Tímarit lögfræðinga - 01.05.1981, Page 48
3. gr.
Tveir af stjórn gerðardóms mynda meirihluta. Ef meirihiuti fæst ekki ræður
atkvæði formanns. Ákvarðanir stjórnar eru endanlegar og verða ekki endur-
skoðaðar af Verzlunarráðinu.
4. gr.
Hafi málsaðilar ekki náð samkomulagi um fjölda gerðardómsmanna, skulu
3 tilnefndir.
Hafi málsaðilar orðið ásáttir um að deilan skuli úrskurðuð af einum dómara,
skal hann tilnefndur af stjórninni. í öðrum tilvikum tilnefna málsaðilar jafn-
marga gerðardómsmenn hver, en stjórnin tilnefnir einn, sem verður formaður
dómsins.
Ef dómari, tilnefndur af málsaðila, deyr tilnefnir sami aðili annan í hans stað.
Ef dómari, tilnefndur af málsaðila, dregur sig úr dómnum, er vikið frá
vegna þess að hann uppfylli ekki skilyrði eða einhver lögmæt forföll eða
vanhæfi koma í veg fyrir að hann geti framkvæmt skyldustörf sín á eðli-
legan hátt, skal stjórnin tilnefna annan dómara eftir að hafa rætt málið við
viðkomandi málsaðila.
Ef málsaðili tilnefnir ekki dómara, gerir stjórnin það.
5. gr.
Gerðarbeiðandi greiðir skrásetningargjald og skulu málsaðilar leggja fram
tryggingu, hjá stjórninni, til greiðslu málskostnaðar áður en mál er tekið
fyrir í dómi. Stjórnin getur ákveðið, að viðbótartrygging skuli sett á hvaða
stigi máls sem er.
6. gr.
Krafa um úrskurð gerðardóms skal vera skrifleg og afhendast skrifstofu
Verzlunarráðs íslands.
Kröfu um gerðardóm skal fylgja:
a) Greiðsla á skrásetningargjaldi.
b) Nöfn og heimilisföng málsaðila.
c) Greinargerð, þar sem málsatvik eru greinilega rakin.
d) Ótvíræð kröfugerð.
e) Eftirrit af samkomulagi, sem krafan er byggð á.
f) Skrifleg yfirlýsing frá málsaðilum, um að þeir sætti sig við gerðardóminn
og skoði úrskurð hans bindandi og endanlegan, nema slík málsmeðferð
sé bundin í samningi málsaðilanna, sem þá skal fylgja.
g) Tilnefning gerðarbeiðanda á dómara.
7. gr.
Stjórnin kannar hvort dómurinn hafi lögsögu í málinu og vísar því frá sér
sé svo ekki.
í því tilviki, að greinargerð sé runnin frá báðum málsaðilum sameiginlega,
og í samræmi við samkomulag um gerðardóm, skal stjórnin tilnefna dómara
án tafar.
í öðrum tilvikum skal koma kröfunni á framfæri, án tafar, við gagnaðila með
beiðni um svar, sem innihaldi:
a) Skýlaust svar við kröfu gerðarbeiðanda.
b) Tilnefningu gagnaðila á dómara.
42