Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 72
Bankainnst
Sjóöfél.lán
il uldabret
30 i
Innl. hlutabréf
11%
| Fjárfestingarstefna 2006. |
Erl. hlutabróf
30%
skiptir verðbréfaeign sjóðsins eftir verðbréfaflokkum og stýringar-
formi (kvikri stöðu, virkri stýringu og kjarnasafni). Stjórnendur
sjóðsins sjá um stýringu kvika hlutans með vísitöluafurðum, þar
sem aðallega er horft til breytinga á gengi krónunnar og þróunar á
innlendum hlutabréfamarkaði.
Sjóðurinn lét gera framfallsgreiningu á verðbréfasafni sjóðsins á
síðasta ári. Vænt nafnávöxtun miðað við stöðu eignasafnsins var
9,0% og áhætta 5,7%. Hagstæðasta samsetning hefði gefið 9,9%
vænta ávöxtun miðað við sömu áhættu. Segja má að sjóðurinn sé
nokkuð nærri hagstæðustu eignasamsetningu miðað við þessa
greiningu.
Stjórn sjóðsins hefur tekið virkan þátt í mótun og framkvæmd fjár-
festingarstefnu sjóðsins að undanförnu. Haldnir voru þrír fjár-
festingarfundir með stjórninni á síðasta ári, til viðbótar við al-
menna stjórnarfundi.
Ný sjóðfélagalán.
í milljónum króna.
2001 2002 2003 2004 2005
H Fjárhæö _______% af hreinni eign
Fjárhæð sjóðfélagalána.
I milljónum króna.
Sjóðfélagalán
í ágúst 2005 hætti sjóðurinn að afgreiða sjóðfélagalán. Gerður var
samningur við SPRON um afgreiðslu sjóðfélagalána á sömu
kjörum og lífeyrissjóðurinn hefur veitt hingað til. Lífeyrissjóðurinn
leggur jafnvirði lánanna inn á bundinn bankareikning hjá SPRON
sem ber sömu raunvexti og lánin eða 3,5%. Þar sem þak er á láns-
fjárhæð er búist við að hlutfall eldri sjóðfélagalána og bundinnar
inneignar vegna nýrra sjóðfélagalána af heildareignum sjóðsins
fari minnkandi, en það er nú tæp 20%. Með samstarfinu við
SPRON opnast nýir möguleikar til fjármögnunar íbúðarhúsnæðis
fyrir sjóðfélaga. Auk þess að taka sjóðfélagalán, á 3,5% vöxtum,
geta sjóðfélagar tekið íbúðarlán hjá SPRON á þeim kjörum sem
SPRON býður. Þessir tveir kostir saman lækka meðalvaxtakostnað
umtalsvert.
Sjóðurinn afgreiddi alls um 175 milljónir króna í ný lán til sjóð-
félaga á árinu. Að auki afgreiddi SPRON 105 milljónir. Alls fengu
sjóðfélagar því afgreidd lán fyrir um 280 milljónir króna á árinu.
Þetta er lægra en undanfarin ár. Ástæðu minni spurnar eftir
sjóðfélagalánum má rekja til lækkandi vaxta á húsnæðislána-
markaði undanfarin ár. Heildarfjárhæð sjóðfélagalána er rétt tæpir
4 milljarðar, svipuð og árið áður. Sjóðfélagalán sem hlutfall af
hreinni eign sjóðsins fóru því lækkandi á árinu úr 23% í 19%.
Hlutfall sjóðfélagalána af hreinni eign sjóðsins hefur farið lækk-
andi allt frá árinu 2002.
Séreignardeild
I byrjun árs 2006 fjölgaði sjóðurinn sparnaðarleiðum úr einni í
tvær. Áður var einungis boðið upp á séreignarsparnað í skulda-
bréfum. Nýja leiðin er blanda af skuldabréfum og hlutabréfum.
Samið hefur verið við SPRON um eignastýringu og vörslu beggja
leiða og er einungis fjárfest í verðbréfasjóðum SPRON.
70, Arbók VFl/TFf 2 0 0 6