Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1917, Blaðsíða 12
14 Ársrit Ræktunarfjelags Norðurlands.
b. sFundurinn telur nauðsynlegt, að frestað verði skil-
yrðum fyrir styrkveitingu til búnaðarfjelaga fyrst um sinn
hvað haughús og safnþrær snertir, með tilliti til þess, að
hin fyrirsjáanlega efnisvöntun gerir byggingu þeirra því
nær ókleifa nú sem stendur.«
3. Búfjártryggingar.
^Par sem verðmæti búpenings hefir stigið mjög á síð-
ustu tímum og búast má við, að búfjárkvillar fremur
aukist en minki með aukinni ræktun, lítur fundurinn svo
á, að tími sje til kominn, að gera undirbúningsráðstafanir
til þess að komið verði upp tryggingarfjelögum hjer á
landi og skorar fundurinn á stjórn Ræktunarfjelags Norð-
urlands að taka það mál til alvarlegrar athugunar og
undirbúnings eftir föngum, til frekari framkvæmda.«
4. Lánsstofnun fyrir landbúnaðinn.
»Fundurinn lítur svo á, að skjótar og varanlegar fram-
farir í íslenskum landbúnaði sjeu að miklu leyti bundnar
hentugum lánskjörum.
Telur fundurinn því brýna nauðsyn bera til þess, að
komið verði á fót lánsstofnun, er sjerstaklega annist út-
lán með hagfeldum kjörum til verklegra framkvæmda í
búnaði.
Skorar fundurinn á búnaðarþingið og stjórnarvöldin að
hrynda þessu máli til framkvæmda.«
5. Yjirstjörn búnaðarmála.
»Fundurinn álítur heppilegt, að allir búnaðarþingsfull-
trúarnir sjeu kosnir af búnaðarsamböndunum og að sá
einn verði valinn til forsera búnaðarfjelagsins—er til for-
setaskifta kemur, — sem hefir víðtæka þekkingu í búnað-
armálum, bæði utan lands og innan.«
14. Stjórnarkosning.
í stjórn Ræktunarfjelags Norðurlands var Stefán Ste-