Tímarit lögfræðinga - 01.05.1981, Side 52
lausn réttarágreinings á því sviði; skattlagning bandarískra yfirvalda á al-
þjóðleg umsvif fyrirtækja og einstaklinga; fjárfesting einkaaðilja erlendis.
Athygli vakti, að hið hefðbundna fyrirlestraform var ríkjandi, þótt fyrir
hendi væru alls konar hjálpartæki til nýtískulegra kennsluhátta, svo sem
myndvörpur, sjónvörp og tölvur. Mörgum til armæðu stóð hver fyrirlestur yfir
í eina klukkustund og tuttugu mínútur samfleytt, og þó var frá því skýrt, að
kennslufræðilegar rannsóknir sýndu, að full athygli áheyrenda að fyrirlestr-
um héldist ekki nema í um hálfa klukkustund miðað við að fyrirlesari og
áheyrendur tali sama tungumál. Þess ber þó að geta, að það var háttur fyrir-
lesara að gefa þátttakendum kost á spurningum á hvaða stigi máls sem var
og leiddi það oft til þess að fyrirlestrar leystust upp í umræður og rökræður.
Fyrirlestrar og umræður voru rækilega undirbúnir, m.a. með framlagningu
ýmis konar gagna, sem þátttakendum var ætlað að kynna sér fyrirfram, og
fyrir þá voru jafnvel lögð heimaverkefni til úrlausnar. Var þá gjarnan einhver
úr hópnum beðinn að hefja umræður, t.d. með því að reifa dóm og láta í Ijós
álit sitt á úrlausnarefninu á grundvelli laga og réttar í heimalandinu. Urðu
af þessu tilefni oft líflegar umræður.
Það gefur auga leið að ekki verður allt numið sem skyldi, þegar svo mörg
málefni eru tekin fyrir á tiltölulega skömmum tíma. Úr því var námsgögnunum
ætlað að bæta, en þau reyndust að lokum svo mikil, að nær allir þátttakendur
urðu að senda þau með skipspósti hver til síns heima.
Fyrirlesarar komu hvaðanæva að úr Bandaríkjunum, og verða þeir ekki
allir nefndir hér, en getið skal eftirtalinna lagaprófessora: Richard M.
Buxbaum (University of California at Berkley), Adolf J. H. Enthoven
(University of Texas at Dallas), Victor C. Folsom (University of Arizona og
formaður námsstefnunnar þetta árið), Frank P. Grad (Columbia Law School,
New York), Whitmore Gray (University of Michigan Law School), Fred H.
Miller (University of Oklahoma College of Law), William P. Murphy (University
of North Carolina), Walter W. Steele, Jr. (Southern Methodist University
School of Law, Dallas), Robert E. Tindall (University of Arizona) og Walter
Wallington (University of Virginia). — Auk þess fluttu fyrirlestra og tóku þátt
í umræðum ýmsir lögmenn bæði frá Texas og öðrum ríkjum Bandaríkjanna.
Flestir fyrirlesaranna dvöldust með þátttakendum og blönduðu geði við þá,
og gafst þannig kostur á nokkrum persónulegum kynnum.
Þá ber þess sérstaklega að geta, að þátttakendum var boðið að sitja þriggja
daga ráðstefnu á vegum International and Comparative Law Center um einka-
fjárfestingu erlendis. Ráðstefnan var haldin dagana 17.—19. júní í hinu glæsi-
lega Hyatt Regency Hotel í miðborg Dallas. Er óhætt að fullyrða, að hótelið
er einstakt minnismerki um nútíma byggingarlist. Þátttakendur á ráðstefn-
unni voru 230 frá 29 löndum og 24 rikjum Bandaríkjanna, auk námsstefnu-
gesta. Margir þekktir prófessorar fluttu þarna fyrirlestra, svo og háttsettir
embættismenn í stjórnsýslukerfinu, auk innlendra og erlendra fjármálamanna.
Með vísan til þess, sem nú hefur verið rakið, sýnist óhætt að fullyrða, að
mikils er krafist af fulltrúum á þessum námsstefnum. Hver dagur var þraut-
skipulagður og oft um of að áliti ýmissa þátttakenda. Sem dæmi má nefna
að fyrstu vikuna voru fyrirlestrar og umræður frá kl. 9—10.20 og aftur kl.
10.40—12.00, síðan frá kl. 13.20—14.40, þá frá kl. 15.00—16.20 og loks frá
kl. 19.00—20.30. Allar hinar vikurnar var vinnutíminn frá kl. 9.00 á morgnana
46