Morgunblaðið - 29.01.2007, Qupperneq 18
Öllu tjaldað til Heimurinn fær óneitanlega á sig annan svip og lit undir svo stórum tjalddúki.
|mánudagur|29. 1. 2007| mbl.is
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Þ
að er mikið líf og fjör í
Kaplakrikanum í Hafn-
arfirði alla laugardags-
morgna því þá skoppa
þar um fjölmargar litl-
ar tásur og eigendur þeirra
skríkja af kæti. Vítt er til veggja
og nóg pláss er til að hlaupa um
og leika sér enda hafa litlu gris-
lingarnir tvo handboltavelli í fullri
stærð til umráða. Nærri lætur að
um eitt hundrað börn á aldrinum
tveggja til sex ára sæki laug-
ardagshreyfinguna hjá Kristni
Guðlaugssyni íþróttafræðingi, sem
hefur varið ófáum laugardags-
morgnum í þetta starf sitt og
áhugamál á umliðnum sextán ár-
um. Starfsemin er rekin undir
heitinu Íþróttaskóli barnanna.
Kristinn byrjaði fyrst með
íþróttanámskeið fyrir yngstu kyn-
slóðina í samstarfi við bróður sinn
Janus Guðlaugsson í Álftanesskóla
árið 1990, eftir að hann lauk námi
frá Íþróttakennaraskólanum á
Laugarvatni, en færði sig svo yfir
í Kaplakrikann árið 1995 enda
segist hann vera uppalinn í FH
þar sem hann stundaði handbolta,
fótbolta og frjálsar íþróttir.
„Ég er fyrir löngu búinn að
missa tölu á því hvað margir laug-
ardagsmorgnar hafa farið í þetta,
en maður er nú orðinn algjörlega
háður þessu og þrífst ekki öðruvísi
en að vera með börnin. Þetta er
rosalega gefandi starf og sér-
staklega gaman að sjá gleðina og
framfarirnar hjá börnunum og
finna þakklæti frá ánægðum for-
eldrum,“ segir Kristinn og bætir
við að nauðsynlegt sé að setja
hreyfinguna í daglega rútínu sem
allra fyrst á lífsleiðinni.
Jákvæð upplifun af íþróttum
„Markmiðið er að fá hreyf-
inguna inn í líf barnanna á já-
kvæðan hátt. Þau þurfa að fá já-
kvæða upplifun af íþróttahúsum
og íþróttaiðkun til að hreyfingin
verði að föstum lið í tilverunni síð-
ar meir. Ég er fyrst og fremst að
kenna börnunum að umgangast
þennan heim án þess að við séum í
neinni keppni,“ segir Kristinn,
sem er með fimm til sex aðra
kennara sér til aðstoðar á nám-
skeiðunum. „Við skiptum salnum
upp í fimm vinnustöðvar og svo
rótera krakkarnir á milli. Þau
stunda hlaup, liðleiki, sveifla sér
og klifra í köðlum og óhætt er að
segja að gleðin skíni úr hverju
andliti,“ segir Kristinn sem stend-
ur vaktina í tvo tíma á hverjum
laugardagsmorgni. Hann segir að
námskeiðin séu opin öllum áhuga-
sömum og dæmi um að krakkar
hafi verið keyrðir alla leið frá Sel-
fossi. Fyrri klukkutíminn er fyrir
tveggja til fjögurra ára börn og sá
síðari fyrir fjögurra til sex ára
hressa krakka. „Þetta er nátt-
úrlega orðinn dágóður fjöldi, en ég
myndi aldrei vísa börnum frá.
Frekar myndi ég bæta við kenn-
urum,“ segir Kristinn að lokum.
„Gefandi að
sjá gleðina“
Á uppleið Klifrað í köðlum með dyggri aðstoð.
Íþróttafræðingurinn Kristinn Guðlaugsson vill venja börn við íþróttir og
hreyfingu strax á unga aldri og leggur sitt af mörkum til að svo megi verða..
Laugardagshreyfing í Kaplakrika
Markmiðið er að fá
hreyfinguna inn í líf
barnanna á jákvæðan
hátt. Þau þurfa að fá
jákvæða upplifun af
íþróttahúsum og
íþróttaiðkun til að
hreyfingin verði að
föstum lið í tilverunni
síðar meir.
TENGLAR
.....................................................
www.simnet.is/isb
Morgunblaðið/Árni Sæberg
daglegtlíf
Hjónaband er skuldbinding og
því er að mörgu að hyggja áður
en gengið er upp að altarinu.
»21
hollráð
Til að allt gangi smurt og
snurðulaust fyrir sig í skíða-
brekkunum er gott að vera vel
græjaður. »20
útivera
Díana Lind Monzon hefur
menntað sig sérstaklega í páfa-
gaukafræðum og leitar nú að
fiðruðum fyrirsætum. »21
gæludýr