Melkorka - 01.05.1954, Blaðsíða 20
AFMÆLISKVEÐJUR
til Melkorku
Afmœliskveðja til Melkorku
„Stjarna cr fyrir stafni, stýrið i drottins nafni"
Melkorka hefur talið það aðalmarkmið sitt að vinna
að því, að konur láti sig þjóðmál meiru varða en áður.
Slíkt markmið er allra góðra gjalcla vert, en kapp er bezt
með forsjá. „Þó liafa húsfreyjur þótl góðar austur hér,
að ekki hafi staðið í mannráðum," kvað móðir Gunnars
á Hlíðarenda og er oft i þau orð vitnað. Löng og mörg
eru þau árin og aldirnar, þegar húsfreyjustaða var hinn
eini frami, sem konur gátu vænt sér og þeirra eina von
til einhverskonar áhrifa og íhlutunar, en að lögum höfðu
þær engan rétt, hvorki til sjálfsforræðis né þaðan af síð-
ur til að skipa málum fyrir aðra. Þessi ár ómyndugleik-
ans eru nú horfin í aldanna skaut, en enn mun þó nokk-
uð eima eftir af þessari undirlægjustöðu konunnar og svo
mikið er víst — með heiðarlegum undantekningum þó
— að þátttaka konunnar i stjórnmálum einkennist enn
af þeim eiginleikum, sem um aldaraðir voru taldir
kvenlegir og vænlegir til vildarkjara, að konan væri auð-
sveip og þóknunargjörn og kynni á því góð tök að beita
kynþokka sínum, hún gerir sig sæta í framan og syndir
fast á cftir karlmanninum í spillingarfeni valdastreitu
og harðsvíraðra flokks- og einkahagsmuna. Hinna sér-
stæðu persónueinkenna og sjónarmiða, sem konur ættu
að hafa, vegna þess hve margt hefur skilið á um þroska
og mótun þeirra og karlmanna, gætir harla lítið, þær
verða því löngum pólitískir aftaníossar þeirra. Betra er
að konur sitji um kyrrt við sömu störf og áður og
ræki þau með vaxandi þekkingu og útsjón, en þær láti
flækja sér út í hugsjónasnauða flokkabaráttu til þess
einkum að þjóna búralegum sjónarmiðum karlrafta,
sem eygja engan æðri tilgang í framlagi konunnar til fé-
lagsmála og forráða heldur meta með refslegum slóttug-
heitum gildi þess til atkvæðaveiða, að hafa konuna sem
einskonar fanggæzlu innan borðs í flokksskútunni, þeg-
ar róið er á atkvæðamiðin.
Frjálshuga og djörf hugsjónakona, ósérplægin og ó-
mútanleg, samvizkusöm og áreiðanleg til allra trúnað-
arstarfa, það er sú forustukona, sem hinn þögli og hlé-
drægi hópur kvenna þarfnast til fulltingis og fordæmi:;.
Og þessari konu, hinni sannnefndu nútímakonu, and-
legu afsprengi beztu og ótrauðustu forgöngukvennanna,
sem við íslenzkar konur eigum að minnast og þakka, ætti
Melkorka að greiða leið, hún ætti að koma til móts við
slíka skapgerð, skýra hana og styrkja hana, því að víða
Þórunn Elfa Magnúsdóttir rithöfundur
liggja falin fræ til mikilsháttar persónulcika, ef öfug-
snúnir þjóðfélagshættir og sívaxandi efnishyggja kæfa
ekki í upphafi gróður, sem ætti að geta orðið vaxtar-
mikill.
Aðalmarkmið Melkorku ætti að vera nýskipan kvenna-
uppeldis, að vekja áhuga kvenna fyrir hverskonar sam-
félagsvandamálum, sem á hverjum tíma væru sérstak-
lega aðkallandi, fræða þær um hvað eina, sein gerði þær
hæfa samstarfsmenn á hinum vandasama vettvangi Jijóð-
málanna, vara þær við snörum slunginna stjórnmála-
spekúlanta, sem vakka yfir því að gera þær að peðum í
samvizkuliðugri refskák sinni. í fáum orðum sagt, það
ætti að vera aðalinarkmið Melkorku að efla þjóðmála-
þroska kvenna almennt og sér i lagi styðja á allan hátt
þær konur, sem væru líklegar til mikiila áhrifa og átaka
í menningar- og stjórnmálum þjóðarinnar.
Og svo væri ekki úr vegi að taka það til alvarlegrar
íhugunar hvert stefnir með sívaxandi efnishyggju, sem
aðhyllist hina amerísku lífsstefnu, að sá sé mestur mað-
urinn, sem gerir beztan bisness, en hinn sé brjóstum-
kennanlegur auðnuleysingi, sem fórnar veraldargengi
fyrir æðri lífsgildi. Bitlingasýki og fjárgræðgi karla,
heimtufrekja og prjálgirni kvenna eru forheimskandi
þjóðfélagsfyrirbæri. Síaukið bridgespil og hanastélshóf
eru að verða andlegur dragbftur á menningu lítillar
þjóðar, sem þarf á öllu sínu að halda til þess að farast
ekki í ölduróti kjarnorku- og vetnissprengju-tímabils-
ins, þegar tæknin er að vaxa mannkyninu yfir höfuð.
Aldrei hefur verið meiri þörf en nú til að halda viti og
sönsum. Það er ömurlegt um að litast í heiminum nú,
þcgar vísindin gnæfa hæst í árangursríkri þjónkun við
tortímingaröflin og æskan er afvegaleidd með æðisgengn-
um glæpamennskuáróðri í kvikmyndum og sorpritum,
en dagblöðin eyða miklu rúmi i frásagnir um kynsvall
og morð. Það væri stórbrotið verkefni fyrir Melkorku
að gera þessu örlagaríka og aðkallandi vandamáli við-
48
MELKORKA