Vera - 01.10.1988, Blaðsíða 3
\Jm
mmb 1}
1úi &yKftrí<
SKIPTAR SKOÐANIR
UM FÆÐINGARHEIMILIÐ
I síðasta tbl. Veru birtist viðtal við
Huldu Jensdóttur, forstöðukonu
Fæðingarheimilisins, sem vakið hef-
urtalsverð viðbrögð meðal lesenda
blaðsins. Hafa þau verið af tvenn-
um — og um leið ólíkum — toga
spunnin.
Annars vegar hafa konur haft samband
viö blaöiö sem segja aö Hulda geti m.a.
sjálfri sór um kennt hvernig komið er fyrir
Fæðingarheimilinu. Óbilgjörn afstaöa
hennar til fóstureyðinga geri þaö að verk-
um aö fjöldi kvenna vilji ekki nota þá stofn-
un sem hún er í forsvari fyrir. Þær telji aö I
afstööu hennar felist árás á grundvallarrétt
kvenna til að taka ákvöröun varðandi eigið
líf og líkama, og kæri sig ekki um að fara á
fæðingarstofnun þar sem hafður er uppi
beinn og óbeinn áróöur gegn þessum rétti.
Hins vegar hefur Vera fengiö upphring-
ingar frá fólki sem segir aö í viðtalinu gefi
Hulda villandi mynd af því öryggi sem
Fæðingarheimilið hafi upp á aö bjóöa. Er
þar um aö ræða fólk sem segist persónu-
lega þekkja dæmi þess, aö börn hafi
skaddast í fæðingu vegna þess aö nýjustu
öryggistæki hafi ekki verið notuö og fæð-
andi kona hafi ekki verið flutt yfir á skurö-
stofu fæðingardeildarinnar í tíma.
Vegna þessa haföi Vera samband viö
Guðjón Magnússon, aðstoöarlandlækni,
og baö um álit hans á því öryggi sem Fæö-
ingarheimilið hefur upp á aö bjóöa. Hann
sagöi aö því væri ekki aö neita aö Fæöing-
arheimilið væri mjög umdeilt í heilbrigðis-
kerfinu út frá öryggissjónarmiöi. Þar væri
t.d. ekki aðstaða til aö gera keisaraskurð ef
eitthvað bæri út af í fæðingunni og ákveöin
tregöa væri viö aö nota þau nýtísku tæki
sem fyrir hendi væru, til aö fylgjast meö
hjartslætti fóstursins. En er þaö ekki rétt
sem Hulda segir í viðtalinu að ef eitthvaö
afbrigöilegt kemur upp á í fæöingu sé
hægt aö flytja konu á mjög skömmum tíma
yfir á fæðingardeildina?
,,Jú, en mannlegar hindranir í vegi þess
eru ansi miklar þó hinar landfræðilegu fjar-
lægðir séu þaö ekki. Fæðingarheimilið
hefur á undanförnum árum þurft að róa
ákveðinn lífróður til að bjarga sér vegna
þess aö umræðan um að leggja þaö niður
hefur alltaf annað slagiö skotiö upp kollin-
um. Á sama tíma hefur fæðingardeildin
verið aö ásælast heimiliö. Þetta hefur gert
þaö aö verkum aö þaö er spenna á milli
þessara tveggja stofnana og við óttumst
aö samstarfiö þarna á milli hafi ekki alltaf
gengiö nógu vel. Þetta lýsir sér m.a. í því
aö það er alltof sjaldgæft aö konur séu
fluttar yfir á fæðingardeildina. Og þaö er
kannski sömu sögu aö segja um fæðingar-
deildina; þaö er afar fátítt aö konur séu
fluttar þaöan yfir á Fæöingarheimiliö þeg-
ar deildin er yfirfull." En eru einhver dæmi
um mistök í fæöingu sem rekja megi til
þess að öryggissjónarmiðum hafi ekki ver-
iö nógu vel sinnt á Fæðingarheimilinu?
,,Því er ekki aö neita að þaö eru nokkur
kærumál í gangi sem eru mjög óþægileg
fyrir Fæðingarheimilið. Hins vegar hafa
mjög svipuð mál líka komiö upp á fæöing-
ardeildinni."
Margar konur leggja á þaö ríka áherslu
aö til séu tvær mismunandi fæöingarstofn-
anir í Reykjavík þannig að konur eigi raun-
hæft val um þaö, hvort þær fæöi á sjúkra-
deild eöa stofnun sem á meira skylt viö
heimili. Hver er skoðun aöstoðarland-
læknis á því? ,,Ef allt væri meö felldu þá
ætti þetta að geta gengið. Það hafa lengi
verið neikvæðir straumar gagnvart Fæö-
ingarheimilinu en ég veit ekki hve mikið
þeir eru á rökum reistir. Persónuleg fæö-
ingarstofnun eins og Fæðingarheimilið
býöur upp á marga kosti. Hún er heimilis-
legri og þar er hægt aö sinna meiri fræöslu
eftir fæðinguna heldur en á stórri stofnun
eins og fæöingardeildinni. Ég held því aö
þaö sé mikilvægt aö halda í þessi einkenni
Fæöingarheimilisins.1'
Ef við gefum okkur þaö aö ýmsu sé áfátt
í samstarfi Fæöingarheimilisins og fæö-
ingardeildarinnar, hvaö er þá til ráöa?
,,Það þarf aö samræma rekstur þeirra.
Best væri að gera þaö undir einni stjórn en
þaö má líka hugsa sér aö gerður veröi
samningur milli þessara stofnana um aö
Landspítalinn sjái um ákveöna þjónustu
viö Fæðingarheimilið, s.s. sérfræöiþjón-
ustu barnalæknaog kvensjúkdómalækna.
Á Fæöingardeildinni eru alltaf þrír læknar
á vakt og þar á meðal einn sérfræðingur í
kvensjúkdómum sem gæti farið yfir á Fæð-
ingarheimilið ef eitthvað kæmi upp á.
Þungamiðja þessa máls er þó sú aö af-
staða þessara tveggja stofnana þarf aö
gjörbreytast. Hagur kvenna veröur að sitja
þar í fyrirrúmi en ekki misskilinn metnaöur
stofnananna."
—isg.
KVENFYRIRLITNING
EÐA HVAÐ?
Vera!
Nú er mér gersamlega ofboöiö og get ekki
oröa bundist öllu lengur.
Meövitund okkar kvenna hefur hægt og
sígandi veriö aö vakna til vitundar um þaö
hvers konar misrétti viö erum og höfum
verið beittar, hvernig þaö birtist og hvar
þaö leynist. Er þaö gott!
Baráttan gegn þessu misrétti er svo öllu
erfiðari leikur og er þaö okkar allra í sam-
3