Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Side 41
Hagsmunafélagið telur að um þessar mundir sé sérstakt tækifæri og ástæða til að fjölga
nemendum, ekki síst konum, í verk- og tæknifræði. Hagsmunafélagið hefur vakið athygli
ungs fólks á tækifærum sem felast í þessu námi, m.a. með opnum fundum og útgáfu
kynningarefnis. Hagsmunafélagið hefur veitt einstaklingum viðurkenningu fyrir gott
framtak á sviði raungreinakennslu og veitir árlega grunnskólu m viðurkenningu fyrir
góðan námsárangur á samræmdum prófum í 10. bekk. Fulltrúi VFÍ er Magnús Gíslason.
NORDING 2005 í Noregi
Fundur formanna og framkvæmdastjóra á Norðurlöndunum, NORDING, var haldinn
dagana 25.-27. ágúst í Stavanger í Noregi á vegum norsku félaganna. Ein af skrifstof-
unum heldur utan um starfsemina eitt ár í senn og er í forsvari fyrir öll félögin út á við
eins og til dæmis í málefnum ESB. Akveðið var á síðasta ári að fela CF, sænska verk-
fræðingafélaginu, þetta hlutverk fyrsta árið og verður verkefnisstjórn áfram á þess könnu
en finnska verkfræðingafélagið, TEK, leiðir samstarfið. Að þessu sinni var sérstaklega
fjallað um það sem nefnt er alþjóðavæðing eða „globalisation" viðskiptalffsins, þar sem
verkefni eru leyst í æ ríkara mæli í fjarlægum löndum sem keppa um verkefnin við hin
vestrænu ríki. Uppbygging olíuiðnaðarins í Noregi var skoðuð og áhrif hennar á norskt
þjóðlíf útskýrð.
Framkvæmdastjórafundur
Dagana 16.-17. febrúar 2006 var fundur framkvæmdastjóra norrænna félaga verkfræð-
inga og tæknifræðinga sem eiga aðild að NORDING haldinn hjá IDA í Kaupmannahöfn.
Helsta mál fundarins var umræða um umsókn til Norrænu ráðherranefndarinnar um
styrk til að gera úttekt á stöðu, gæðum menntunarinnar og samkeppnisfærni norrænna
verkfræðinga og tæknifræðinga í alþjóðasamfélaginu. A fundinum var gert samkomulag
um gestaaðild og það sent aðildarfélögunum til afgreiðslu. Helsta breytingin er sú að nú
geta félagar verið með gestaaðild í allt að þrjú ár. Umsóknina þarf að endurnýja árlega.
Þeir sem gerast gestaaðilar njóta flestra þeirra réttinda sem félagar í gestgjafafélaginu
hafa, að undanskildum atvinnuleysisbótum. Þá var lögð fram áfangaskýrsla varðandi
endur- og símenntunarmál og verkefni næsta starfsárs rædd.
íslandsnefnd FEANI
VFÍ og TFÍ eru aðilar að FEANI, Evrópusamtökum verkfræðingafélaga og tækni-
fræðingafélaga. I hverju aðildarlandi starfa landsnefndir, og standa VFÍ og TFÍ sameigin-
lega að Islandsnefnd FEANI. Félögin skiptast á um að hafa formennsku til tveggja ára í
senn. Hefur fulltrúi VFÍ, Steindór Guðmundsson, gegnt formennsku í nefndinni
síðastliðið starfsár. Nefndarmenn á starfsárinu voru Jóhannes Benediktsson, Eiríkur
Þorbjörnsson og Páll A. Jónsson fyrir TFÍ og Steindór Guðmundsson, Guðleifur M.
Kristmundsson og Sigurður Brynjólfsson fyrir VFÍ. Jón Vilhjálmsson situr auk þess í
nefndinni sem formaður Eftirlitsnefndar FEANI á íslandi. Aðalfundur FEANI er haldinn
í september á hverju ári í einhverju aðildarlandanna, sem nú eru 26 talsins, eftir að
Búlgaría bættist við árið 2004. Tvö fyrrum aðildarlönd, Noregur og Frakkland, hættu
þátttöku tímabundið, en von er á að þau gangi aftur í sambandið á aðalfundi árið 2006.
Islandsnefndin hefur lagt áherslu á að senda fulltrúa á aðalfundinn á hverju ári. Er það
að jafnaði formaður nefndarinnar sem hann sækir, að þessu sinni var Steindór
Guðmundsson því fulltrúi Islandsnefndarinnar. FEANI starfar einkum í þremur
málaflokkum og haldnir eru nokkrir fundir á ári, þar sem fulltrúar aðildarlandanna hitt-