Tíminn - 15.04.1973, Side 1
WOTEL miHÐIfí
„Hótel Loftlelðir býður gestum
stnum að velja á milli 217 berbergja
með 434 rúmun — en gestum
standa llka tbúðir tll boða.
Allur búnaður mlðast við strangar
kröfur vandlátra.
LOFTLEIÐAGESTUM LIOUR VEL.
itffgjlllp
Hestfjarð-
arbrú úr
sögunni
TUTTUTU og fimm milljónir
króna eru veittar til I)júp-
vegarins svonefnda á þcssu ári,
sagöi Kögnvaldur Jónsson, verk-
fræöingur hjá Vegagerö rfkisins,
viö Timann i gær, og óg geri ráö
fyrir, að unniö veröi aö veginum
eins og sú fjárveiting hrekkur til.
Ilann kvað úr sögunni aö gera veg
og brú yfir Hestfjörö eins og til
athugunar heföi veriö á timabili,
þar sem mjög djúpur áll væri I
firöinum og slik framkvæmd
liefði orðið harla dýr.
Vegur er enn ógerður i Skötu-
firði og Hestfirði. Þó er hann að
miklu leyti kominn inn i botn
Skötufjarðar og búið að grófryðja
upp vegarstæði vestan hans áö
Hesteyri. Vestan frá er vegurinn
nánast fullgerður að Eyri i
Seyðisfirði og dálitið byrjað á
kaflanum á milli Eyrar og
Uppsala.
Enn á talsvert langt i land, að
þessum vegi ljúki, og verður i
suraar einkum að fullgera þann
hluta, sem þegar hefur verið
byrjað á. Er vegagerð þarna viða
erfið og kostnaðarsöm, ekki sizt i
Hestfirði.
Þessi miklu gripahús munu ekki hýsa mjólkurkýr fleiri vetur. — Timamynd: GE.
MESTA KÚABÚ VESTAN HEIÐA
LAGT NIÐUR Á ÞESSU ÁRI
Sigsteinn og Helga á Blikastöðum í þann
veginn að hætta gripabúskap
i SUMAR munu vegfarendur i
siðasta sinn sjá hjarðir kúa á beit
á túninu á Blikastööum i Mos-
fellssveit, þar scm veriö hefur
stærst bú á öllu svæöinu vestan
heiða og sunnan Hvalfjarðar, og
raunar þótt lengra væri seilzt.
Þar hafa þau Sigsteinn Pálsson
og Helga Magnúsdóttir búiö viö
rausn i meira en þrjá áratugi, svo
scm þjóðkunnugt er. Nú er kúa-
búskap þeirra i þann veginn aö
ljúka.
Lagarfoss farinn en
skipshöfnin í gæzlu
Loðnan komin
aftur að Skaft-
árósum
Klp-Reykjavik. Um hádegi á
laugardag höfðu 4 skip tilkynnt
loðnulöndunarnef um afla, sam-
tals 1000 lestir.
Voru það Rauðsey 300 lestir,
lsleifur 260, Fifill 250, og Skirnir
230 lestir. öll höfðu skipin fengið
þennan afla við Skaftárósa, en i
gær var allur flotinn þar, og var
vitað um nokkur önnur skip, sem
höfðu fengið afla, en þarna virtist
vera mikið um loðnu.
ATTA skipverjar á Lagarfossi
voru i gær Urskurðaðir i allt að 30
daga gæzluvarðhald vegna
smygls. Nokkrir þessara manna
hafa játað að eiga hlutdeild i
smygltilrauninni, en tollverðir
hafa fundið rúmlega þrjú þúsund
flöskur af vodka og spiritus i skip-
inu, en nokkuð vantar enn á að
játning liggi fyrir um eignarhlut
að einhverju af varningnum.
Lagarfoss sigldi i gærmorgun,
laugardagsmorgun, til Akraness
og var þá ný áhöfn komin á
skipið, en ekki fullskipuð. Skip-
stjórinn er sá eini af áhöfninni,
sem enn siglir með, hinireru allir
grunaðir um að vera viðriðnir
smygliö. Oö.
