Morgunblaðið - 29.10.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2011
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Miele eldhústæki
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Alcoa vill stækka á Reyðarfirði
Alcoa vill auka framleiðslu á Reyðarfirði um 40 þúsund tonn á ári 150 til 200 manns fengju vinnu á
framkvæmdatíma Fjölgað yrði um fimmtíu starfsmenn eftir stækkun 20 til 25 milljarða fjárfesting
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Alcoa á Reyðarfirði hefur hug á að
stækka álverksmiðju sína á Reyð-
arfirði og auka þannig framleiðsl-
una um 40 þúsund tonn á ári. Þetta
staðfesti Tómas Sigurðsson, for-
stjóri Alcoa á Íslandi, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Tómas sagði að til þess að af
stækkuninni gæti orðið þyrfti fyr-
irtækið á um 40 megavöttum að
halda í aukinni raforku. „Við eigum
Hörður Arnarson, forstjóri
Landsvirkjunar, sagði í gær, þegar
hann var spurður hvort Landsvirkj-
un gæti selt Alcoa aukna orku: „Ég
vil ekki tjá mig um málefni Alcoa,
en ég get á hin bóginn greint frá
því að við erum að vinna í því að
klára ákveðin verkefni uppi í Kára-
hnjúkum, Sauðárveitu og fleira,
sem ráðist var í í sumar og verða
kláruð á næsta ári. Við erum sem
sagt að vinna að því að auka raf-
orkuframleiðslu okkar á Kára-
hnjúkasvæðinu.“
„Það er erfitt að meta það ein-
mitt nú, hversu mörg störf yrðu til,
til frambúðar, þ.e. eftir að búið væri
að stækka, en við áætlum að það
yrðu í kringum 50 störf,“ sagði
Tómas.
í samningaviðræðum við Lands-
virkjun um möguleika á því að
kaupa meiri raforku af þeim,“ sagði
Tómas.
Unnið í ákveðnum verkefnum
Hann sagði að ef af yrði myndi
Alcoa fjárfesta fyrir á milli 20 og 25
milljarða króna í verkefninu. „Það
fengju svona 150 til 200 manns at-
vinnu á framkvæmdatímanum, en
þetta er jú sagt án allrar ábyrgðar,
því hér er um gróft mat að ræða,“
sagði Tómas.
Álverið Alcoa vill stækka álverið á Reyðarfirði, til þess þarf aukna raforku.
Verulegur hópur fólks sem hefur
verið lengi án atvinnu mun missa
bótarétt sinn á næsta ári og þurfa á
fjárhagsaðstoð viðkomandi sveitar-
félags að halda. Samtals missa 882
einstaklingar bótarétt hjá Atvinnu-
leysistryggingasjóði um næstu ára-
mót. Þar af eru 164 ungar konur með
börn á framfæri. Kemur þetta fram í
yfirliti frá hagdeild Alþýðusambands
Íslands.
Fólk missir nú rétt til atvinnuleys-
isbóta eftir þrjú ár án vinnu. Rík-
isstjórnin áformar að framlengja
bótaréttinn í fjögur ár en þó þannig
að þrír mánuðir verði bótalausir eftir
að fólk hefur verið þrjú ár á atvinnu-
leysisskrá.
með velferðarráðherra um tillögu
stjórnvalda.
Atvinnuleysi mældist 6,6% í sept-
ember og er því mikið í sögulegum
samanburði en virðist heldur vera á
undanhaldi. Þess ber þó að geta að
frá hruninu 2008 hefur nettófækkun
í landinu verið um 8.000 manns og ef
þessi landflótti hefði ekki orðið væri
atvinnuleysi um 9%. Alls eru Íslend-
ingar á vinnualdri nú um 180 þúsund,
samkvæmt upplýsingum Hagstof-
unnar, þá er átt við þá sem eru starf-
andi og þá sem eru atvinnulausir. Af
þeim 882 sem hafa verið án vinnu í
þrjú ár eru 179 á aldrinum 16-29, 373
eru á aldrinum 30-49 ára og 330 eru
eldri en 50 ára. kjon@mbl.is
Takist fólki
ekki að fá vinnu
kemur það í hlut
sveitarfélaganna
að sjá því fyrir
framfærslu í
þessa þrjá mán-
uði. Sveitarfélög-
in hafa lýst and-
stöðu við þessa
tillögu.
Halldór Hall-
dórsson, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, segir að þetta
kalli á aukin útgjöld sveitarfélaga, en
útgjöld þeirra vegna fjárhagsaðstoð-
ar hafa aukist mikið eftir hrun.
Sveitarfélögin hafa óskað eftir fundi
Ungar konur að missa
atvinnuleysisbótarétt
Sveitarfélög landsins andvíg því að hlaupa undir bagga
Halldór
Halldórsson
Ákveðið hefur
verið að Lands-
dómur taki málið
gegn Geir H.
Haarde, fyrrver-
andi forsætisráð-
herra, til aðal-
meðferðar 5.
mars á næsta ári.
„Það er gert ráð
fyrir að aðal-
meðferðin taki að
minnsta kosti fjórar vikur,“ segir
Geir. „Þetta mál mun því dragast á
langinn, í hálft ár í viðbót en auðvit-
að var þetta gert með samkomulagi
verjanda míns, saksóknara og for-
seta Landsdóms.“
Aðalmeðferð
5. mars nk.
Geir H.
Haarde
Héraðsdómur Suðurlands féllst ekki
á kröfu lögreglustjórans á Selfossi
um að þrír menn sem handteknir
voru með fíkniefni í sumarbústað í
Árnessýslu á fimmtudag sættu
gæsluvarðhaldi í fjórar vikur, og
einn í tíu daga. Dómurinn taldi
nægilegt að marka varðhaldinu
styttri tíma og úrskurðaði mennina
alla í vikulanga gæslu.
Mennirnir sem allir eru frá Lithá-
en voru með 375 grömm af kókaíni í
fórum sínum. Tveir þeirra eru bú-
settir hér á landi en hinir tveir hafa
aðeins verið á landinu í skamman
tíma. Rannsókn lögreglu beinist
meðal annars að því hvernig efnið
var flutt til landsins og hvort menn-
irnir hafi lagt stund á sölu fíkniefna
hér á landi.
Ekki fallist á
kröfur að fullu
Rjúpnaveiðitímabilið hófst í gær en einungis er heimilt að veiða í alls níu
daga sem eru helmingi færri veiðidagar en í fyrra. Nýttu því margir veiði-
menn tækifærið í gær enda um er að ræða einu veiðihelgi tímabilsins þar
sem heimilt er að veiða frá föstudegi og fram á sunnudag. Talið er að um
fimm til sex þúsund skotveiðimenn gangi til rjúpnaveiða á Íslandi á ári
hverju en samkvæmt mati Náttúrufræðistofnunar er veiðiþol rjúpunnar
31.000 fuglar. Á myndinni má sjá Kjartan Þór Þorbjörnsson rjúpnaveiði-
mann en hann nældi sér í fimm rjúpur á Suðurlandshálendi í gær. Fyrsti
dagurinn gekk ekki klakklaust fyrir sig því björgunarsveitir frá Borg-
arfirði þurftu að bjarga tveim rjúpnaskyttum við Vikravatn.
Skotveiðimenn ganga til fjalla
Morgunblaðið/Golli
Rjúpnaveiðitímabilið hófst í gær og þurfti strax fyrsta daginn að bjarga tveimur skyttum