Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 24
Rafmagnsverkfræðingadeild
í stjórn RVFÍ starfsárið 2005-2006 sátu Þorvarður Sveinsson formaður, Nökkvi Pálsson
stallnri, Ragnheiður Ásta Þorvarðardóttir ritari og Ragnar Jónsson gjaldkeri. Starfsemi
deildarinnar var með hefðbundnum hætti. Aðalfundur RVFÍ 2005 var haldinn í byrjun
maí. Að loknum aðalfundarstörfum var opinn fundur fyrir alla félaga VFÍ og TFÍ þar sem
Sæmundur Þorsteinsson frá Símanum og Örn Orrason frá OgFjarskiptum kynntu sína
framtíðarsýn varðandi fjarskiptanet á íslandi. Eftir framsögur gátu fundarmenn borið
fram fyrirspurnir og kom mikill áhugi þeirra á efninu berlega í ljós.
Á aðalfundi voru kynnt drög að samningi milli VFÍ og IEEE um útnefningu á Rafmagns-
verkfræðingi ársins. RVFÍ sá um framkvæmd á samningnum fyrir hönd VFÍ. Skrifað var
undir samninginn á haustmánuðum 2005 og framkvæmdanefnd skipuð. Fulltrúar VFÍ í
nefndinni voru Steinar Friðgeirsson og Þorvarður Sveinsson. Fulltrúar IEEE voru Ragnar
Jónsson og Kristinn Andersen. Auglýst var eftir tilnefningum í nóvember og desember
2005 í Morgunblaðinu og með tölvupóstsendingu til félagsmanna VFÍ og IEEE. Skipuð
var dómnefnd til þess að fara yfir þær fjölmörgu tilnefningar sem bárust. I dómnefndinni
áttu sæti rafmagnsverkfræðingarnir Georg Lúðvíksson, Jón Bergmundsson, Svana Helen
Björnsdóttir og Jón Atli Benediktsson, sem var formaður nefndarinnar. Dómnefndin lauk
störfum í janúar 2006 og var niðurstaða hennar kynnt á afmælisdegi VFÍ 21. apríl 2006.
Fyrsta starf stjórnar í janúar 2006 var að skipa Kristján Bjartmarsson sem fulltrúa í undir-
búningsnefnd Tæknidaga 2006. Þemað að þessu sinni var fjarskipti á íslandi í 100 ár. í
upphafi vetrar lagði stjórnin línurnar fyrir vetrarstarfið og var ákveðið að leggja áherslu á
ákveðið þema í vetrarstarfinu. Fyrir valinu varð: „Raforka og nýju raforkulögin".
Ákveðið var strax í byrjun að fá sýn sem flestra hagsmunaaðila á raforkulögin.
I október 2005 hélt Ivar Þorsteinsson sérfræðingur á Orkustofnun kynningu á nýju
raforkulögunum. Þar fjallaði ívar almennt um tilgang laganna og hvernig þau snúa að
framleiðendum, flutningsaðilum og neytendum. ívar gerði sérstaklega grein fyrir
hvernig kostnaði við raforku er hægt að skipta í framleiðslu og flutning og hvernig það
endurspeglast í lögunum.
I nóvember bauð Landsnet RVFÍ í heimsókn í stjórnstöðina við Bústaðaveg. Guðmundur
Ingi Asmundsson hélt fyrirlestur um Landsnet og hvemig gengur að reka fyrirtækið á
grundvelli nýrra raforkulaga. Hann fjallaði um aðskilnaðinn frá Landsvirkjun og arð-
semiskröfu hins nýja fyrirtækis. Einnig kom hann inn á rekstraröryggi flutningsnetsins.
Að loknum fyrirlestrum og veitingum var stjórnstöðin skoðuð.
í mars og apríl var farið í heimsókn til Netorku og Orkuveitu Reykjavíkur. Hjá Netorku
var kynntur rekstur upplýsingakerfa sem tryggja eiga sveigjanleika og skilvirkni íslenska
raforkumarkaðarins. Orkuveita Reykjavíkur kynnti áhrif raforkulaganna á raforkudreif-
ingu í þéttbýli.
Þorvarður Sveinsson formaður
Rafmagnsverkfræðingur ársins.
Frá vinstri: Kristinn Andersen.for-
maður 1EEE á fslandi, Lewis
Terman, fulltrúi IEEE, Antony C.
Davies, fulltrúi IEEE,Sigmar
Guðbjörnsson,„rafmagnsverk-
fræðingur ársins", Steinar
Friðgeirsson, formaður VFÍ og
Þorvarður Sveinsson.formaður
RVFl.
(Ljósm. Sigrún S. Flafstein)
22, Arbók VFl/TFl 2 0 0 6