Blikastaðir eru erfðajörð
Helgu. Faðir hennar, Magnús
Þorláksson, fluttist þangað árið
1908. Þá voru Blikastaöir i tölu
kotjarða, og túnið gaf ekki af sér
nema tvö kýrfóður. En Magnus
breytti Blikastöðum i stórbý.li af
mikilli atorku og þeim efnum
einum, sem fengin voru með
búskap.
— Það er alveg rétt, sagði
Helga á Blikastöðum, er við
ræddum við hana, að við munum
hætta kúabúskap nú á þessu ári.
Það er hvort tveggja, að við
hjónin erum farin að reskjast, og
svo orðið miklum vandkvæðum
bundið að fá fólk, að minnsta
kosti góða fjósamenn. Við þurfum
að hafa hér þrjá menn að
vetrinum, og þeir eru ekki gripnir
upp eins og nú er komið.
Við höfum haft hér sextiu
mjólkandi kýr, sagði Helga enn
fremur, auk ungviðis, og við
höfum tún, sem gefa yfrið nóg
hey handa þessum búpeningi,
þótt einnig sé beitt mjög á ræktað
land. En það kemur ekki til
greina að selja jöröina til
búskapar, þvi að land svo nærri
Reykjavik er i rauninni orðið allt
of dýrt til þess að stunda þar
búskap. Auk þess viljum við vera
hér áfram — ég vona, að það komi
ekki til þess, að við förum héöan i
bráð.
Gripina seljum við, ef við fáum
góðan kaupanda, sem við
treystum til þess að fara vel með
þá, en lógum þeim að öðrum
kosti. Okkur er annarra en svo
um kýrnar okkar, að við látum
þær falar hverjum sem er, og vist
sjáum við eftir þeim og mörgu,
sem búskapinn varðar, þó að
þetta verði svona að vera.
Að sjálfsögðu verða túnin
nytjuð framvegis, sagði Helga að
lokum, enda vafalaust nóg af
mönnum, sem vilja verða sér úti
um hey hér um slóðir.
Veiðifélag á Hér-
aðsvatnasvæðinu
MG-Frostastöðum. — Stofn-
fundur veiöifélags um vatnasvæöi
Héraösvatna, var haldinn síðast-
liöinn þriöjudag i féiagsheimilinu
Héöinslundi i Klönduhliö.
A fundinum, sem áttatiu manns
sóttu, voru lagðar fram tillögur
að samþykkt fyrir veiðifélagið og
kosinn var hluti af stjórn þess.
Voru tillögurnar samþykktar án
verulegra breytinga.
Vatnasvæði Héraðsvatna er
viðáttumikið og marggreint.
Hlýtur þvi eðlilegt að teljast að
félagið starfi i deildum, átta
talsins og eru þær þessar:
Sæmundarárdeild, Húseyj
arkvisladeild, Svartárdeild ofan
Reykjafoss, Jökúlsárdeild eystri,
Jökúlsárdeild vestri, Hofsárdeild,
Norðúrárdeild og Héraösvatna-
deild.
A fundinum voru kosnir þrir
menn i aðalstjórn og þrir til vara,
einnig tveir endurskoðendur.
Aðalmenn eru Vésteinn Vésteins-
son, Hofstaðaseli, Jóhann L.
Jóhannsson, Silfrastöðum og
Valgeir Guðjónsson, Daufá.
Varamenn eru Gisli Gislason,
Miðgrund, Sigurður Sigurðsson,
Brúnastöðum og Einar Kristins-
son, Hamri. Endurskoðendur
voru kosnir séra Agúst
Sigurðsson, Mælifelli og
Guðmundur F. Friðfinnsson,
Egilsá.
Hver deild kýs svo einn mann i
aðalstjórn, þannig aö alls verða
11. A næstunni verður undinn
bugur að stofnun deilda og samn-
ingu arðskrár.
Þór Guðjónsson, veiðimála-
stjóri, mætti á fundinum og
svaraði skilmerkilega fyrir-
spurnum.
Kunnugt er, að veiði hefur mjög
þorrið i Héraðsvötnum hin siöari
ár. Er þess að vænta að meö
stofnun félagsins verði þeirri
þróun snúið við, þótt vart sé viö
þvi að búast að sú breyting gerist
með neinum byltingarhraða.