Vera - 01.10.1988, Page 28
,,Kvennalistinn hefur alltaf sagst vera
tilbúinn til að starfa með þeim sem
vilja vinna að framgangi þeirra mála,
sem hann berst fyrir. Ef hægt er að ná
saman um góðan málefnasamning sé
éq ekkert athuqavert við slíkt sam-
það var lífsspursmál fyrir okkur. Eftir síðustu kosningar var staðan
hins vegar öðru vísi. Þá vorum við með fastmótaðri afstöðu til
flestra mála og okkur hafði tekist að sýna að við vorum pólitískt
afl sem varð að taka tillit til. Samstarfið í minnihlutanum hefur
gengið mjög vel og það er mikilvægt að muna í þessu samhengi
að konur eru í meirihluta í þessum hópi. Fólk hefur starfað þarna
af heilindum og samstarfið hefur verið laust við þann hugsana-
hátt, sem er svo vanalegur í pólitík, að hugsa einungis um hag
síns flokks."
Ef marka má það sem er skrafað er almenn ánægja með betta
samstarfog talað hefur verið um sameiginlegt framboð við næstu
kosningar til að freista þess að sigra Sjálfstæðisflokkinn. Hvað
finnst þér um þessar hugmyndir?
,,Ég veit það ekki... Flokkar hafa tilhneigingu til að fara að lifa
sjálfstæðu lífi og tilvera þeirra verður markmið í sjálfu sér. Sá
hugsanaháttur gæti staðið í vegi fyrir svona framboði. En það er
Ijóst að það er sterk krafa frá fólki hér í borginni að reyna nýjar leið-
ir til að koma Sjálfstæðisflokknum frá völdum. Við stöndum and-
spænis einhvers konar karlsýki í samfélaginu, og þó sérstaklega
í Reykjavík, sem lýsir sér í öllum þessum hallarbyggingum. í þess-
ari karlmennskuhugmyndafræði sem nú situr við stjórnvölinn eru
glæsileg ytri tákn mælikvarðinn á framfarir en ekki gæði mannlifs-
ins. Það er því mikið hagsmunamál fyrir konur að þessu linni og
auðvitað verður Kvennalistinn að íhuga mjög vel hugmyndina um
sameiginlegt framboð áður en hann hafnar henni.“
Væri þaö ekki í andstöðu við hugmyndafræði samtakanna að
vinna með körlum?
„Kvennalistinn hefur alltaf sagst vera tilbúinn til að starfa með
þeim sem vilja vinna að framgangi þeirra mála, sem hann berst
fyrir. Ef hægt er að ná saman um góöan málefnasamning sé ég
ekkert athugavert við slíkt samstarf. Við erum ekki einangrunar-
sinnar."
Raddir innan Kvennalistans halda því þó fram að samtökin hafi
enn ekki öðlast nógu mikið kjörfylgi til aðfara í samstarf með körl-
um. Er ekki hælta á að samtökin verði undir i slíku samstarfi?
,,Ég hef nú meiri trú á okkur en svo að við mundum láta karlana
gleypa okkur og í raun ber það vott um vanmátt að halda slíku
fram. Hitt er þó Ijóst að það þýðir ekkert að fara í svona samstarf
með hangandi hendi. Þar verður að starfa af fullum krafti og heil-
indum. Og þó við séum í minnihluta í Reykjavík og í samstarfi við
félagshyggjuflokkana þá vil ég bara minna á að samtökin eru í
meirihlutasamstarfi á Selfossi m.a. við Sjálfstæðisflokkinn sem
sýnir best hvað aðstæður eru mismunandi. Við verðum að vera
sveigjanlegar og þó að ákveðið samstarf henti í Reykjavík er ég
ekki þar með að segja að það henti í landsmálum. Þaö er talsverð-
ur munur á sveitastjórnarmálum og landsmálum. Það reynir ekki
eins á þolrifin að stjórna borginni þar sem tekjustofnar hennar eru
að miklu leyti fast markaðir. Þar er stóra spurningin um skiptingu
fjárins."
,,Það er til mikið af góðu fólki út um
allan bæ, sem risið hefur upp og vill
ekki láta bjóða sér þetta lengur.
Þú talar um sterka kröfu frá fólkinu um breytingar og nýjar að-
ferðir?
„Fólk sér t.d. að leikreglur í skipulagsmálum eru að engu hafð-
ar. Fólki er gert að fara eftir lögum og reglum í þessum málum, en
starf. Við erum ekki einangrunarsinn-
ar.
