Melkorka - 01.05.1954, Page 17
Ave Maria gratia ple.na
dominus tecum.
(Ur Teiknibókinni i Arna
safni).
HANDRITA-
MÁLIÐ
Um kröfu til handritanna úr vörzlu Dana
eru íslendingar einhuga. Það sýnir bezt live
farsæl lykt þess máls er þeim mikils virði.
Þau eru að kalla einu þjóðardýrgripir okkar
frá fyrri tímum og bera vitni hámenningu,
sem hvaða þjóð sem er gæti verið stolt af.
Það er án efa örðugt að gera Dönum ljósa
afstöðu okkar til handritanna; það sézt bezt
á síðustu lillögum dönsku stjórnarinnar. —
Ráðamenn hinnar siðmenntuðu dönsku
þjóðar bjóða okkur að Danir eigi handritin
að hálfu með okkur. Ekki má láta þetta á sig
fá, heldur lialda áfram að skýra málið fyrir
Dönum, þar til handritin eru fengin. Þau
eru íslenzk — íslenzk — íslenzk, og það getur
aldrei önnur þjóð átt slíka gripi en sú sem
skóp þá.
Ut af þessum tillögum dönsku stjórnar-
innar samþykktu Menningar- og friðarsam-
tök íslenzkra kvenna eftirfarandi ályktun á
almennum fundi 2. apríl s.l.:
„Menningar- og friðarsamtök íslenzkra
kvenna ítreka þau einhuga sjónarmið ís-
lenzku þjóðarinnar í handritamálinu, að
handritin séu eign íslendinga einna og bezt
komin á íslandi.
Ennfremur leggur félagið á það áherzlu,
að ríkisstjórn Islands láti einskis ófreistað
að lialda áfram viðræðum við dönsku stjórn-
ina um málið, unz það er leitt til farsælla
lykta.“
armanna" með aukinni tækni og því feikn-
legri afköstum sem lengia líður á það þjóð-
skipulag, sem kennt er við auð og liefur arð-
ránið að uppistöðu og blinda auðsöfnun að
leiðarljósi.
Almúginn færði merkingu orðsins ríkur
til samræmis við raunveruleika. Eins á hann
eftir að leggja réttan mælikvarða á gildi sitt
í þjóðfélaginu. Því máli þokar smáttog smátt
Mklkorka
í rétta átt. Því fleiri sem finna kjarnann í
baráttu dagsins, fyrir samvirkum þjóðfélags-
háttum, sósíalisma, gegn auðdrottnun, því
betra. Því fyrr verður þeirri óáran aflétt, að
laun séu í öfugu hlutfalli við vinnuafköst,
að örfáir einstaklingar sitji yfir rétti fjöld-
ans, að fjármagn drottni á himni og jörðu.
N.Ó.
45