Tíminn - 15.04.1973, Side 21
Sunnudagur 15. april 1973.
TÍMINN
21
Nú, þegar Culberson hafði sam-
band við mig, var ég ekki búinn
að ljúka námi. En það var
ákveðið, að ég gæfi mig að rann-
sóknum á fléttuflóru Islands að
námi loknu, svo og á landnámi
flétta og sveppa i Surtsey.
Culberson sótti um styrk til
þessa verkefnis til National Sci-
ence Foundation, bandariska vis-
indasjóðsins, sem siðan kostaði
þessar rannsóknir að öllu leyti
þau rúm þjú ár, sem ég var fyrir
vestan.
A þeim tima ferðaðist ég sum-
urin 67 og 68 hér um allt land til
að safna sýnishornum, sem ég
flutti til Bandarikjanna og vann
úr þar, flokkaði og greindi.
Tilgangurinn með þessum
rannsóknum var fyrst og fremst
að finna út hvaða tegundir vaxa á
Islandi. 1 öðru lagi að kanna út-
breiðslu þeirra og i þriðja lagi að
efnagreina fléttusýrur einstakra
tegunda, en sú aðferð hefur
reynzt mikil stoð við að nafn-
greina fléttur.
— Eru margar tegundir af flétt-
um hér á landi?
— Ég tók fyrst fyrir blað- og
runnfléttur. Þær telst mér séu um
180. Hrúðurfléttum var lika
safnað, en sá efniviður er að
mestu óunninn. Erfitt er að gizka
á samanlagðan fjölda allra teg-
unda þessara þriggja flokka, en
segja mætti mér að um 400
tegundir fléttna yxu hér.
Flestar tegundirnar eru
algengar um allt land. Þó nokkr-
ar eru sárasjaldgæfar og ekki vit-
að hver orsök þess er. Aðrar
fléttur eru bundnar við ákveðna
landshluta og virðist loftslagið
þar ráðandi afl. Sérstaklega
hefur landrænt og hafrænt lofts-
lag mikil áhrif á útbreiðslu fléttna
A Norður og Norðausturlandi er
loftslag landrænast.
— Er það þá e.k. meginlands-
loftslag?
— Það er i áttina við það. Þar
eru meiri hitastigs sveiflur, hærri
hámarkshiti, lægri lágmarkshiti
og þurrara loftslag.
Fléttur eru háðari rakastigi og
þokum en aðrar plöntur t.d. há-
plöntur.
— Vaxa þær þá betur við
strendurnar en fyrir norðan og
norðaustan?
— Já, yfirleitt og þar eru fleiri
tegundir.
— Hvað er um landnám fléttna i
Surtsey að segja?
— Lengi vel fundust þar ekki
fléttur og virtist taka alllangan
tima fyrir þær að ná þar fótfestu.
Ég kom til Surtseyjar sumrin
1965, 1967, 1968 og 1970 og siðan
hef ég komið þar á hverju sumri.
Ég sá þar ekki fléttur fyrr en 1970
og nú eru þær alls staðar að koma
i ljós i hrauninu.
— Heldurðu að þær hafi kannski
verið komnar 1969?
— Það er mjög liklegt að fyrsti
landneminn hafi þá þegar verið
búinn að ná nokkurri útbreiðslu
við annan giginn. En hins vegar
er erfitt fyrir óvana að sjá fyrstu
stig fléttnanna.
Þær byrja að vaxa i smáloftból-
um, i yfirborði hraunsins sem
safna til sin gróum og sóriðum úr
loftinu.
Eftir rigningu helzt raki lengur
i þessum loftaugum en annars
staðar og þar byrja flétturnar
sem sagt að vaxa.
— Hvað er eiginlega flétta?
— Hún er sveppur, venjulega
asksveppur, sem hefur tekið þör-
unga i þjónustu sina, lokar þá inni
i þalinu, likama sinum, og notar
þá til að framleiða fyrir sig lifræn
næringarefni. Með þessu skipa
flétturnar sér i gróðurfélag með
frumbjarga plöntum eins og
mosum, en yfirleitt lifa sveppir
annars rotlifi eða snikjulifi.
Gró asksveppa geta ekki mynd-
að fléttu nema þörungar komi til
lika. Það geta hins vegar só-
riðurnar, sem ég minntist á áðan,
en þær eru smáhnyklar af svepp-
þráðum og þörungum.
— Eru fléttur mikilvægar
plöntur?
— Yfirleitt hafa þær ekki verið
taldar það, en þó kunna þær að
vera mikilvægari heldur en
margan grunar. T.d. hafa menn
komizt að þvi að blágrænir
þörungar vinna köfnunarefni úr
andrúmsloftinu og margar fléttur
hafa i sér blágræna þörunga,
annað hvort eingöngu eða með
grænþörungum. Eimitt nú á
siðari árum hafa menn staðfest
það, að blágrænir þörungar i
fléttum gera þettalika. Það gæti
fyrst og fremst haft þá þýðingu að
auka köfnunarefnið i jarðvegin-
um. En einmitt á norðlægum
slóðum, þar sem mikið er af
fléttum, er yfirleitt skortur á
köfnunarefni i jarðveginum. Ég
veit ekki hvort kannað hefur veriö
hversu 'stór þáttur fléttanna er i
köfnunarefnisvinnslu á þessum
svæðum.
