Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1917, Blaðsíða 8
10 Ársrit Ræktunarfjelags Norðurlands.
sem ferðastyrkur frá fjelaginu. Var það samþykt í einu
hljóði.
10. Pá kom fram álit nefndar þeirrar, sem falið var að
semja tillögur um framtíðarhorfur fjelagsins og fjárhags-
áætlun þess.
Tillögur þær, er samþyktar vóru, hljóðuðu svo:
1. a. Að gengið sje að kaupum á »Galtalæk« með þeim
kjörum, sem stjórn fjelagsins stendur til boða.
b. Stjórninni heimilist að fjölga mjólkandi kúm fjelags-
ins, svo þær verði 8, og auk þess sje haidið þarfanaut.
Kosta skal kapps um að velja gripina af sem bestu kyni
og vanda til allrar meðt'erðar þeirra sem mest.
c. Til þess að standast kostnað þann, er hjer af leiðir,
heimilast stjórninni nægileg lántaka.
2. Að gengið sje að engja leigusamningi Sigurðar Sig-
urðssonar, eins og hann liggur fyrir.
3. Að gerður sje leigusamningur um Staðareyjuna við
Eggert Laxdal með hliðsjón af því, sem nú skal greina:
fl. Fjelagið fái eyjuna leigða meðan Laxdal hefir umráða-
rjett hennar.
b. Hin árlega leiga sje helmingur heyfengsins, en sem
þó aldrei fari fram úr 150 hestum á 100 kg., með tilliti
til þess að fjelagið geri á sinn kostnað nauðsynlegar
endurbætur til að auka heymagnið.
c. Fjelagið hafi forkaupsrjett á Laxdals hluta af hey-
fengnum fyrir kr. 8.00 hvern heyhest á 100 kg.
d. Fjelagið annist vörslu á eyjunni og annist Laxdal
helming þess kostnaðar.
e. Laxdal leggi til vír á sinn hluta heysins og láni
bindingsvjelina án endurgjalds.
/. Að öðru leyti vísað til samningsuppkasta þeirra, sem
fyrir liggja.
g. Komist samningar á í samræmi við ofanritað, leggj-
um vjer til að stjórninni sje heimilað að kaupa ferju til
milliferða í eyjuna.