Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 36
fræðinga og tæknifræðinga fyrir sameiningu. Félögin skipuðu því aðra nefnd til að
útfæra tillögur að skipulagi nýs félags. Nefndin skilaði metnaðarfullu áliti þar sem
útfærðar voru hugmyndir um hvernig sameinað félag verkfræðinga og tæknifræðinga
gæti best þjónað hagsmunum þeirra, bæði faglegum og kjaralegum. Stýrihópur sem
skipaður var formönnum og varaformönnum félaganna vann síðan mikið og gott starf
við að undirbúa mál sem best fyrir kosningarnar sem fram fóru í janúar 2006.
Niðurstöðurnar eru birtar í töflunni hér á eftir. Eins og fram kemur var meirihluti í öllum
félögunum fyrir sameiningunni en ekki nægjanlegur í VFI, en þar þurfti 67% greiddra
atkvæða.
Niðurstöður kosninga Ijanúar-febrúar 2005 um sameiningu VFf, TFlog SV
Atkv.æði greiddu Já sögðu Nei sögðu Auðir seðlar
Á kjörskrá alls % alls % alls % alls %
VFl 1.118 494 44,2 286 57,9 204 41,3 4 0,8
TFl 904 415 45,9 401 96,6 14 3,4 0 0
sv 1.026 409 39,9 282 69,0 120 29,3 7 1,7
Alls 3.048 1.318 43,2 969 73,5 338 25,6 11 0,8
Menntunarmálin
Menntunarmál tæknifræðinga og verkfræðinga voru mikið í umræðunni á síðasta ári en
þau féllu í skuggann fyrir sameiningarmálunum. í undirbúningi eru fundir um mennt-
unarmálin og hafinn er undirbúningur að ABET-úttekt á verkfræðinámi í HI og HR og
sömuleiðis á tæknifræðinámi í HR.
VerkTækni golfmótið
Árlegt golfmót verkfræðinga og tæknifræðinga var haldið á Jaðarsvelli, golfvelli
Golfklúbbs Akureyrar, laugardaginn 23. júlí 2005. Að þessu sinni, eins og reyndar oftast
áður, fóru tæknifræðingar með sigur af hólmi og hafa því unnið mótið átta sinnum,
aðeins einu sinni hafa heilladísirnar snúist á sveif með golfurum úr verkfræðingastétt.
Mótið þótti takast frábærlega vel enda spillti veðrið ekki fyrir, sól og blíða allan tímann
ef frá er skilin örlítil skýjahula að morgni keppnisdags. Til leiks mættu 46 kylfingar víðs-
vegar að af landinu. Um kvöldið var síðan móttaka hjá Norðurorku og glæsileg veisla í
Golfskálanum þar sem verðlaunaafhending fór fram.
Þessir urðu efstir (einstakl-
ingskeppni með punktum:
Frá vinstri: Kristján H.
Sigurjónsson, Kristinn
Jósep Gíslason, Steinar
Friðgeirsson, Pétur
Sigurðsson, Benedikt Guð-
mundsson og Bergsteinn
Hjörleifsson.
(Ljósm. Anna V. Oddsdóttir)