Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 101
VEGAMÁL
Bifreiðaeign
Samkvæmt tölum frá Skráningarstofunni hf. voru nýskráðar fólksbifreiðar 22.140 á árinu
2005 en 13.929 árið áður, sem samsvarar 58,9% fleiri skráningum. Á sama tíma voru
nýskráðar 214 hópferðabifreiðar á móti 129 árið áður sem samsvarar 65,9% aukningu.
Nýskráðar vöru- og sendibifreiðar voru 3.583 á árinu 2005 en voru 2.443 árið áður og er
það um 46,7% fjölgun skráninga. Aukning í nýskráningu mótorhjóla var rúmlega 185%
en nýskráð voru 1.080 hjól á móti 378 árið á undan. Mótorhjólum í landinu hefur fjölgað
um tæplega 84% sl. fimm ár. í árslok 2000 voru þau 2,278 en eru nú 4.183 talsins.
Gríðarleg aukning var á innflutningi og nýskráningum bifreiða á árinu 2005 og er
bifreiðafjöldi landsmanna nú kominn í tæplega 215.000 bíla. Fólksbifreiðaeign á hverja
þúsund íbúa er nú komin í 598 samkvæmt bráðabirgðatölum.
Bensíngjald
Bensínsala á árinu 2005 nam um 200,3 milljónum lítra sem er 1,8% aukning frá árinu á
undan. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Ríkisbókhaldi voru innheimtar tekjur af bensín-
sölunni, þ.e. bensíngjaldið, 6.363 m.kr. árið 2005. Það er 334 m.kr. meira en tekjuspá vega-
áætlunar gerði ráð fyrir og 107 m.kr. meira en áætlað var í fjárlögum og fjáraukalögum.
Bensínbifreiðum hefur fjölgað um 13,6% sl. fimm ár en sala á bensíni hefur ekki aukist í
sama hlutfalli. Hún hefur aðeins aukist um 5,9% á þessu sama tímabili.
Díselbifreiðum hefur fjölgað hlutfallslega mun meira á þessum tíma eða um 50%. 1 fyrsta
skipti, í árslok 2005, fór hlutfall díselbifreiða yfir 20% af bílaflotanum. Fyrir tíu árum, í
árslok 1995, var þetta hlutfall rétt rúm I i%.
Bensíngjald hækkaði um 6,7% þann 1. júní 2005, úr 30,89 kr. á lítra. Þetta var gert í
tengslum við upptöku olíugjaldsins vegna þeirrar tekjuskerðingar sem áætlað hafði verið
að Vegagerðin yrði fyrir við það að gamla þungaskattskerfið var lagt niður. Heildar-
álögur á bensín jukust þó ekki því almennt vörugjald á bensín var lækkað á móti þannig
að krónutalan í álögur á hvern lítra hélst óbreytt. Hækkanir á bensíngjaldi hafa þrátt fyrir
þetta ekki haldið í við byggingarvísitölu. Síðastliðin fimm ár hefur vísitalan hækkað um
29,2%, á meðan bensíngjaldið hefur hækkað um 15,2%. Miðað við hækkanir á byggingar-
vísitölu undanfarin ár hefði gjaldið mátt vera 41,83 kr. á lítra 1. janúar 2006.
I ársbyrjun 2005 kostaði lítrinn af 95 oktana bensíni 104,60 kr. frá dælu á bensínstöð með
fullri þjónustu. í mars hófust síðan stöðugar hækkanir á bensínverði. í apríl var það