Hugur - 01.01.2008, Side 81

Hugur - 01.01.2008, Side 81
Hagtextinn 79 lögmálsskýringar í hagfræði eru lítils megandi. Auk þess finnst mér ekki frjótt að líkja sjálfsleiðréttandi kerfi við lifandi samræðu margþættra, illútreiknanlegra ein- staklinga, allra síst ef maður (Palmer) tekur undir þau orð Gadamers að við getum ekki vitað hvernig samræða endar. Palmer vill bæði éta kökuna og eiga hana, beita aðferðum túlkunarfræðanna á hagrænan veruleika en trúa um leið á hagfræðileg lögmál. Viðhorf hans til aðferðafræða er náskylt minni afstöðu en okkur greinir á um lögmálshyggju og frjálshyggju. Samt á ég bágt á með að trúa öðru en Palmer sé jafn efins og ég um ágæti þeirr- ar gagnrýni sem Hans Albert beinir gegn túlkunarhagfræðinni. Albert tekur m.a. fyrir þá hugmynd Ebelings að verð sé tákn sem þurfi að túlka. Hann segir að fremur beri að líta á verð sem einkenni (Symptome) eða merki (Signale). Ef verð á vöru lækkar skyndilega getur það verið merki um lida eftirspurn. Lækkunin getur líka verið sjúkdómseinkenni hagkerfisins. En jafnvel þótt verð væri ekkert annað en tákn nægir það ekki til að vita hvers konar fyrirbæri verð er. Alvöru hagfræð- ingur vill setja fram orsakaskýringar sem skýra verðmyndun. En eins og fyrr kom fram hafna túlkunarhagfræðingar ekki orsakaskýringum alfarið svo þessi gagnrýni þarf ekki að káfa upp á þá. Og eins og Albert ætti að vita manna best þá hafa orsakaskýringar í hagfræði venjulega ekki mikið upp á sig. Hann hefur jú borið hagfræðinga þeim sökum að lifa í heimi platónskra hkana og trúa á óhrekjanlegar kenningar (Albert 1965, 406-434). Ekki er mikið að marka orsakaskýringar sem ekki er hægt að prófa. Auk þess viðurkennir Albert að orsakaskýringar að hætti náttúruvísinda eigi ekki við í félagsvísindum. Hann tekur nefnilega undir með Max Weber sem sagði að orskaskýringar í félagsvísindum yrðu að hafa „merk- ingarhæfi“ (Sin?tadáquanz).'6 Það þýðir að Albert viðurkennir að skilningur og túlkun gegni mikilvægu hlutverki í hagfræðinni. Reyndar segir hann eins og góðum Poppersinna sæmir að hvað sem tauti og rauli beiti menn tilgátu- og að leiðsluaðferð jafnt við túlkun sem við beitingu lögmálsskýringa (Albert 1994,136- 163). En Albert athugar ekki að jafnvel þótt túlkun fælist í beitingu tilgátu- og aðleiðsluaðferðar þá sannar það ekki að túlkun sé lögmálsskýring. Það eru engin rakatengsl milli hugtaksins um tilgátu- og aðleiðsluaðferð annars vegar og hug- taksins um lögmálsskýringar hins vegar. Hugsanlega mætti beita títtnefndri aðferð til að skilja viðburði sem ekki verða með nokkru móti felldir undir almennt lögmál: Eg set fram þá tilgátu að fellibylurinn Katrín hafi orsakast af vængjablaki fiðrildis í Kólumbíu kl. 10.15,IO- janúar árið 2002. Vængjablakið hafi verið litla lóðið á vogarskálinni sem olli því að fellibylurinn Katrín skall á. An vængjablaksins hefði ekkert óveður skollið á en viðburðurinn (fellibylurinn) verður ekki með góðu móti felldur undir lögmál, a.m.k. samkvæmt kokkabókum óreiðukenningarinnar (sjá Jakobsen 1996,170-175). Af tilgátu minni má leiða ýmsar prófanlegar staðhæfingar; ég hef sem sagt beitt tilgátu- og aðleiðsluaðferð til að skýra atburð án þess að vísa til lögmáls. Af þessu og því sem áður segir má sjá að gagnrýni Alberts á túlkun- arfræðina missir marks. 16 Skýringarnar verða að „meika sens“, svo beitt sé gullaldaríslensku.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.