Tímarit lögfræðinga - 01.05.1981, Blaðsíða 23
Lögin um framkvæmd eignarnáms nr. 11/1973 fjalla ekki um eignar-
námsákvörðunina og hafa því ekki inni að halda ákvæði um þetta
efni. Fer það því eftir einstökum heimildarlögum, hver með vald
þetta fer. Raunar eru ýmis dæmi þess, að alls ekki sé í heimildarlög-
unum kveðið á um þetta.
Langalgengast er, að stjórnvöldum sé fengið ákvörðunarvaldið.
Stundum á það undir æðstu framkvæmdarvaldhafa, ríkisstjórn og ráð-
herra, sbr. t.d. 14. gr. orkulaga nr. 58/1967, þar sem ríkisstjórninni
er heimilað eignarnám. Þá er einnig mjög algengt, að það stjórnvald,
er fer með fyrirsvar þeirra hagsmuna, sem eignarnámsheimild er veitt
fyrir, eigi ákvörðun um eignarnám. Sem dæmi má nefna 28. gr. skipu-
lagslaga nr. 19/1964, sem veitir sveitarstjórn eignarnámsheimild
vegna framkvæmda á staðfestu skipulagi. Enn eru þess dæmi, að at-
beini fleiri en eins aðila þurfi til að koma, t.d. er sveitarstjórn í 27. gr.
skipulagslaga heimilað eignarnám að fengnu samþykki ráðherra. Loks
má nefna dæmi um, að gert sé ráð fyrir, að dómkvaddir matsmenn
séu fengnir til þátttöku í ákvörðun með ákveðnum hætti sbr. t.d. 1.
mgr. 146. gr. vatnalaga nr. 15/1923.
1 lögum þar sem ekki er tekin bein afstaða til þess, hver taka skuli
ákvörðun um eignarnám, má telja, að stjórnvald, sem almennt er í
fyrirsvari þeirra hagsmuna, sem eignarnámsheimildin fylgir, eigi yfir-
leitt ákvörðunarvaldið.
Um þessi efni, þ.e. hver eigi ákvörðunarvald um eignarnám, vísa ég
að öðru leyti til rits Dr. Gauks Jörundssonar prófessors: „Eignar-
réttur“ (fjölrit) 1978-1980, bls. 91-93.
Jón Steinar Gunnlaugsson lauk, embættisprófi
frá Háskóla íslands 1973 og hefur síðan verið
málflutningsmaður í Reykjavík. Hann varð
hæstaréttarlögmaður 1980. Jafnframt hefur
hann verið kennari við lagadeild Háskólans og
var settur dósent 1977-78. Kennslan hefur ver-
ið á sviði fjármunaréttar. Hér er birt erindi,
sem Jón Steinar flutti á málþingi Lögfræðinga-
félags Islands í Skíðaskálanum í Hveradölum
25. október 1980. í erindinu er aðallega fjallað
um tvö álitaefni tengd eignarnámsákvörðun:
hagsmunagæslu eignarnámsþola og vald dóm-
stóla til að fjalla um matskennd skilyrði í eignar-
námsheimildum.
17