Melkorka - 01.05.1954, Page 19
Börn að tafli. — Tafl er heillandi og göfug
iþrótt, sem drengir og telpur ccttu að iðka
jöfnum höndum frá barnœsku.
sem bezt. Minnisstæðastur er mér
lestui' hans á „Lágnætti" Þorst.
Erl. í því Ijóði, senr var svo létt,
voru mörg falleg orð sem gaman
var að kynnast.
AljLt kom þetta af sjálfu sér og
engin stund sérstaklega ætluð til
ljóða- eða sagnalesturs. Og þannig
er þetta sjálfsagt víða, enda Jrótt
niér sé næst að halda, að það sé þó
of fágætt. En þá ályktun dreg ég
af þeirri ástæðu, sem ég taldi í
Upphafi Jressa máls: orðfæð harna.
Ég spyr börnin: Hvað heitir
landið okkar? Flest geta svarað
því. En svo spyr ég hvað þjóðin
lieiti, sem býr í landinu. Nú svara
börnin ekki. Það er kannski ekki von. Fa
o
spyr livaða fólk búi í landinu. ,,Við,“ svara
börnin. Þetta er hárrétt. Við erum fólkið,
íóikið er þjóðin. Þetta skilja Jrau vel, J^egar
þeim loks er sagt það. Og hvað ætli nú sú
þjóð sé kölluð, sem býr í landi, sem heitir
Island? Litli hópurinn treystir sér ekki til að
svara. En J^að er auðséð að þau hugsa mikið.
Smátt og smátt færist líf í hópinn. Eitthvað
hefur rifjast upp, eða þau hafa dregið eigin
ályktun. Ofurlítil bending hjálpar: ís-----
Og Jaá kemur það: íslendingar.
Kunnið Joið íslenzka Jrjóðsönginn? „Nei.“
>>bað er ekki von. En Joið vitið hvað Jrað er?“
»Nei,“ Það var kannski ekki rétt að spyrja
svona. Ég spyr því: „Þið kannizt við sönginn
Ö, guð vors lands?“ „Nei.“ Nú já, þau eru
svo lítil, en lagið hljóta þau að þekkja. Ég
raula kagið. En allt kom fyrir ekki. Undan-
tekningarlaust. Það getur verið að þetta sé
einstakt fyrirbrigði, og það getur líka verið
ab J^etta sé algengt, ennfremur getur verið
að’ þetta sé afsakanlegt og jafnvel eðlilegt.
Ég veit Jrað ekki. En ég óska þess ekki að
’úelkorka
mín börn fari í skóla án Jress að vita hið
allra minnsta um þjóð sína.
En svo að ég víki aftur að „kunnáttu“
barnanna, þegar þau korna í skólann 7 ára
gömul, Jrá kunna Jrau upp á sína tíu fingur
„Seven lonely days“ og annað álíka. Mér er
þetta ekki sársaukalaust, en kannski er ég of
viðkvæm.
Eftirtektarvert Jrykir mér, að þau börn,
sem hafa dvalið á barnaheimilum eða dag-
heimilum vita og kunna svo margfalt meira
en hin, sem hafa eingöngu dvalizt iieima.
En mæður Jressara 7 ára barna eru flestar
ungar og ekki kornnar af „dansaldri“, ef svo
má að orð kveða, og ]>ví eðlilegt að Jteim
lærist og Jrær syngi danslögin, enda dyggi-
lega studdar af sjálfu Ríkisútvarpinu.
Við ]>essar elskulegu mæður vildi ég mega
segja Jretta: Munið að börnin korna í skól-
ana með áhrifin frá heimilunum. Munið að
undirstaðan að öllu uppeldi er lögð á Iieim-
linu. Svæfið börn ykkar við íslenzk ljóð og
þulur. Leggið rækt við þjóðerniskennd
barnanna frá upphafi.
47