Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1917, Blaðsíða 51
Skýrsla
yfir gróðrartilraunir i gróðrarstöðinni sumarið 1917.
Eftir Guðrúnu P. Björnsdóttir frá Veðramóti.
JVlatjurtarœkt.
Árangur matjurtatilrauna var í sumar með lakara móti.
Ástæðurnar fyrir því voru aðallega þær, að sumarið var
óvanalega stutt og kalt og að ekkert fjekst af því fræi,
sem pantað var. Fræið, sem fjekst og notað var, var
sumt frá Reykjavík og sumt frá Kaupmannahöfn. Flest
alt tekið á handahófi, án þess að taka nokkurt tillit til
gróðrarafbrigða. Sumar tegundir af fræi fengust alls ekki-
9. maí var byrjað að leggja vermireiti og 12. s. m. var
sáð í þá matjurta- og blómafræi. Margt af blómafræinu
og sumt af matjurtafræinu spíraði ekki, var alveg ónýtt,
en það, sem upp kom af matjurtum, stóð í vermireitn-
um hálfan mánuð; var þá plantað í sólreit. í sólreitnum
vóru plönturnar þrjár vikur, þá plantað út í garðinn.
Fyrsta og önnur útplöntun af grænkáli og hvítkáli var
jetin upp af maðki og í þriðja sinn, þegar því var plant-
að, var komið fram í júlí og því ekki að búast við nein-
um þroska eftir þann tíma. Grænkálið náði ekki fullum
þroska, en var þó borðandi. Hvitkáli varð ekkert úr,
enda seinþroskað afbrigði um að gera.
Blómkál var plantað út 25. júní; fjekk kalk saltpjetur
einu sinni fyrripart vaxtartímans. Varð þroskað seint i