Morgunblaðið - 29.01.2007, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
FRJÁLSLYNDI FLOKKURINN
AÐ KLOFNA
Það er augljóst, að Frjálslyndiflokkurinn er að klofna í kjöl-far úrslita varaformannskosn-
ingar sl. laugardag. Að vísu er enn sá
möguleiki fyrir hendi, að Margrét
Sverrisdóttir verði fengin til að leiða
lista flokksins í öðru Reykjavíkur-
kjördæmanna en skilyrt stuðnings-
yfirlýsing Guðjóns Arnar Kristjáns-
sonar við hana í það sæti í gær var
ekki uppörvandi fyrir Margréti eða
stuðningsmenn hennar.
Þegar horft er til atburðarásar síð-
ustu mánaða er ljóst að forystumenn
Frjálslynda flokksins hafa skipulega
unnið að því að flæma Margréti og
stuðningsmenn hennar úr flokknum
og þeim hefur nú tekizt það með til-
styrk fólks, sem komið hefur úr
stjórnmálahreyfingunni Nýju afli.
Þegar hér er komið sögu eru meiri
líkur en minni á því að Margrét yf-
irgefi Frjálslynda flokkinn alveg.
Jafnvel þótt niðurstaðan yrði sú, að
hún tæki að sér að leiða lista flokks-
ins í öðru Reykjavíkurkjördæmanna
er ljóst að ágreiningur á milli fylk-
inga er svo djúpstæður að hann verð-
ur vart leystur úr þessu.
Áhrif þessara breytinga innan
Frjálslynda flokksins verða svo aug-
ljóslega þau, að pólitík flokksins í
málefnum innflytjenda verður stöð-
ugt ógeðfelldari, því að Margrét
Sverrisdóttir hefur verið bremsa á
þá þróun. Það þýðir jafnframt, eins
og vikið var að í forystugrein Morg-
unblaðsins sl. laugardag, að aðrir
flokkar munu ekki hafa nokkurn
áhuga á að starfa með Frjálslynda
flokknum.
Viðbrögðin við niðurstöðu varafor-
mannskosningarinnar sl. laugardag
benda til þess að konum í öllum
flokkum þyki að sér vegið vegna þess
hvers konar vinnubrögðum hefur
verið beitt til þess að bola Margréti
úr Frjálslynda flokknum. Þess vegna
kunna áhrif þessara úrslita að verða
víðtækari en talið hefur verið hingað
til.
Frjálslyndi flokkurinn er kominn í
annan farveg en hann hefur verið.
Hið eina, sem hugsanlega getur varið
flokkinn hruni í kosningum er sú
staðreynd, að formaður flokksins,
Guðjón Arnar Kristjánsson, er mæt-
ur maður, sem nýtur virðingar, sem
dugmikill skipstjóri. Hversu lengi
hann á samleið með öðrum þeim, sem
skipa nú forystusveit flokksins er
annað mál og á eftir að koma í ljós.
Úr því sem komið er verður að telj-
ast líklegt að Margrét Sverrisdóttir
hyggi á framboð á eigin vegum og
stuðningsmanna sinna. Slíkt fram-
boð mundi augljóslega draga umtals-
vert fylgi frá Frjálslynda flokknum
og laska hann mjög í kosningunum.
En jafnframt er ekki ósennilegt að
Margrét mundi sækja fylgi í ýmsar
áttir. Hún hefur komið fram af festu
og einurð í átökunum innan Frjáls-
lynda flokksins og sýnt augljósa leið-
togahæfileika.
Hún á næsta leik.
FRELSI Í INNFLUTNINGI
OG ÚTFLUTNINGI
Í tveimur greinum í sunnudagsblaðiMorgunblaðsins fjallar Egill
Ólafsson blaðamaður um ólíkar hliðar
á landbúnaði og búvöruframleiðslu
hér á landi. Annars vegar ræðir Egill
við stjórnendur Sláturfélags Suður-
lands í tilefni af 100 ára afmæli þess
merka fyrirtækis. Hins vegar fjallar
hann um afnám svokallaðrar útflutn-
ingsskyldu í nýjum samningi ríkisins
og sauðfjárbænda.
Steinþór Skúlason, forstjóri SS,
segist í samtalinu við Egil gagnrýna
harðlega að ekki skuli vera búið að
fella niður innflutningstolla á kjarn-
fóðri. Hátt verð á kjarnfóðri hér á
landi er ein ástæðan fyrir háu verði á
kjöti. Steinþór segir óskiljanlegt að
landbúnaðarráðherra skuli ekki hafa
fellt niður tolla á innfluttum fóður-
blöndum síðastliðið sumar um leið og
hann felldi niður tolla á efni til fóð-
urgerðar.
Þetta er auðvitað alveg rétt hjá for-
stjóra SS. Innflutningur á fóðri á að
vera sem frjálsastur, eins og gildir
um allar aðrar vörur. En af hverju
ætli landbúnaðarráðherra hafi ekki
viljað fella niður alla tolla? Telur
hann sig kannski vera að vernda ein-
hverja innlenda hagsmuni með því?
