Morgunblaðið - 29.01.2007, Side 16
DÓMSMÁLARÁÐHERRA, Björn Bjarna-
son, opnaði formlega Innheimtumiðstöð
sekta og sakarkostnaðar hjá embætti sýslu-
mannsins á Blönduósi síðast liðinn laugardag
að viðstöddu fjölmenni. Að sögn sýslumanns-
ins á Blönduósi, Bjarna Stefánssonar, var
það á haustmánuðum árið 2005 sem dóms-
málaráðherra ákvað að innheimta sekta og
sakarkostnaðar á landsvísu yrði flutt til
sýslumannsembættisins á Blönduósi. Þessi
verkefni voru áður hjá 26 sýslumanns- og
lögreglustjóraembættum landsins. Bjarni
sagði að mikil undirbúningsvinna hefði fylgt
nýskipan innheimtunar. Var verkinu skipt í
áfanga og hafa þær áætlanir gengið eftir. Í
aprílmánuði í fyrra hófst starfsemin, en þá
var ráðinn deildarstjóri ásamt fjórum starfs-
mönnum, en í dag starfa við innheimtuna alls
11 manns.
Makaskipti voru höfð sl. sumar við bæj-
arstjórn Blönduóssbæjar um efstu hæð
Hnjúkabyggðar 33 á Blönduósi, sem áður
hýsti bæjarskrifstofuna, og húsnæði sýslu-
skrifstofunnar, sem var á miðhæð hússins.
Öll starfsemi innheimtumiðstöðvarinnar og
sýsluskrifstofunnar fer nú fram á efstu hæð
hússins sem löguð hefur verið að þörfum
starfseminnar.
Frábærar viðtökur
Bjarni sagði verkefni þetta hafa fengið frá-
bærar viðtökur hér í Húnaþingi og jafnframt
mikinn stuðning bæjarstjórnar Blönduóss-
bæjar. Til gamans má geta að 33 umsóknir
bárust um ofangreind störf, allt heimamenn
eða brottfluttir Húnvetningar, sem vildu
flytja heim á nýjan leik.
Björn Bjarnason dómsmálaráðaherra
sagði að verkefni þetta hefði verið flutt til
Blönduóss meðal annars vegna þess að emb-
ættið nyti mikils trausts. Að þessu trausti
hefur meðal annars Jón Ísberg, fyrrverandi
sýslumaður, lagt góðan grunn og Bjarni Stef-
ánsson sýslumaður fylgdi þessu máli vel eftir
og sagðist treysta sér til að fá heimamenn til
liðs við sig . Björn sagði að þetta verkefni
hefði ekki tekist nema með náinni samvinnu
sýslumannsembættanna og Fangels-
ismálastofnunar. Björn sagðist svolítið undr-
andi á því, hve lágt það hefði farið, að síðan í
haust hefur verið leitast við að knýja menn til
að standa í skilum með sektargreiðslur með
því að nýta fangaklefa við sex sýslumanns-
embætti um landið og láta menn sitja sektina
af sér þar ef þeir greiða ekki skuldir sínar.
Reynslan af þessu er góð, sagði Björn og
nefndi dæmi um það að ekki hefði liðið nema
klukkutími frá því að menn væru settir á
bakvið lás og slá, þar til þeir hefðu staðið skil
á skuld sinni.
Margir sýslumenn komu til athafnarinnar
á Blönduósi og flutti Stefán Skarphéðinsson,
sýslumaður í Borgarnesi og formaður Sýslu-
mannafélags Íslands, ávarp og fagnaði þessu
skrefi og fleirum, sem stigin hafa verið til að
færa verkefni til sýslumanna og gat þess
meðal annars, að sýslumaðurinn í Vík í Mýr-
dal væri nú ritstjóri Lögbirtingablaðs.
Við lok athafnar í stjórnsýsluhúsinu á
Blönduósi opnaði Björn Bjarnason með að-
stoð Ernu Jónmundsdóttur forstöðumanns
Innheimtumiðstöðvarinnar nýja heimasíðu
miðstöðvarinnar.
Borguðu eftir klukkutíma bak við lás og slá
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Heimasíða Björn Bjarnason dómsmálaráðherra opnaði með aðstoð Ernu Jónmundsdóttur,
forstöðumanns Innheimtumiðstöðvarinnar, nýja heimasíðu innheimtumiðstöðvarinnar.
Innheimtumiðstöð
sekta og sakarkostn-
aðar formlega opnuð
á Blönduósi
Í HNOTSKURN
»Innheimtustöð sekta og sakarkostn-aðar hóf starfsemi á Blönduósi í apr-
ílmánuði í fyrra. Upphaflega störfuðu
þar fimm starfsmenn, en í dag starfa 11
manns við innheimtuna.
» Innheimta sekta og sakarkostnaðarvar áður á verksviði hjá 26 sýslu-
manns- og lögreglustjóraembættum
landsins.
»Fangaklefar við sex sýslumanns-embætti um landið hafa verið nýttir
til að láta menn sitja sektir af sér ef þeir
greiða ekki skuldir sínar.
Athöfn Björn Bjarnason og Bjarni Stef-
ánsson, sýslumaður á Blönduósi.
16 MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VESTURLAND
LANDIÐ
Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur
gve@ismennt.is
Lilja S. Ólafsdóttir er ný-ráðin aðstoðarskóla-meistari MenntaskólaBorgarfjarðar, en um-
sóknarfresturinn rann út um síð-
ustu áramót. Lilja mun hefja störf
1. febrúar á skrifstofu skólans sem
er tímabundið til húsa í Stjórnsýslu-
húsi Borgarbyggðar.
