Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 79
með afgerandi hætti en jsar sögðu 96,63% félagsmanna „Já" á en 3,37% sögðu „Nei".
Kosningaþátttaka hjá TFI var 45,91%.
„Að aflokinni aUsherjnratkvæðagreiðslu": í 2. tbl Verktækni 2006, birtist grein frá stýrihópi
félaganna en þar sagði m.a: „Niðurstaða lýðræðislegrar allsherjaratkvæðagreiðslu um
sameiningu SV, TFÍ og VFÍ, er á þann veg að ekki verður af sameiningu félaganna þriggja
að þessu sinni. Af lyktum atkvæðagreiðslunnar má þó ráða að félagsmenn kjósa frekar
aukna samvinnu á milli félaganna heldur en minni. Sú niðurstaða er mikilvæg vísbend-
ing fyrir félögin í stefnumótun þeirra og starfi."
Helstu atburðir tengdir sameiningarmálum á starfsárinu
• Félagsfundur SV um sameiningarmál, 27. apríl 2005 í Verkfræðingahúsi.
• Viðhorfskönnun SV á meðal félagsmanna, framkvæmd á netinu í maí 2005.
• Heimsókn á vegum stýrihóps til IDA í Danmörku og CF í Svíþjóð í þeim tilgangi að
fræðast um reynslu félaganna af sameiningarmálum, 6-7. júní 2005.
• Samráðsfundur SV, TFÍ og VFÍ, 21. október 2005 í Verkfræðingahúsi.
• Kynningarfundur SV, TFÍ og VFÍ um hugsanlega sameiningu félaganna, 9. nóvember
2005 á Grand Hótel.
• Allsherjaratkvæðagreiðsla um sameiningu á meðal félagsmanna SV, á tímabilinu
16. janúar-10. febrúar 2006.
Helstu gögn i tengslum við sameiningarmál
• Stefnumótun sameinaðs VFI 2006-2010, tekin saman af Sævari Kristinssyni frá
Netspor eftir vinnu í stýrihópi í september 2005.
• Framtíðarsýn sameinaðs Félags verkfræðinga og tæknifræðinga fyrir árið 2010, tekið
saman af Sævari Kristinssyni frá Netspor í september 2005.
• Drög að lögum Verkfræðingafélags íslands, félags verkfræðinga og tæknifræðinga,
sem taka eiga gildi 1. janúar 2007, tekin saman af Láru V. Júlíusdóttur.
• Tímarammi fyrir áætlað samrunaferli félaganna þriggja, tekið saman af Láru V.
Júlíusdóttur.
• Stofnsamningur sameinaðs félags, tekinn saman af Láru V. Júlíusdóttur.
• Atkvæðaseðill vegna allslierjaratkvæðagreiðslu, gerður af Láru V. Júlíusdóttur.
• Kynningarbæklingur um sameiningarmál sem dreift var með 8.tbl. Verktækni.
• Fjárhagsáætlun fyrir sameinað VFÍ 2006-2008, tekið saman af Kristni Gestssyni og
framkvæmdastjórum SV, TFÍ og VFÍ.
• Kjarasjóðir SV og KTFÍ, samantekt í október 2005, tekin saman af framkvæmda-
stjórum SV, TFÍ og VFÍ.
• Ymsar greinar stýrihóps í Verktækni.
• Kynningargögn sem unnin voru fyrir samráðsfund í október og kynningarfund í
nóvember.