Tíminn - 15.04.1973, Blaðsíða 20
20
TÍMINN
Sunnudagur 15. april 1973
Mynd tekin af miAju þali fléttu, scm nefnist landkortaskóf.
Kngjaskóf, ein af algengari fléttuin liér ó iandi.
Geitaskóf, engjaskóf, fjallagrös,
hreindýramosi og mariugras, allt eru
þetta íslenzkar flettur,
en tegundirnar skipta hundruðum ó landinu
Rætt við
Hörð Kristinsson grasafræðing,
sem rannsakað
hefur íslenzkar fléttur
Til er sá gróður, sem getur lifað og starfað við
ótrúlega lágt hitastig jafnvel i frosti þegar
annar gróður er i dvala. Þetta eru flétturnar,
sem oft má sjú vaxa á ótrúlegustu stöðum, svo
sem utan á steinum, þar sem þær hafa ekki aðra
næringu en leysingarvatnið, sem rennur
niður eftir steinunum og koltvisýring andrúms-
loftsins, en með þess hjálp vinna þær og
byggja upp lifræn efni.
Frá Þjórsárverum
Hvað eru fléttur og hvernig er
starfsemi þeirra? Hver er út-
breiðsla þeirra á Islandi? Við
fengum Hörð Kristinsson grasa-
fræðing, sem býr og starfar á
Akureyri til að segja okkur litil-
lega frá fléttum og þá um leið
starfi sinu. Hann hefur undan-
farnar vikur kennt við náttúru-
fræðideild Háskólans og hélt
einnig fyrir skömmu fyrirlestur
hér i borg á vegum Náttúrufræði-
félagsins um fléttur. Hörður
starfar annars við Náttúrugripa-
safnið á Akureyri, en hefur einnig
stundað kennslu nyrðra og vinnur
fyrir Lystigarðinn á Akureyri.
— Tildrög þess, að ég fór að
starfa að rannsóknum á isienzk-
um fléttum voru þau, að hingað
kom á Surtseyjarráðstefnu pró-
fessor frá Dukeháskólanum i
Norður-Karólinu i Bandarikjun-
um, sagði Hörður. — Hann og vis-
indamenn hér höfðu áhuga á að
fylgzt væri með landnámi flétta
og sveppa i Surtsey. Prófessor
þessi, Culberson að nafni, taldi
sig ekki hafa tök á að vinna við
þessar rannsóknir sjálfur, en
vildi gjarnan styðja þær. Ég var
þá við nám i Þýzkalandi, og
komst Culberson á snoðir um, að
ég hefði áhuga á fléttum.
Ég hafði byrjað að safna flétt-
um þegar ég var hér i leyfum á
námsárunum 1961, svo og vetur-
inn ’62-’63 þegar ég dvaldist hér
og gerði hlé á náminu.
Annars voru asksveppir, sem
valda sjúkrómum á jurtum, sér-
verkefni mitt til prófs, en ég lærði
grasafræði, með dýrafræði og
plöntusjúkdómafræði sem auka-
greinum.
V