Og hvað finnst forstjóra SS um
verndartolla yfirleitt? Ef það er sjálf-
sagt að fella niður tolla á fóðri, er þá
ekki líka sjálfsagt að fella niður tolla
á kjöti? Er þessi stóri kjötframleið-
andi ekki hlynntur frjálsri samkeppni
á kjötmarkaði eins og á fóðurmark-
aði? Fróðlegt væri að heyra sjónar-
mið forstjóra SS í því efni.
Í grein Egils Ólafssonar um afnám
útflutningsskyldu á kindakjöti kemur
fram að annars vegar hafi stjórnvöld
talið að stýring ríkisins á útflutningi
kjöts sé úrelt. Hins vegar muni afnám
útflutningsskyldunnar koma Íslandi
til góða í samningum á vegum Heims-
viðskiptastofnunarinnar (WTO) um
aukið frelsi í viðskiptum, vegna þess
að með því sé dregið úr stuðningi við
landbúnaðinn.
Hinn nýi sauðfjársamningur ríkis-
ins og bænda er lítið fagnaðarefni
fyrir neytendur, nema kannski að
þessu leyti. Auðvitað er það löngu úr-
elt að landbúnaðarráðherra reyni að
hækka verð á matvörum með því að
skylda framleiðendur þeirra til að
minnka framboðið með útflutningi.
Af þeim sökum er það líka óskiljan-
legt að frjálslyndur þingmaður á borð
við Einar Odd Kristjánsson skuli
berjast fyrir því að landbúnaðarráð-
herra geti áfram haft puttana í verð-
myndun á kjöti með því að skipa
bændum að flytja út dilkakjöt. Að
sjálfsögðu eru það framleiðendur
sjálfir, sem eiga að ákveða það hvort
þeir flytja út kjöt eða ekki, rétt eins
og í öðrum atvinnugreinum.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
„LANDSÞINGIÐ var fjölmennara
en við gerðum ráð fyrir. Maður
átti aldrei von á að þetta yrðu á
milli 800 og 900 manns,“ sagði
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins.
Hann kvaðst hafa reiknað með að
til landsþingsins kæmu 500–600
manns og var mjög ánægður með
hversu fjölsótt þingið var. „Það er
tilgangur okkar í Frjálslynda
flokknum, með því að hafa þetta
fyrirkomulag, að fólk dragist að
landsfundinum og fái að taka þátt.
Það er væntanlega markmið okk-
ar allra sem erum í pólitík að
reyna að fá sem flesta til að taka
þátt í störfum okkar með ein-
hverjum hætti. Það getur orðið
erfitt að framkvæma það þegar
þetta verður óvænt svona mikið,“
sagði Guðjón.
Sem kunnugt er var Guðjón
einn í kjöri til embættis formanns
flokksins og var kjörinn með lófa-
taki. Hefði ekki verið sterkara að
fá skriflega kosningu?
„Það var borið upp af fund-
arstjóra hvort fólk óskaði eftir
skriflegri kosningu. Þá var staðið
upp og klappað. Útaf fyrir sig er
Guðjón Margréti Sverrisd
ábyrgðarstarfa í samband
komandi alþingiskosninga
„Já, ég hef lýst því yfir a
hafi reiknað með því að hú
leiða lista t.d. í Reykjavík-
urkjördæmi suður. Það er
að kjördæmisráðið sem þa
ákveða það. Formaður flo
hefur ekkert sérstakt vald
uppröðun,“ sagði Guðjón.
sagði að stjórn kjördæmis
eða sérstök uppstillingarn
kæmi með tillögu að framb
sem félagsfundur kjördæm
félagsins þyrfti að samþyk
an tæki miðstjórn flokksin
anlega afstöðu til framboð
En mun Guðjón lýsa yfir st
við framboð Margrétar Sv
isdóttur?
„Ég gerði það í dag [í gæ
liggur fyrir og ég hef oft s
áður að ef hún hygðist sæk
ir þessu, þá teldi ég að það
tekið vel á móti því. Hins v
ég ekkert vald til að ráða þ
einn og sér,“ sagði Guðjón
mun öldugangurinn í aðdr
landsþingsins hjaðna?
„Hann varð bara af því a
ég ekkert ósátt-
ur við það, en
það hefði verið
allt í lagi að fá
einhverja mæl-
ingu á fylgið.“
Guðjón sagði að
þessi háttur
hefði verið
hafður á innan
Frjálslynda
flokksins, þegar
aðeins einn frambjóðandi hefur
verið í kjöri, bæði þegar Sverrir
Hermannsson og Guðjón hafa boð-
ið sig fram til formanns.
Er eitthvað til í því að gert hafi
verið samkomulag um helm-
ingaskipti við fólk sem kom í
flokkinn úr Nýju afli?
„Nei, ég get ekki sagt að það sé
neitt til í því, að öðru leyti en því
að fólk kemur og býður sig fram.
Það er alveg ljóst að menn voru að
takast á á fundinum um varafor-
mannskjör, sæti í miðstjórn
o.s.frv. Það voru hópar að vinna
að þeirri samsetningu í kjöri sem
þeir höfðu áhuga á,“ sagði Guðjón.
