Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1917, Blaðsíða 29
Ársrit Ræktunarfjelags Norðurlands.
33
menn í kynbótum búpenings í sína þjónustu sem
fyrst, er leiðbeini og annist þá starfsemi um land
alt, og hafi ekki önnur störf með höndum, held-
ur en að Ræktunarfjelagið fari að kosta sjerstakar
tilraunir.
b. Rannsókn á sjúkdómum búfjár, einkum lambadauða
við sjávarsíðuna.
Nefndin sjer sjer eigi fært að Ræktunarfjelagið
leggi út í slíka rannsókn, þar sem hvorki eru menn
eða peningar fyrir hendi, en felur stjórninni að
beina þeirri málaleitun til Búnaðarþingsins, að það
gangist fyrir því að stjórn landsins sendi dýra-
læknir til rannsóknar og leiðbeiningar í þessu efni.
c. Námsskeið i alidýrasjúkdómum.
Nefndin telur að slík námsskeið komi ekki að
tilætluðum notum og ræður því eindregið frá því
að Ræktunarfjelagið komi á fót slíkum námsskeið-
um. — Hinsvegar telur nefndin mjög æskilegt,
enda bráðnauðsynlegt, að fjölga starfhæfum dýra-
læknum í sveitum landsins.
d. Umferðaplœgingar.
• Nefndin ræður eindregið frá að Ræktunarfjelag-
ið fitji upp á umferðaplægingum í annað sinn að
svo komnu, en feli sýslubúfræðingunum að hvetja
bændur til fjelagsvinnu innan búnaðarfjelaganna,
og kaupi svo fljótt sem unt er plóga og herfi, þar
sem slík verkfæri eru ekki til nú þegar. En bend-
ir hinsvegar á að æskilegt væri að stjórn Ræktun-
arfjelagsins tæki málið til undirbúnings fyrir fram-
tíðina.
Við staflið a. var gerð svo hljóðandi breytingar-
tillaga:
3