Hugur - 01.01.2008, Síða 56

Hugur - 01.01.2008, Síða 56
54 Jón A. Kalmansson sérkennilegheitum vitundarlífsins heldur tekur hana sem vísbendingu um eitthvað sem heíur milda þýðingu. Það kann að virðast undarlegt að leggja svo mikla áherslu á eina birtingarmynd ímyndunaraflsins; undrunina gagnvart tilvistinni. A ímyndunaraflið sér ekki margar birtingarmyndir? Svarið er að sjálfsögðu jákvætt. Sennilega tengja flestir ímyndunaraflið við getuna til að skapa eitthvað nýtt úr fyrri reynslu og minn- ingum,'3 setja sér eitthvað fyrir sjónir sem ekki blasir nauðsynlega við; setja til dæmis saman á nýjan og frumlegan hátt orð, liti eða tóna, og skapa þannig lista- verk. Við tengjum ímyndunaraflið líka við getuna til að brjótast frá viðteknum hugmyndum og leiðum til að skoða veruleikann, og opna um leið augun fyrir nýjum skilningi og þekkingu; að sjá ekki aðeins það sem aðrir sjá, það sem viðtekið er að sjá, heldur vera fær um að sjá eitthvað nýtt, eitthvað sem enginn hefur áður komið auga á. Með þessu móti hefur ímyndunaraflið mikla praktíska þýðingu. Það hjálpar okkur í lífsbaráttunni með því að gera okkur kleift að sjá fyrir erfiðleika og finna ný tækifæri og lausnir. Það leikur til dæmis lykilhlutverk í tækni og vís- indum.14 Án þess gætu vísindamenn ekki þróað hugmyndir sínar og tilgátur um heiminn eða fiindið upp ný og nytsamleg tæki. Imyndunaraflið er hka forsenda siðferðilegrar hugsunar. Með ímyndunaraflinu getum við gert okkur í hugarlund afleiðingar gerða okkar til skemmri og lengri tíma. Þessi hæfileiki kann að vera mannkyninu í heild mikilvægari nú á tímum en nokkru sinni fyrr. Almennt má segja að ímyndunaraflið geri manni kleift að sjá möguleika og tengsl; sjá eitt í ljósi annars, og sjá að eitthvað annað en það sem er gæti verið.’5 Ef við værum ófær um að gera okkur í hugarlund að hlutirnir gætu verið öðruvísi en þeir eru þá gætum við ekki hugsað okkur hvernig þeir gætu verið betri. Hugmyndir og hugsjónir - hæfileiki manna til að sjá fyrir sér í huganum annan og betri mann og heim - eru þess vegna forsenda þess að þeir geti á 13 David Hume bendir á það í Rannsókn á skilningsgáfunni (Reykjavík: Hið íslenzka bók- menntafélag 1988, s. 69) að hugsun okkar og ímyndunarafl sé háð skynjun okkar, reynslu og minningum. Þótt hugsun og ímyndunarafli mannsins virðist við fyrstu sýn lítil takmörk sett, sé meðal annars „auðvelt að skapa ófreskjur og hvers kyns óskapnað" og geti „flutt oss á örskotsstundu til fjarlægustu hlpta himingeimsins", þá sé þeim í raun þröngur stakkur skor- inn: „allur sköpunarmáttur [hugsunarinnar] felst í því einu að hún getur raðað saman þeim efnivið sem skynfærin og reynslan láta henni í té, velt honum fyrir sér, miklað hann og dregið úr“. Það er án efa rétt hjá Hume að hugsun og ímyndunarafl eru háð skynjun og reynslu, og þess vegna getur mikil lífsreynsla, þekking og kunnátta styrkt og auðgað ímyndunaraflið. En hann kann, eins og fleiri raunhyggjumenn, að hafa gert of lítið úr því í hve ríkum mæli áhrifin eru gagnkvæm; að hve miklu leyti hugsun okkar og ímyndunarafl mótar óhjákvæmilega sjálf- an efniviðinn, skynjun okkar og reynslu af hciminum. 14 Fræg ummæli Alberts Einstein um mikilvægi ímyndunaraflsins koma vart á óvart í ljósi þess að þar talaði maður sem kollvarpaði viðteknum hugmyndum um efnisheiminn með kenning- um sínum: „Eg er nógu mikill listamaður til að nýta mér að vild ímyndunaraflið, sem ég álít mikilvægara en þekkingu. Þekking er takmörkuð. Imyndunaraflið spannar heiminn". Þessi orð féllu í viðtali er birtist í Saturday Evening Post, Philadclphia, 26. október 1929. 15 „Heimspeki," segir William James, „sem hefst í undrun, eins og Platon og Aristóteles sögðu, getur hugsað sér allt öðruvísi en það er. Hún sér hið venjulega eins og það væri undarlegt, og hið undarlega eins og það væri venjulegt. Hún getur tekið hluti upp og lagt þá niður aftur. Hugur hennar er fullur af lofti sem leikur um hvert viðfangsefni. Hún vekur okkur af inn- grónu kredduföstu móki okkar og brýtur upp staðnaða fordóma okkar“. Some Probtems of Philosophy, s. 987.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.