þegar það hentar borginni, meirihlutanum, eru reglurnar snið-
gengnar eða túlkaðar íbúum í óhag. Fólk fyllist reiði og verður
magnþrota gagnvart þessu kerf i sem hvergi er hægt að festa hönd
á. Það er til mikið af góðu fólki út um allan bæ, sem risið hefur upp
og vill ekki láta bjóða sér þetta lengur. Það er búið að stuða rétt-
lætiskennd þess og siðferðisvitund. Uppistaðan í þessum hópi
eru konur. Konur sem hafa áttað sig á kjarkleysi fjölmargra karla
sem vilja ekki hreyfa sig af ótta við að detta út úr karlasamstöð-
unni. Það er hins vegar engin áhætta fyrir konur að grípa til að-
gerða, þær hafa aldrei verið þarna inni. Þær hafa engu að tapa,
en allt að vinna og eru tilbúnar til að gera eitthvað í málunum."
Hvernig tilfinning er það að hætta núna sem borgarfulltrúi?
„Það eru mjög blendnar tilfinningar. í sjálfu sér er ég sátt við að
hætta. Þetta er búið að vera mikið álag. Það er mikill munur á
þessu kjörtímabili og því síðasta, þegar við vorum tvær. Nú hef ég
þurft að vera stöðugt vakandi fyrir öllu því sem er að gerast í borg-
armálum, því ef ég hefði látið eitthvað framhjá mér fara hefði mér
fundist ég hafa brugðist.“
Hefur þá ekki borgarmálaráð Kvennalistans starfað með þér?
„Jú, svo sannarlega. Ég kveið fyrir því við upphaf kjörtímabils-
ins að þessi hópur myndi ekki verða nógu virkur. Sá ótti var
ástæðulaus. Hópurinn hefur veitt mér mikinn stuðning, það hefur
verið vel mætt á fundum og ríkt góður andi."
Reglur Kvennalistans um útskiptingar eru einsdæmi í íslenskri
pólitík og ég man að þú varst enn sannfærðari um gildi þeirra eftir
heimsókn borgarstjórnar til Grimsby og þú sagðir að pólitíkin hér
I samanburði við pólitíkina þar einkenndist af einhverskonar
,,snobbi“?
heimi verða þeir að vísu fyrir árásum,
en það eru árásir sem þeir kunna
auðveldlega að verjast. Þeir eru vanir
að tala við aðra stjórnmálamenn en
óvanir að tala við fólkið/'
,,... Þetta hefur í för með sér að þeir
fjarlægjast umbjóðendur sína, fara
að lifa í vernduðum heimi. I þessum
„Já, stór hluti af stjórnmálamönnum hér eru atvinnupólitíkusar
þó þeir gegni kannski einhverju ööru starfi samhliða. Þetta hefur
í för með sér að þeir fjarlægjast umbjóðendur sína, fara að lifa í
vernduðum heimi. í þessum heimi verða þeir að vísu fyrir árásum,
en það eru árásir sem þeir kunna auðveldlega að verjast. Þeir eru
vanir að tala við aðra stjórnmálamenn en óvanir að tala við fólkið.
Borgarstjórinn er alltaf að tala um allt þetta fólk sem kemur í viðtal
til hans, en það eru bara allt öðru vísi samskipti. Það fólk er að
sækja eitthvað til borgarinnar, það eru samskipti embættismanns
við viðskiptavin. Þegar þannig er komið eru stjórnmálin komin á
hættulegt stig.“
Það hefur stundum heyrst í Kvennalistanum að fulltrúar sam-
takanna i borgarstjórn og á þingi fórni sér. Á þessum sex árum
sem þú hefur átt sæti í borgarstjórn hefur þú jafnframt stofnað
heimili og eignast tvö börn, hefur þetta verið fórn fyrir þig, eða
sannar þetta að allir geti verið i pólitík?
„Þessi ár hafa verið mjög annasöm og lítið mátt út af bera til að
allt færi ekki úr skorðum heimafyrir. En ég á þessi börn ekki ein
og pabbi þeirra hefur axlað þá ábyrgð ekki síður en ég. Ef svo
heföi ekki verið hefði þetta tæpast gengið. Þaö getur hins vegar
aldrei verið fórn að fá að vinna og takast á við þau mál sem maöur
hefur áhuga á. En auðvitað er það notalegt að geta gefið sér meiri
tíma heima. Það er þörf á því.“
En hvað um borgarmálin?
„Ég vinn áfram að þeim. Bæði af áhuga og svo vegna þess að
ég er svo afskiptasöm — ég er það í eðli mínu. Svo verð ég að sjálf-
sögðu áfram virk í borgarmálaráði Kvennalistans. Annars væru
svona útskipti út í hött.“
kb
28