Þá hefur oft verið reynt að nota
fléttur til iðnaðar, t.d. sem hrá-
efni i snyrtivörur og til áfengis-
framleiöslu. En þessar tilraunir
hafa yfirleitt strandað á þvi að
vöxtur fléttnanna er svo hægur og
þvi fæst ekki nægilegt magn af
þeim.
— Hvernig vex fléttan og
starfar?
— Ég minntist áður á að loft-
rakinn væri fléttunni mjög mikil-
vægur. Hún tekur vatnið nefni-
lega að miklu leyti úr andrúms-
loftinu en ekki eingöngu úr jarð-
veginum, þótt hún hafi að visu
þræði, sem festa hana i undir-
lagið. Fléttan er ekki starfhæf
nema þegar þalið er blautt, þ.e. i,
eða eftir rigningu, eða þegar loft-
raki er hár (60-100%).
A heiðrikum góðviðrisdegi að
haustlagi notar hún ekki nema
morgunstundirnar, eftir að bjart
er orðið er loftraki enn hár, en
þegar sólin hækkar á lofti stöðv-
ast ljóstillifun hennar, vegna þess
að hún þornar.
— En hún deyr þó ekki?
— Nei þegar fléttan er þurr,
andar hún áfram, en afar litið, og
þvi getur hún lifað lengi i þessu
ástandi án verulegs efnataps.
Hún getur hafið ljóstillifun strax
og skilyrði batna.
Það er athyglisvert að flétt-
urnar geta starfað að ljóstillifun
við ótrúlega lágt hitastig jafnvel
fyrir neðan frostmark þegar
flestar jurtir eru i dvala. Þær sem
vaxa á steinum geta notað
leysingarvatnið, sem seitlar
niður eftir steinunum við sólbráð.
Það er annars neyðarlegt, að
maðurinn berst við næringar-
skort, sem byggist fyrst og fremst
á skorti eggjahvituefna.
Köfnunarefni er nauðsynlegt til
að mynda eggjahvitu, og þótt við
höfum það alls staðar i kringum
okkur i andrúmsloftinu getum við
ekki notað það. Það eru aðeins
gerlar og blágrænir þörungar,
sem geta breytt köfnunarefni
andrúmsloftsins i áburðrefni.
Köfnunarefnisbindandi gerlar á
rótum jurta af ertublómaætt eru
mjög takmarkaðir á heimskauta-
svæðunum það er þvi ekki óliklegt
að köfnunarefnisvinnsla fléttanna
hafi talsvert að segja þar.Annars
er ósköp litið vitað um köfnunar-
efnisbúskap á heimskauta-
svæðunum yfirleitt og við vitum
ekki hvað flétturnar eiga stóran
þátt i horium.
— Vinnur þú enn að rann-
sóknum á fléttum?
— Ég hef þrisvar sinnum fengið
styrk úr Visindasjóði til þessara
rannsókna og hann hef ég notað
Skóf eða flétta á steini.
til að koma upp aðstöðu og tækja-
búnaði norður á Akureyri til að
halda áfram á sömu braut og von-
ast ég til að ljúka fljótlega við
blað- og runnflétturnar.
Hrúðurflétturnar gætu hins
vegar orðið æviverkefni. Þær eru
miklu erfiðari viðfangs.
— Þú hefur einnig unnið að
rannsóknum i Þjórsárverum?
— Já.undanfarin þrjúsumur að
nokkru. Við höfum verið þar 3
grasafræðingar saman og rann-
sakað gróðurfélög og flóru ver-
anna. Við höfum athugað hvaða
tugundir vaxa þar, af háplöntum
mosum og fléttum, einnig kannað
útbreiðslu einstakra tegunda,
gert mælingar á gróðurfélögum
og kannað útbreiðslu þeirra.
— Hvað er sérstætt við gróður i
Þjórsárverum?
— Þar eru viðáttumikil vot-
lendissvæöi, sem annars er litið
um á hálendinu. Þar vex mikið af
stör, t.d. gulstör, tjarnastör,
mýrastör og hengistör. Athyglis-
vert er að gæsin gengur svo nærri
þessum gróðri, að fyrsta sumarið
áttum við erfitt meö að greina
starirnar.. Gæsin var búin að
snöggbita þær, svo að varla
fannst nokkurt ax, sem hægt var
að greina eftir. Gæsin umbreytir
gróðurlendinu þarna með beit
sinni, störin verður gisnari en
hlutfall votlendismosa vex.
Með rannsóknum á dýralifi og
gróðri i Þjórsárverum er aflað
mikilvægrar grundvallarþekk-
ingar á lifriki þessa svæðis, sem
mikils er vert að hafa hvort sem
verin fara undir vatn eða ekki,
sagði Hörður Kristinsson að lok-
um. llörður Kristinsson grasafræðingur (Tímamynd Ge)
Tjarnastararflóar (Tjarnastararflá) með rústum í Þjórsárverum.