Tíminn - 15.04.1973, Qupperneq 40
r
Sunnudagur 15. april 1975.
-
I I I I
MERKIÐ, SEM GLEÐUR
HHtumst i haupfélaginu
Gistið á góóum kjörum
#HDTEi.#
m\
i—ii.—■HllU nl
SGOÐI
L J f!/rir tjúútui mttl
$ KJÖTIDNADARSTÖD SAMBANDSINS
Eggjandi að búa í grend við Hallbjarnarstaðakamb:
BÓNDI Á TJÖRNESI RANNSAKAR
INNYFLI ÝSU ÚR SKJÁLFANDA
og hefur unnið 3-4 nýjar skeldýrategundir á
FYRIR nokkrum misserum
byrjaöi roskinn bóndi á Tjör -
nesiaösafna skeljum af miklu
kappi. Siöan hefur hann
margri stundinni variö til þess
aö kanna ýsumaga, og
árangurinn hefur ekki látiö á
sér standa. Hann hefur fundiö
þrjár kuöungtegundir, sem
ekki var vitaö um áöur hér-
lendis, og sennilega einnig
eina hörpudiskstegund, auk
þesssem hann hefur fundiö a 11-
margt skelja, sem ekki hafa
áöur komiö úr sjó viö Tjörnes.
Þessi bóndi er Jóhannes
Björnsson i Ytri-Tungu.
Hallbjarnarstaðakambur,
þar sem margt merkilegt hef-
ur varðveitzt i leir-
lögum,meðal annars æva-
fornar skeljar, er skammt frá
heimili hans, og vafalaust
orkar slikur staður eggjandi á
þá, sem hneigjast til náttúru-
skoðunar. Annars fer þeim nú
fjölgandi, sem leggja stund á
skeljasöfnun, og kemur þar
til, að nú eru til aðgengilegar
bækur um þessi efni þeim til
leiðsagnar, er gefa sig að
sliku.
— Ætli það séu ekki þrjú ár
siöan ég byrjaði á þessu, sagði
fóum drum
Jóhannes, er Timinn hringdi
til hans, og ég held, að ég eigi
nú orðið um eitt hundrað og
sjó'tiu tegundir. Þetta er lang-
mest héðan úr Skjáifanda, en
nokkuðhef ég fengið i skiptum
frá mönnum i öðrum lands-
hlutum. Til dæmis höfum við
Þorsteinn Þ. Viglundsson,
fyrrverandi skólastjóri i Vest-
mannaeyjum, átt dálítið
saman að sælda.
Eins og kunnugt er gleypir
ýsan mikið af skeljum og
kuðungum, og ég verð mér úti
um ýsuslóg til þess að kanna
hjá Fiskiðjusamlagi Húsa-
vikur. Þannig hef ég fengið
þessar nýju tegundir, sem
óþekktar voru áður hér við
land. Þetta eru allt smáar
tegundir, og hörpudiskurinn,
sem visindamenn syðra munu
reyndar ekki enn vera búnir
að kveða upp úr með, til hvaða
afbrigðis skal telja, er til
dæmis örsmár, ekki nema þrir
eða fjórir millimetrar
— Annars fæ ég allt of litið af
ýsuinnyflum, sagði Jóhannes.
Skjáifandaflói var fullur
af ýsu, en dragnótabátarnir
hafa langt til urið upp
stofninn, svo að þetta er
nauðalitið orðið, sem berst á
land. Auk þess fara veiðarfæri
þeirra hroðalega með botninn.
Ég get nefnt þar til dæmis, að
ég samdi við einn þeirra, sem
stundar dragno'taveiði, að
vera mér liðsinnandi við
söfnunina. En þá brá svo við,
að skeljarnar voru svo að
segja allar brotnar — varla
nokkur skel heil. Þetta hlýtur
að starfa af þvi, að keðjur og
þess konar búnaður, sem er
hluti af svona veiðarfærum,
brýtur og mer allt, sem undan
getur látið af þvi, sem þau
fara yfir.
I.oöuan ætlar að verða okkur drjúg aö þessu sinni. Göngurnar hafa enzt lengur en endranær, og þess vegna ekki aö undra, þótt
reykháfi verksmiðjunnar I örfirisey. -Timamynd: Róbert.
íslenzkt
kjöt á
(innsk
páskaborð
Finnar ætla aö sækja
páskalambið tii Islands.
Samband islenzkra sam-
vinnufélaga hefur samiö um
þaö viö samvinnusláturhúsin
finnsku aö senda fiugvél,
fullfermda islenzku dilka-
kjöti, til Helsinki nú fyrir
páskana.
Farmurinn, fimmtán
lestir, fer með flugvél frá
Fragtflugi og verður aðeins
sex klukkustundir á leiðinni.
