Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1917, Blaðsíða 52
58
Ársrit Ræktunarfjelags Norðurlands.
september; allgóð höfuð, en þó ekki jafnfalleg og und-
anfarin sumur.
Rauðkál myndaði engin höfuð, en var þó brúkað til
matar. Höfuðsalat var plantað út 20. júní; varð fullþrosk-
að fyrir miðjan ágúst.
Spinat var plantað út á sama tíma og salat, en þrosk-
aðist nokkru fyr; er mjög auðvelt að rækta og er ágæt
súpujurt.
Persille, plantað út seinast í júní; varð ekki þroskað
fyr en um miðjan september.
Rabarbara var sáð í vermireit; ekkert plantað um, en
plantað út í garðinn úr vermireitinum. Ox allvel.
Gömlum rabarbarrótum var skift í þrjá parta og plant-
að út; plöntunum var gefið áburðarvatn, einusinni í viku
framan af vaxtartímanum; óx mikið vel og þó blómstr-
uðu margar plönturnar og kipti það talsvert úr vexti;
tel jeg líklegt, að blómin hafi komið fram vegna þess,
að kuldi og frost komu eftir að plönturnar vóru byrjað-
ar að vaxa. Vöxturinn stansaði þá alveg um tfma og
undir þeim kringumstæðum er hætt við að rabarbari
hlaupi í njóla.
Blaðsalati var sáð úti seint í júní; varð fullþroskað
seinast í ágúst. Blaðsalat er ágæt planta, engu bragð-
verri en höfuðsalat, en mikið auðveldari að rækta.
Gulrót (Nantes halvlang) var sáð í fyrrahaust 21. okt.
F*ær vóru grisjaðar tvisvar og hreykt tvisvar, gefið einu-
sinni kalksaltpjetur. þroskuðust ágætlega. Undanfarin tvö
sumur var þeim sáð að vorinu og var þá stórum minni
þroski. Þeim var líka sáð í vor 24. maí, fengu sömu með-
ferð sem þær, er sáð var að haustinu, en uxu mjög litið.
Persille- og Pastinakrófum var sáð eins og gulrótum
21. október 1916, en vóru ekki þroskaðar og eiga að
standa ti næsta árs.
Rauðrófum var sáð 24. maj; urðu smáar en þó not-
andi.
Mainœpum sáð á sama tíma og rauðrófum; uxu afar-