Hann taldi að þeir hópar hefðu
verið fleiri en tveir. En styður
Lýsir yfir stuðningi við M
Guðjón A.
Kristjánsson
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
Guðjón Arnar Kristjáns-son, alþingismaður, varendurkjörinn formaðurFrjálslynda flokksins
með lófataki á landsþingi síðastlið-
inn laugardag. Að formannskjör-
inu loknu var kosið í önnur emb-
ætti flokksins. Samkvæmt
auglýstri dagskrá áttu kosningar
að hefjast klukkan 15. Kjósa skyldi
formann, varaformann, ritara, for-
mann fjármálaráðs og fjóra með-
stjórnendur og fulltrúa í mið-
stjórn. Um kl. 15 höfðu myndast
langar raðir þar sem fólk sótti sér
kjörgögn og var um tíma ekki var
ljóst hvenær kosningin myndi hefj-
ast. Að því er fram kom á mbl.is
var því lýst yfir um kl. 15.20 að
ákveðið hefði verið að loka fyrir
nýskráningar í flokkinn, en reynt
yrði að afhenda kjörgögn þeim
sem hefðu skráð sig. Til að geta
kosið þurfti fólk sem var að skrá
sig að greiða 2.000 króna árgjald.
Eldri borgarar og öryrkjar þurftu
ekkert að greiða.
Kosinn með lófataki
Fundarmenn fengu m.a. afhent-
an atkvæðaseðil vegna formanns-
kjörs. Pétur Bjarnason þingforseti
sagði að ekki hefði borist nema
eitt framboð til embættis for-
manns og hljómaði þá lófatak um
salinn. Þingforseti spurði þá hvort
ekki ætti að líta svo á að formað-
urinn væri sjálfkjörinn og glumdi
þá aftur lófatak. Þannig fór ekki
fram skriflegt formannskjör.
Guðjón kvaddi sér hljóðs og
sagði m.a. í þakkarræðu sinni að
næsta formannskjör yrði eftir tvö
ár. Vonandi yrði þá enn fjölmenn-
ara á landsfundi en nú. Talið var
að um þúsund manns hefðu verið á
landsþinginu á Hótel Loftleiðum
þegar flest var.
Síðan var gengið til kosninga
annarra embættismanna flokksins
og var sú kosning skrifleg. Undir
kl. 17 var kosningum lokið og
fækkaði þá fundarmönnum mjög.
Virtust flestir hafa mætt til að
taka þátt í kosningunum, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins.
Fyrst var tilkynnt niðurstaða
kjörs varaformanns og var Magn-
ús Þór Hafsteinsson, alþingismað-
ur, endurkjörinn varaformaður
Fjölmennt lands
Frjálslynda flokk
Samherjar Guðjón Arnar Kristjánsson formaður og Magnús Þór
NIÐURSTÖÐUR kosninga í trúnaðarstöður á landsþingi Frjálsly
flokksins urðu eftirfarandi:
Guðjón Arnar Kristjánsson var sjálfkjörinn formaður.
Í kosningu til varaformanns voru greidd 815 atkvæði og reynd
gild. Magnús Þór Hafsteinsson var kjörinn varaformaður með 46
kvæðum eða 56,7% en Margrét Sverrisdóttir hlaut 351 atkvæði e
43,3%.
Kolbrún Stefánsdóttir var kjörin ritari flokksins og hlaut 398 a
(53,8%), Sólborg Alda Pétursdóttir hlaut 316 atkvæði (42,8%) og
María hlaut 25 atkvæði (3,4%).
Formaður fjármálaráðs var kjörinn Daníel Helgason, með 321
kvæði, en Bárður Halldórsson hlaut 305 atkvæði.
Meðstjórnendur í fjármálaráð voru kjörin Erna V. Ingólfsdótt
Sverrir Hermannsson, Eyþór Sigmundsson og Matthías Sveinsso
Fulltrúar í miðstjórn voru kjörin:
Aðalmenn: Grétar Mar Jónsson, Pétur Bjarnason, Óskar Þór K
Ásgerður Jóna Flosadóttir, Höskuldur Höskuldsson og Hanna Bi
hannsdóttir.
Varamenn: Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, Ásthildur Cesil Þ
ardóttir, Tryggvi Agnarsson, Eiríkur Stefánsson, Ásta Þorleifsd
Svanur Sigurbjörnsson og Ragna Fossdal.
Niðurstöður kosninga
LANDSÞING Frjálslynda flokksins samþykkti m.a. á laugardag
um að óskað yrði rannsóknar á upphafi kvótakerfisins og því hvo
dór Ásgrímsson, þáverandi sjávarútvegsráðherra, hefði haft lag
ildir fyrir því að koma kerfinu á.
Einnig var samþykkt ályktun frá Sverri Hermannssyni um að
menn flokksins hlutuðust til um það á Alþingi að fram færi opinb
sókn á allri starfsemi einkavæðingarnefndar.
Upphaf kvótakerfis og einka
væðingarnefnd rannsökuð