fyrir hveijir fara
með umboð sumra tegundanna.
Höskuldur sagði að ijórir til fímm
aðilar hefðu birst við opnun tilboð-
anna og kynnt sig umboðsmenn
sömu tegundar, í öðmm tilvikum
vom færri aðilar á ferð, en þó fleiri
en einn. Hann kvaðst ekki geta sagt
hveijir væm umboðsaðilar nema
fyrir lægi staðfesting á því frá fram-
leiðanda.
Bj órtegundirnar ekki all-
ar gildar í samkeppninni