Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 73
• Sparnaðarleið 1: Fjárfest er í íslenskum skuldabréfum
traustra fyrirtækja, fjármálastofnana, sveitarfélaga eða með
ábyrgð ríkissjóðs, einkum verðtryggðum, en hlutfall
óverðtryggðra eigna ræðst af vaxtastigi og verðbólgu-
horfum.
• Sparnaðarleið 2: Fjárfest er í innlendum og erlendum hluta-
og skuldabréfum. Hlutfall hlutabréfa verður á bilinu
30%-70%. Innlend skuldabréf verða valin með sama hætti
og í Leið 1. Innlend hlutabréf verða í safni sem leitast við að
fylgja Urvalsvísitölu Kauphallar Islands. Erlend hluta- og
skuldabréf verða í dreifðum eignasöfnum með það að
markmiði að draga úr áhættu sem fylgir ákveðnum
landsvæðum eða atvinnugreinum.
Nafnávöxtun séreignardeildar var 8,7% á árinu 2005, raunávöxtun
var 4,6% og hrein raunávöxtun 4,4%. Meðaltal hreinnar raunávöxt-
unar síðustu 5 ár er 5,4%. Hrein eign séreignardeildar fór yfir einn
milljarð á árinu 2005 og var í árslok 1.027 mkr. Hrein eign jókst um
230 mkr. frá fyrra ári eða 30%. Vöxtur séreignardeildar hefur verið
nokkuð jafn síðustu fimm árin eða um 200 mkr. á ári. Iðgjöld
séreignardeildar námu 163 mkr. árið 2005 sem er heldur hærra en
árið áður. Brúttóiðgjöld voru nokkru hærri, en réttindaflutningur
var meiri í fyrra en áður. Lífeyrisgreiðslur úr séreignardeild eru
enn óverulegar. Á síðasta ári fengu tveir sjóðfélagar greitt úr
séreignardeildinni samtals 3,1 milljón króna.
8%
7%
6%
5%
3%
2%
1%
0%
5,31%
1 —
2.65%
1 I 1
1 ■ ■
■ ■ I
■ ■ I
■ ■ I
2001 2002 2003 2004 2005
■■■■ Hrein raunávöxtun --------- 5 ára meöaltal
Hrein raunávöxtun.
.1
I
I I
II I
2001 2002 2003 2004 2005
Hrein eign til greiðslu
lífeyris.
Imilljónum króna.
Innri málefni og sérstaða
Sjóðuriim fékk aðgang að tölvukerfi lífeyrissjóða (Jóakim) snemma árs 2002. í fyrstu var
aðeins notast við iðgjalda- og lífeyrishluta þess, en síðar var verðbréfakerfið tekið í gagn-
ið fyrir séreignardeild.
1 byrjun árs 2005 hóf sjóðurinn að skrá inn alla verðbréfaeign samtryggingardeildar í
verðbréfakerfið. Allar verðbréfahreyfingar hjá innlendum fjárvörsluaðilum eru skráðar
sem eykur verulega eftirlit og tryggir að nýjustu upplýsingar liggja fyrir um 10. hvers
mánaðar. Skýrslugjöf til eftirlitsaðila verður mun auðveldari en áður og notagildi
upplýsinganna fyrir stjórnendur batnar til muna. Þessi framþróun hefur orðið til þess að
hægt er að halda aðalfundi fyrr en áður og upplýsingagjöf til sjóðfélaga verður betri.
Afgreiðsla nýrra sjóðfélagalána og innheimta eldri lána var færð til SPRON á síðasta ári.
Þessi útvistun hefur þegar skilað sér í miimi umsýslu hjá sjóðnum og nýtast kraftarnir í
önnur brýn verkefni í kjarnastarfsemi sjóðsins.
Sjóðuriim lét framkvæma öryggisúttekt á árinu. Verkefnið var unnið af VKS fyrir 15
lífeyrissjóði. Uttektin beindist einkum að öryggi upplýsingakerfa og meðferð persónu-
upplýsinga sem Fjármálaeftirlitið og Persónuvemd hafa gefið leiðbeinandi tilmæli um að
sjóðirnir uppfylli.
Félagsmál Vfl/TFl i 71