Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1917, Blaðsíða 64
70
Ársrit Ræktunarfjelags Norðurlands.
Gullfífil (calendula officinalis), Eilífðarblóm, tvær tegundir
acroclimium roseum og helsychrisum monstrosum; sú síð-
arnefnda hefir rauðgula margfalda krónu. Ljómandi fall-
egt blóm, ef það er þurkað á rjettan hátt, getur það hald-
ið sjer lengi. Var rjett að byrja að springa út, þegar
frostið kom.
Amaranthus hefir rauð blóm og blöð, óx mjög lítið,
en komst þó í blóm.
Antirrhinum, komst aldrei svo langt. að hann blóm-
gaði úti.
Levköj og Blómkarse og fleiri og fleiri segja sömu
sögu.
Það, sem sáð var úti í garðinum, var: Nemophile, Esch-
scholtzia, Valmue, Strandlevköj, Pralbaunir og Japaner
blómsturfræ. Hið síðastnefnda er blanda af ýmsum harð-
gerðum blómfrætegundum og er mjög auðræktað.
Að undanskildum baununum blómstruðu allar þessar
tegundir og urðu sumar mjög fallegar.
Fjölæru blómplöntunum var »priclað« úr vermireit í
sólreit; í sólreitnum stóðu þær á annan mánuð. Um miðj-
an ágúst var þeim plantað í græðibeð í garðinum og er
þeim þar ætlað að safna krafti til næsta sumars. í haust
var þakið yfir beðin með Ijettum áburði. Af þessum
plöntum vil jeg nafngreina: Kvöldstjörnu, Bellis, Stúd-
entanelliku, Akkelye, Malva, Eilífðarblóm, Gleym mjer ei,
Fingurbjörg.
Undir gleri í sólhúsi vóru ræktaðar pottaplöntur: Pel-
argóníur, Acacia, Asparges, Convolvulus, Oxales; sömu-
leiðis Liljur og Georginer. Allar þessar plöntur komust
vel á veg, en vegna sólarleysis var þroskinn hægur hjá
þeim flestum. Tomat var líka reynt með, bæði í sólhúsi
og úti. Pað, sem úti stóð, varð að engu, en í sólhúsinu
komu aldin á stærð við jarðarber.