„Já ég byrja á fimmtudaginn en
þarf jafnframt að ljúka nokkrum
verkefnum í gamla starfinu mínu á
Bifröst áður en ég fer á fullt,“ segir
Lilja en hún starfaði áður sem verk-
efnastjóri frumgreinadeildar í Við-
skiptaháskólanum á Bifröst.
„Ég get ekki beðið og hlakka
óskaplega til, þetta er rosalega
spennandi og frábært að fá að taka
þátt í einhverri uppbyggingu frá
grunni. Fyrir mig, sem hef verið í
alls kyns þróunarverkefnum í mín-
um störfum, er þetta tækifæri sem
ekki gefst oft á ævinni.“
Ekki ástæða til þess að
allir séu að finna upp hjólið
Menntaskóli Borgarfjarðar fer af
stað í haust, og hugmyndavinnan
komin á fullt þó að byggingin sjálf
sé ekki enn risin. „Það verður eitt
af mínu fyrstu verkum,“ segir Lilja,
„að fara á framkvæmdafund um
bygginguna, en samið hefur verið
við Loftorku ehf. um að reisa skól-
ann.“ Lilja segir skólann verða til-
raunaskóla og búið sé að skrifa
undir samning við mennta-
málaráðuneytið þess eðlis. Nám til
stúdentsprófs verður þrjú ár og
skólinn hefur frelsi til að prófa
ýmsar leiðir. „Það verður ekki um
að ræða hefðbundið námsmat, ekki
annarpróf og öll kennsla ein-
staklingsmiðuð. Nemendur fá tæki-
færi til að eyða meiri tíma í fög sem
þeir eru ekki sterkir í. Það er auð-
vitað horft til Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga í Grundarfirði, og svo til
Fjölbrautaskólans á Akranesi, enda
ekki ástæða til þess að allir séu að
finna upp hjólið. Skólinn verður
ekki með verknám en hefur al-
menna braut, náttúrufræðibraut,
félagsfræðabraut og svo verður
sérdeild.“
Lilja segist hafa séð auglýst eftir
aðstoðarskólameistara í desember.
„Mér fannst þeir bara vera að aug-
lýsa eftir mér, ég hafði allt sem ósk-
að var eftir. Og ég var ekki í vafa
eina einustu mínútu því grunnurinn
sem ég hef á eftir að nýtast vel. Ég
þekki í báðar áttir; bæði grunn-
skólakerfið, og þaðan koma nem-
endur í menntaskóla, og hitt kerfið
þangað sem þau fara, þ.e. í há-
skóla.“
Lilja starfaði sem grunnskóla-
kennari í Borgarnesi frá 1986 og
fram yfir 2000. „Ég ætlaði bara að
vera hér í tvö ár, er fædd og uppal-
in á Akranesi en á ættir að rekja í
Borgarfjörðinn. Hér er ég enn þó
að starfsvettvangurinn hafi færst
úr grunnskólanum. Mér fannst árið
1999 að ég þyrfti að læra meira og
fór í íslensku í framhaldsdeild KHÍ.
Það voru 15 einingar og ekki kennt
meira í því, en ég hélt áfram námi
og tók diplóma í stjórnun mennta-
stofnana og M. Ed. í uppeldis- og
menntunarfræðum, lauk alls 75 ein-
ingum. Ég starfaði sem aðstoð-
arskólastjóri grunnskólans 2003–04
í afleysingum og braut blað í sögu
skólans því skólastjórarnir höfðu
alltaf verið karlar. Einnig starfaði
ég sem námsráðgjafi í hlutastöðu
við skólann tvo vetur.“
Gömlu nemendurnir
ætla að koma
„Eftir að hafa verið aðstoð-
arskólastjóri réð ég mig á Bifröst
sem kennsluráðgjafi í 25% stöðu,
það fól í sér almenna vinnu á
kennslusviði, að sjá um námskeið
fyrir nýja kennara, innra mat, gera
kennslu- og þjónustukannanir.“
Starfið á Bifröst vatt upp á sig og
árið 2005 var Lilja ráðin í fullt starf
og kenndi til viðbótar íslensku í
frumgreinadeild. „Síðan tók ég við
sem umsjónarmaður frum-
greinadeildar og hafði þá umsýslu
með ýmsum verkefnum, s.s. umsjón
með lokaritgerðum, að hafa sam-
band við prófdómara o.fl. Þetta var
ákaflega skemmtilegt starf, ég
hlakka í sjálfu sér ekki til að hætta,
en nýja starfið er meira spenn-
andi.“
Enn er ekki farið að auglýsa eftir
öðru starfsfólki og ekki vitað hvað
verða margir nemendur. „Nei, það
gætu orðið 30–50 fyrsta árið, ekki
gott að segja, en mér finnst gaman
að segja frá því að ég hef verið að
hitta gamla nemendur úr grunn-
skóla, fullorðna krakka sem ekki
luku framhaldsskólanámi, og þeir
segjast ætla að koma í skólann aft-
ur til mín.“
,,Mér fannst
þeir vera að aug-
lýsa eftir mér“
Nýr skóli Lilja Sesselja Ólafsdóttir, nýráðin, aðstoðarskólameistari
Menntaskóla Borgarfjarðar, en skólinn mun hefja kennslu næsta haust.
Lilja S. Ólafsdóttir er aðstoðarskóla-
meistari Menntaskóla Borgarfjarðar
Í HNOTSKURN
»Jarðvinnu vegna byggingarskólahúss Menntaskóla Borg-
arfjarðar er lokið og bygging-
arframkvæmdir að hefjast.
»Skólinn mun hefja kennslu áframhaldsskólastigi í haust.
Honum er fyrst og fremst ætlað
að þjóna nemendum í Borg-
arfirði en er opinn öllum.