Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1917, Blaðsíða 6
8
Ársrit Ræktunarfjelags Norðurlands.
arfjelagsins við búnaðarfjelögin, umferðaplæingar, fræ-
gjafir fjelagsins og verkfæraútveganir.
Að síðustu birti hann skýrslu um fjárhag fjelagsins, er
sýndi að eign þess hefir aukist um 11,631.49 kr. á því
tímabili, sem hann hefir verið í þjónustu fjelagsins. Eru
þar af innkomnar í æfitillögum fjelagsmanna ca. 6800 kr.
4. Samþykt sýslufundar Skagfirðinga.
Fundarstjóri lagði fram brjef, dagsett 5. mars 1917, frá
sýslumanni Skagafjarðarsýslu. Var nefnd kosin í tilefni
af þvf. Kosningu hlutu:
Jakob H. Líndal, Akureyri.
Einar Jósefsson, Vatnsleysu.
Jón Marteinsson, Bjarnastöðum.
Pá var fundi frestað til næsta dags.
Þriðjudaginn 8. maí var fundinum haldið áfram á sama
stað. Fundarstjóri setti fundinn kl. 9 árdegis.
Var þá tekið fyrir:
5. Nefnd sú, sem kosin var til að athuga og gera til-
lögur um brjef sýslumannsins í Skagafjarðarsýslu við-
víkjandi jarðabótamælingum þar á yfirstandandi ári, kom
fram með svo hljóðandi tillögu:
»Stjórn Ræktunarfjelags Norðurlands sje falið að láta
»framkvæma venjulegar mælingar og leiðbeiningar í Skaga-
»fjarðarsýslu, í trausti til þess, að greidd verði hin lög-
>boðnu gjöld frá sýslu- og viðkomandi búnaðarfjelögum.
»En jafnframt tilkynnist háttvirtum oddvita sýslunefndar
>Skagafjarðarsýslu það, að Ræktunarfjelag Norðurlands
»sjái sjer ekki fært að breyta lögum sínum þannig, að
»það framvegis geti látið framkæma mælingarnar, nema
»gegn hinu ákveðna gjaldi frá sýslusjóði og einstökum
»meðlimum búnaðarfjelaganna, sem ekki eru fjelagar Rækt-
»unarfjelags Norðurlands.«
Tillagan var samþykt í einu hljóði.