Þetta er í tilraunaskyni gert,
en verðið, sem fyrir kjötið
fæst, er talið viðunandi.
Aðalfundur
BÍ í dag
Aðalfundur
Blaðamannafélagsins er á
Hótel Esju í dag,
sunnudaginn 15, apríl, og
hefst hann kl. 14.
Sönnunargögnin stundum dregin
upp úr veskjum grunaðra manna?
Sérstök deild innan lögreglunnar hefur tekið 13 leynivinsala d tveim mdnuðum
Klp-Reykjavik. „Þaö er ekki svo
að hér sé um neinar sérstakar
aögerðir aö ræöa, eða neina sér-
staka ferð á hendur leynivin-
söluin." sagði Guðinundur Her-
mannsson yfirlögregluþjónn er
við hringdum inigæi.ervið
höfðum fregnað, að margir leigu-
bílstjórar liafi verið tekuir á
undanförnum dögum með áfengi i
fóruitt sinuin og fvrir sölu áþvi.
,,Þetta er bara það, sem alltaf
er að gerast. Við höfum haft
nokkra óeinkennisklædda menn
úti á kvöldin og um sumar helgar
nú eltir áramótin til að fylgjast
með þessu. A þessum rúmum
þrem mánuðum hafa verið kærðir
14 menn, annað hvort fyrir sölu
eða fyrir að hafa vin i bílunum hjá
sér. Allt eru þetta leigubilstjórar
og voru 11 þeirra teknir i siðasta
mánuði."
Við spurðum Guðmund að þvi,
hvort teknar hafi verið upp ein-
hverjar nýjar aðferðir við að
handsama leynivinsala. Hann
sagði, að lögreglan gæfi ekki upp
aðferðir sinar en hanngæti þó
sagt okkur, að hún stundaði ekki
simahleranir til þess, þótt ein-
hverjir héldu þvi fram.
Leigubilstjóri, sem tekinn var
fyrir nokkru, grunaður um að
hafa selt áfengi. sagði við okkur,
að það væri nánast mann-
skemmandi starf að aka leigubil
hér i borginni.
..Maður veit aldrei. hvenær
þessir menn, sem liggja i leyni til
að góma einn og einn sprúttsala,
koma upp að hliðinni á bilnum,
sjálfir akandi á einhverjum bila-
leigubilum, og reka farþegana út
til þess að leita að vini. Þetta kom
fyrir mig hér eitt kvöldið, og var
ég þá að fara með fólk i Þjóðleik-
húsið. Það varð að sjálfsögðu of
seint, en ég gat ekkert gert eða
sagt.
Þetta er allt annað en þægilegt
fyrir okkur bilstjórana, og ekki
bætir það úr skák, að nú eru þeir
farnir að fara með þá, sem þeir
gruna. niður á stöð, þar sem þeir
taka af þeim veskið og blaða i
persónulegum skilrikjum og
nótum, sem þeir finna þar. Þá
taka þeir ávisanir úr veskjunum,
ef þær eru eitthvað yfir 1000
krónur, hringja i útgefanda og
láta hann gera grein fyrir þessari
ávisun.
Ég veit ekki,hvort þetta er lög-
legt, og efast svo sannarlega um
að svo sé. En það er eins og við
getum ekkert gert okkur til
bjargar, ef þeim dettur ihug að
skoða okkur eða bilana okkar
nánar.
Annað, sem þeir eru nýbyrjaðir
á, er að hlusta á samtöl okkar i
talstöðinni. Þaðgera þeir með þvi
að kaupa ákveðna tegund af
japönskum vasaútvarpstækjum,
sem ná talstöðvunum á leigubila-
stöðvunum. Það er vist ekkert
ólöglegt við þetta. En ég get sagt
þér, að það er anzi hvimleitt að
vita af þvi, að i nær hvert skipti,
sem þú talar i talstöðina, skuli
einhver lögregluþjónn hlusta á
þig. Og ef þú færð skilaboð um að
koma á ákveðinn stað, máttu
búast við að hafa þá á eftir þér
eða þá sitjandi fyrir þér i ein-
hverju húsasundi."
Það bendir til þess, að
lögreglan gangi skörulega fram
við að uppræta leynivinsöluna, ef
frásögn bilstjórans er nærri lagi.
Skylt er að geta þess, aðsamtök
leigubílstjóra sjálfra hafa gert
ráðstafanir til þess að hindra
leynivinsölu breyskra stéttar-
bræðra, þar eð þau vilja ekki
liggja undir grun og ásökunum
um linkind við þá. Meðal al-
mennings vekur það mesta
gremju. þegar leynivinsalar gera
sér drykkjusjúklinga og unglinga,
jafnvel börn, áð’ féþúfu.