Morgunblaðið - 29.10.2011, Side 28
28 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2011
NÝSKÖPUNARÞING 2011
ÁSKORANIR
Nýsköpunarþing Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Íslandsstofu og
Nýsköpunarsjóðs verður haldið þriðjudaginn 1. nóvember nk. kl. 8:30–10:30
á Grand hótel Reykjavík. Á þinginu verða flutt erindi undir yfirskriftinni ÁSKORANIR.
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2011 verða afhent.
Húsið opnar kl. 8:15 með léttum morgunverði.
DAGSKRÁ 8:30–10:30
Ávarp
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra
Áskoranir sem leiða til hagvaxtar
Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins
Hvað getur Ísland lagt af mörkum til fæðuframleiðslu framtíðar?
Stefanía Katrín Karlsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenskrar matorku
Ný tækifæri á Norðurslóðum
Guðmundur Nikulásson, framkvæmdastjóri innanlandssviðs Eimskipa
Endurnýjanleg orka - helstu áskoranir
Davíð Stefánsson, framkvæmdastjóri ráðgjafar hjá Reykjavík Geothermal
Fæðuöryggi og sjálfbærni til framtíðar
Kristinn Andersen, rannsóknastjóri hjá Marel
Öldrun; sjúkdómur eða lífstíll?
Magnús Oddsson, nýtæknihönnuður hjá Össuri
Tónlistaratriði
Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2011 afhent
Fundarstjóri er Helga Valfells, framkvæmdastjóri
Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
Skráning fer fram á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
www.nmi.is eða í síma 522 9000.
Synir og dætur konunga eða drottn-
inga Bretlands í framtíðinni hafa
sama rétt til að erfa krúnuna sam-
kvæmt breytingum á ríkiserfðalög-
um sem samþykktar voru á leiðtoga-
fundi samveldisríkja í Perth í
Ástralíu í gær.
Breytingarnar voru samþykktar á
fundi leiðtoga sextán samveldisríkja
þar sem Bretadrottning er þjóðhöfð-
ingi. Samkvæmt ríkiserfðalögunum,
sem hafa gilt í rúm 300 ár, hefur elsti
sonur konungs eða drottningar erft
krúnuna. Elsta prinsessan hefur að-
eins getað orðið ríkisarfi ef hún á
enga bræður, eins og í tilviki Elísa-
betar Bretadrottningar.
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, sagði að breytingin
myndi ná til afkomenda Karls Breta-
prins. Þetta þýðir að ef Vilhjálmur
Bretaprins og Katrín kona hans
eignast dóttur verður hún ríkisarfi
Bretlands. Julia Gillard, fyrsta kon-
an til að gegna embætti forsætisráð-
herra Ástralíu, fagnaði þessari
breytingu og sagði hana hafa mikla
sögulega þýðingu, þótt margir teldu
hana sjálfsagða nú á tímum.
Leiðtogarnir samþykktu einnig að
afnema bann við því að konungur eða
drottning Bretlands væri gift/ur
kaþólikka. Alex Salmond, forsætis-
ráðherra Skotlands, fagnaði þessari
breytingu en sagði það mikil von-
brigði að ekki var afnumið bann við
því að kaþólikki erfði krúnuna.
Prinsessur hafi sama rétt
til ríkiserfða og prinsar
Leiðtogar samveldislanda samþykkja breytingar á ríkiserfðalögum Bretlands
Reuters
Breyttir tímar Elísabet Bretadrottning fylgist með dansi frumbyggja í Perth í Ástralíu. Drottning er í ellefu daga
heimsókn þar í landi. Hún fagnaði breytingum á ríkiserfðalögunum og sagði að sum ákvæðanna væru nú úrelt.
Vísindamenn,
sem tilkynntu í
september að fis-
eindir gætu e.t.v.
ferðast hraðar en
ljósið, ætla að
endurtaka til-
raunina með nýj-
um aðferðum.
Fréttavefur
breska ríkis-
útvarpsins hefur
eftir vísindamönnunum að þetta hafi
verið ákveðið vegna gagnrýni sem
fram hafi komið eftir að niðurstaða
fyrri tilraunarinnar var tilkynnt.
Beitt verði nýjum aðferðum til að
endurmeta hraða fiseindanna áður
en niðurstaðan verður birt í vísinda-
tímariti.
Vísindamenn við samstarfsverk-
efni, sem nefnist OPERA, hófu nýju
tilraunina fyrr í vikunni og gert er
ráð fyrir að henni ljúki 6. nóvember.
Tilraunin fer fram í 732 km langri
braut milli CERN, Evrópsku rann-
sóknamiðstöðvarinnar í öreinda-
fræði í Genf, og ítalskrar rann-
sóknastöðvar. Niðurstaða mælinga
vísindamannanna benti til þess að
fiseindirnar færu þessa leið á tíma
sem er 60 nanósekúndum minni en
sá sem reiknast út frá ljóshraða.
Þessi niðurstaða vakti mikla athygli
þar sem hún myndi kollvarpa af-
stæðiskenningu Alberts Einsteins.
Samkvæmt henni getur enginn hlut-
ur farið hraðar en ljósið. bogi@mbl.is
Fiseinda-
rannsókn
endurtekin
Rannsóknastöð
CERN í Genf
Fara þær í raun og
veru hraðar en ljósið?
Alþjóðasakamáladómstóllinn í Haag
hefur hafið óformlegar viðræður við
Saif al-Islam, son Muammars Gadd-
afis, um að hann gefi sig fram til að
hægt verði að sækja hann til saka
fyrir stríðsglæpi. Talsmaður dóm-
stólsins segir að viðræðurnar fari
fram í gegnum milligöngumann.
Ákveðið hefur verið að herþotur
NATO fari frá Líbíu á mánudaginn
kemur, en heimild öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna til hernaðaríhlutun-
ar í landinu hefur verið felld úr gildi.
„Þetta er ein best heppnaða að-
gerðin í sögu NATO,“ hefur frétta-
veitan AFP eftir Anders Fogh
Rasmussen, framkvæmdastjóra
NATO. Bandalagið hefur boðist til
að aðstoða nýju valdhafana í Líbíu
við uppbyggingu öryggismála í land-
inu. NATO hefur staðfastlega neitað
því að hafa haft Gaddafi að skot-
marki í loftárásunum. Engu að síður
hæfði ein af þotum NATO bílalest
Gaddafis þegar hann var á flótta frá
borginni Sirte.
Leiðtogi líbíska þjóðarráðsins fór
fram á að NATO yrði í landinu fram
að áramótum og sagði að enn stafaði
hætta af bandamönnum Gaddafis.
Alþjóðadómstóll í Haag
ræðir við son Gaddafis
Hernaðaríhlutun NATO að ljúka
Bolshoi-leikhúsið í Moskvu var opnað í gær eftir sex ára viðgerðir með sýn-
ingu þekktra ballettdansara og söng óperusöngvara. „Þetta er þjóð-
argersemi,“ sagði Dmítrí Medvedev Rússlandsforseti þegar hann ávarpaði
1.740 gesti sem Kremlverjar buðu á opnunarhátíðina.
Reuters
Þjóðargersemi opnuð