Tíminn - 15.04.1973, Side 33
Sunnudagur 15. april 1973
TÍMINN
33
BÍLINN SEM
ER BÆÐI
JEPPI OG
FÓLKSBÍLL
UNDANFARNA DAGA
hafa margir vegfarendur
snúið sér við á götu, þegar
framhjá þeim hefur ekið
bill, sem er svo sérkenni-
legur og glæsilegur í alla
staði, að menn komast ekki
hjá því að veita honum
athygli.
Við vorum búnir að sjá þennan
bil nokkrum sinnum, og höfðum
komizt að þvi að hann hét Chevro-
let Blazer, þegar okkur gafst
tækifæri til að skoða hann
almennilega. Það var á bilastæð-
inu fyrir framan Sambandið i
Armúla, en þá gekk þar hópur
manna hringinn i kringum hann
likt eins og hann væri jólatré.
Voru allir sammála um, að þetta
væri stórglæsilegur bill, sem vert
væri að eiga, þó það væri ekki
nema til þess að láta nágrannann
öfunda sig af honum.
Þarna á staðnum náðum við
tali af eiganda bilsins. Kom fljótt
i ljós, að hann hét Grétar Hans-
son, og ætti heima á Blikastöðum.
Einnig kom fljótt i ljós, að hann
var sölumaður hjá véladeild StS,
og að hann hafði einmitt með sölu
á þessari bilategund að gera.
Við báðum Grétar um að lýsa
þessum bil fyrir okkur i fáum
orðum. Ekki sagðist hann vilja
leggja út i að gera það i fáum
orðum, þvi þetta væri svo mikill
bill, en við sögðumst þá taka við
öllu sem hann hefði að segja. Aö
sjálfsögðu notum við svo ekki
nema litinn hluta, annars yrði
þetta ný framhaldssaga i blaðinu.
Það fyrsta sem Grétar sagði,
var að Blazerinn, væri bill sem
sameinaði bæði fólksbil og jeppa i
eitt. Hann væri sérlega rúmgóður
og hann átti ekki nokkur orð til að
lýsa honum sem ferðabil. Þá tók
hann til við að sýna okkur sinn bil,
sem hann sagði að væri með öllu,
sem hægt væri að fá i þessa teg-
und af bilum.
1 fyrsta lagi væri hann með 8
cyl. vél, sjálfskiptur með vökva-
stýri. Þá væri i honum tvöfalt
bremsukerfi með aflhemlum,
mismunardrifslæsingu i milli-
girskassa, sem verkar þannig, að
hann flytti sjálfkrafa aflið af
afturhjólunum á framhjólin ef
fastara er undir þar. Þá væri
hann með litað gler i öllum
gluggum, öllum krómlistum sem
hægt væri að fá og viðarlikings-
klæðningu á hliðunum. Vorum við
sammála honum i þvi, að það
setti sérstakan svip á bilinn. Nú,
billinn væri 3ja dyra, þ.e.a.s. með
tvær hurðir á hliðunum og eina að
aftan. Allur klæddur að innan og
með teppum og öðru finerii.
Grétar Hanssson við „Blazerinn” sinn, sem hann segir að uppfylli allar kröfur um feröabil. (Timamynd
G.E.)
Þegar Grétar var búinn að telja
allt upp fyrir okkur sem hann
vissi um þessa bilategund, — og
það var ekkert litið — lögðum við
i að spyrja hann hvort einhver
reynsla væri fengin á þessa bila
hér á landi. Hann sagði það vera,
en þessi tegund hefði verið flutt
fyrst inn áriö 1970. Sagðist hann
sjálfur hafa góða reynslu af þess-
ari tegund, þvi hann hefði átt einn
á undan þessum, sem hér væri, og
hefði hann keypt hann löngu áður
en hann hefði byrjað að
vinna hér hjá Véladeildinni. Þá
sagði hann að góð reynsla hefði
fengizt á þeim hjá lögreglu og
sjúkraliðum viðsvegarum landið.
Það væru flestir bilar, sem
notaðir væru af þeim með Blazer
undirvagn.
Þá lögðum við i næstu
spurningu, sem var um hvað
svona tæki kostaði mikið af pen-
ingum. Grétar sagði að verðið
væri þetta frá um 750 þúsund. Það
færi allt eftir þvi hvað menn
vildu, þvi úr nokkru væri að velja
og svo væri hægt að fá mikið af
allskonar aukahlutum.
Nú var ekki hægt að spjalla
meira við hann, þvi einhver
náungi var mættur við hliðina á
okkur, sem ekki var bara kominn
til að spyrja — heldur til að
kaupa. Þar með létum við okkur
hverfa en fórum samt einn hring i
kringum bilinn með hópnum, sem
alltaf stækkaði þarna á bilastæð-
inu hjá Sambandinu i
Armúla. —klp—
Chevrolet Blazerr
vetur sumarVOR
^ | og haust
ttf,
** ynntsx'
im'
SSSss
'
mm
Á öllum árstímum býður Flugfélagið yður
tíðustu, fljótustu og þségilegustu ferðirnar
og hagstæðustu kjörin með þotuflugi til
Evrópulanda.
Nú er tími vorfargjaldanna. Venjuleg far-
gjöld lækka um þriðjung til helztu stór-
borga Evrópu.
Það borgar sig að fljúga með Flugfélaginu.
Hvergi ó.dýrari fargjöld.