Tímarit lögfræðinga - 01.05.1981, Qupperneq 45
segja. 13% Dana hafði orðið fyrir barðinu á þjófnaði en 5% Norðmanna.
ísland (ef miðað er við þessa staði) virðist því ekki vera nein paradís í þess-
um efnum, eins og margir virðast álíta.
Hér lýkur greinargerð dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Könnun sú, sem
frá er sagt, var framkvæmd af Erlendi S. Baldurssyni cand. polit. Nánar er
sagt frá könnuninni í grein eftir Erlend í tímaritinu Lögreglumanninum.
LÖGREGLUMAÐURINN, NÝTT RIT
Út er komið 1. hefti nýs rits, sem fjalla á um stéttar- og starfsmálefni lög-
reglumanna og nefnist LÖGREGLUMAÐURINN. Útgefandi er Landssamband
lögreglumanna í samvinnu við dómsmálaráðuneytið.
í ritinu eru þessar greinar: Félag rannsóknarlögreglumanna í Reykjavík
eftir Guðmund Gígja. Menntun lögreglumanna eftir Friðjón Þórðarson. Nýja
lögreglustöðin í Keflavík eftir Jón Eysteinsson. Vandframkvæmd vökulög eftir
Jóhannes Jónasson. Samningarnir og ferill þeirra eftir Jónas Jónasson. Ör-
yggismálaráðstefnan eftir Guðmund Gígja. Réttindi og skyldur lögreglu-
manna eftir Hjalta Zóphóhníasson. Viðhorf almennings til lögreglunnar eftir
Erlend S. Baldursson. Auk þess eru i ritinu inngangsorð, pistill formanns
Landssambandsins, ýmsar fréttir og samningsákvæði. Ritið er myndarlega úr
garði gert. Ábyrgðarmaður er Jónas Jónasson formaður Landssambands
lögreglumanna, en í ritstjórn eru Jóhannes Jónasson, Sæmundur Guðmunds-
son, Þórir Maronsson og Hjalti Zóphóníasson. í ritinu kemur fram, að Lands-
sambandið hefur skrifstofu að Grettisgötu 89 í Reykjavík. Framkvæmda-
stjóri þess er Jóhanna J. Thors.
Lögreglublaðið, sem Lögreglufélag Reykjavíkur hefur gefið út síðan 1966,
mun koma út áfram.
HÖFUNDARÉTTARFÉLAG ÍSLANDS STOFNAÐ
Stofnað hefur verið félag til umfjöllunar og fræðslu um höfundaréttarmál.
Félagið hyggst starfa með svipuðum hætti og hliðstæð félög í nágrannalöndun-
um. Stjórn þess skipa þessir menn: Sigurður R. Pétursson hrl. formaður, Þór
Vilhjálmsson hrd., varaformaður, Björn Bjarman hdl. ritari, og Ragnar Aðal-
steinsson hrl. gjaldkeri.
Markmið félagsins er að efla þekkingu á höfundarétti og þróun þeirrar
greinar lögvísinda með erindaflutningi, umræðum o.fl. Einnig að leita eftir
tengslum við hliðstæð samtök í öðrum löndum svo og við alþjóðastofnanir
á sviði höfundaréttar. Höfundaréttarmál eru nú ofarlega á baugi víða um lönd
vegna tækniframfara á sviði fjölföldunar og fjölmiðlunar hugverka. Þá fer
fram víðtæk umræða um réttarfar og refsingu vegna höfundaréttarbrota, t.d.
er nýlega fallinn tímamótadómur í Svíþjóð, þar sem í fyrsta sinn var dæmd
fangelsisrefsing út af höfundaréttarbroti vegna heimildarlausrar útgáfu verka
á snældum. — (Fréttatilkynning).
39