Morgunblaðið - 29.01.2007, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2007 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Samtök atvinnulífsins og Alcan á Íslandi efna til stefnumóts
fyrirtækja í Hafnarfirði föstudaginn 2. febrúar frá kl. 7:45-10:00.
Þar verður rætt um stækkun álversins í Straumsvík og fyrirhugaða
kosningu Hafnfirðinga um nýtt deiliskipulag við álverið.
Leitað verður svara við áleitnum spurningum.
7:45-8:30 Stefnumót byrjar
- skráning, kaffispjall og morgunverðarhlaðborð
8:30 Formleg dagskrá hefst
Ný tillaga að deiliskipulagi við Straumsvík
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Hvers vegna að stækka álverið í Straumsvík? Hvað felst í stækkun?
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi
Áhrif Alcan á atvinnulíf í Hafnarfirði
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA
Þýðing viðskipta Alcan við fyrirtæki í Hafnarfirði
Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri JRJ.
Fyrirspurnir og umræður
Fundarstjóri: Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
10:00 Stefnumóti lýkur
HAGSÆLD Í
HAFNARFIRÐI
Stefnumót atvinnulífsins
– föstudaginn 2. febrúar í Hafnarborg
Til hvers að stækka álverið og hvað felst í stækkun?
Hvaða áhrif hefur stækkunin á önnur fyrirtæki í Hafnarfirði?
Hvaða áhrif getur kosningin haft á fyrirtæki í Hafnarfirði?
Hvað er í húfi fyrir Hafnarfjörð og Hafnfirðinga?
Fundurinn er opinn fulltrúum fyrirtækja í Hafnarfirði
– nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA - www.sa.is - eða í síma 591 0000.
MERRILL Lynch fjárfestinga-
bankinn sendi á föstudag frá sér
nýja greinargerð um Landsbank-
ann en þar er mælt með því við
fjárfesta að þeir kaupi skuldabréf
bankans. Ánægju er lýst með upp-
gjörið en sem kunnugt er skilaði
bankinn ríflega 40 milljarða króna
hagnaði á síðasta ári.
Halldór J. Kristjánsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að þetta
mat Merrill Lynch hefði ekki komið
sér á óvart. Enda hefði vaxtaálag á
skuldabréfin á erlendum mörkuðum
lækkað strax um nærri þrjá punkta
og væri nú komið undir það sem
það var í byrjun síðasta árs, áður
en fyrstu bankaskýrslurnar fóru að
koma út. Skuldaálag á bréfum
Glitnis og Kaupþings lækkaði einn-
ig.
Í Hálffimmfréttum Kaupþings á
föstudag var því velt upp hvort
Landsbankinn hefði ekki átt að
senda frá sér jákvæða afkomuvið-
vörun vegna miklum mun betri af-
komu en markaðurinn hafði reiknað
með. Þannig var hagnaður fjórða
ársfjórðungs upp á rúma 14 millj-
arða tvöfalt meiri en greiningar-
deildir höfðu yfirleitt reiknað með.
Um þetta sagði Halldór að bank-
anum hefði ekki þótt ástæða til að
gefa út viðvörun, enda hefði bank-
inn ekki gefið út neina afkomuspá í
tölum. Afkoman væri vel innan
þeirra marka sem bankinn hefði
kynnt í sínum horfum.
Njóta lækkandi vaxtakjara
Spurður hvaða áhrif þessi góða
afkoma myndi hafa á viðskiptavini
og hluthafa bankans sagði Halldór
að þau yrðu vafalaust nokkur.
Reikna mætti með hækkun á gengi
hlutabréfanna og þá hefði banka-
stjórnin ákveðið að leggja til við að-
alfund að greiddur yrði út 40% arð-
ur af nafnvirði hlutafjár, þ.e. upp á
4,4 milljarða króna.
„Viðskiptavinir okkar á Íslandi
hafa og munu njóta áfram stærð-
arhagkvæmninnar af vexti Lands-
bankans. Nú erum við í fyrsta sinn
komnir með meira en 50% af
tekjum utan Íslands og viðskipta-
vinir okkar munu auðvitað njóta
þess. Vaxtamunur bankanna hefur
verið að lækka í kjölfar aukinnar
samkeppni og aukins styrks. Í kjöl-
far þess að vaxtakjör bankans fara
lækkandi aftur þá njóta viðskipta-
vinir okkar allstaðar þess,“ sagði
Halldór.
Skuldaálagið
lækkaði strax
við uppgjörið
Kynning Sigurjón Þ. Árnason ávarpar kynningarfund Landsbankans.
Bankastjórn Landsbankans taldi
ekki þörf á afkomuviðvörun
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
VERÐ á húsnæði í Færeyjum hefur
hækkað gríðarlega á síðasta ári.
Nemur hækkunin allt að 67% og er
mest í höfuðstaðnum Þórshöfn.
Meðalverð á einbýlishúsi í Þórs-
höfn var á síðasta fjórðungi síðasta
árs komið í 2,5 milljónir færeyskra
króna, eða 30 milljónir íslenzkra
króna. Á fjórða ársfjórðungi 2005
var verðið að meðaltali 18 milljónir
íslenzkra króna. Það hækkaði á
hverjum ársfjórðungi síðasta ár og
mest á þeim síðasta eða um 4,8 millj-
ónir króna.
Það er Föroya Banki sem hefur
reiknað þetta út og kynnir á heima-
síðu sinni. Þar er þó ekki reynt að
skýra frá mögulegum ástæðum þess-
arar miklu hækkunar.
Verðhækkun á húsnæði í stærri
bæjum utan Þórshafnar, eins og
Klakksvík, Tvöroyri, Vági, Fugla-
firði og Runavík var um 50% á sama
tímabili. Í lok síðasta árs var verðið
að meðaltali 1,2 milljónir færeyskar
eða 14,4 milljónir íslenzkar en í lok
ársins 2005 var verðið 0,8 milljónir
færeyskra eða 9,6 milljónir. Það er
sem sagt tvöfalt dýrara að koma þaki
yfir höfuðið í Þórshöfn en í þessum
fyrrnefndu bæjum.
Ódýrara úti á landi
Ódýrast er að kaupa húsnæði í
smærri byggðum eyjanna eins og í
Sandavági, Leirvík, Hósvík, Skála og
á Sandi. Þar kostaði íbúðarhús að
meðaltali 0,7 milljónir færeyskra
króna eða 8,4 milljónir íslenzkra
króna í lok síðasta árs. Ári áður var
meðalverðið 7,2 milljónir króna og
nemur hækkunin um 17%.
Það borgar sig greinilega að búa
utan höfuðstaðarins og keyra í
vinnunna.
Morgunblaðið/Hjörtur Gíslason
Húsnæði Verð á íbúðarhúsnæði í Færeyjum hækkaði gífurlega á síðasta
ári. Það er þó mun ódýrara að koma þaki yfir höfuðið í strjálbýli.
Mikil hækkun
á verði húsnæðis
í Færeyjum
Meðalverð á einbýlishúsum í Þórshöfn
hækkaði um 67% á síðasta ári