Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 137
í átt að bor 2 og hófst borun
til austurs þann 19. desember
2005. Eftir voru um 1120 m
af gangagerð til vesturs sem
ákveðið var að bora og
sprengja með hefðbundn-
um hætti. Við nána skoðun
áætlana kom í ljós að þessi
gangabútur yrði til að tefja
allt verkið og var þá ákveð-
ið í árslok að bæta við
fjórðu aðgöngunum niður í
aðrennslisgöngin við aust-
urenda Desjarárstíflu. Vinna
við þau hófst strax eftir
áramót.
Á árinu 2005 voru gerðir
samtals 14,8 km af að-
rennslisgöngum, ásamt göng-
um þeim tengdum, og var
þá lokið um 31,3 km af
49,9 km eða um 63%. Eru
þá ótaldir um 10 km af
Jökulsárgöngum sem ljúka
á árið 2008.
Jökulsár- og Hraunaveita
Fram var haldið vinnu við göng Ufsarveitu úr Jökulsá í Fljótsdal sem hófst um mitt ár
2004. í árslok var búið að grafa um 2 km af 3,4 km. í haust var byrjað á greftri fyrir botn-
rás Ufsarstíflu og gekk það samkvæmt áætlun. í nóvember var auglýst útboð á
Ufsarstíflu, Kelduárstíflu og Hraunaveitugöngum ásamt lokubúnaði og eru það síðustu
stóru útboðin fyrir Kárahnjúkavirkjun.
Stöðvarhús og fallgöng
Framkvæmdir í stöðvarhúsi gengu mjög vel á árinu 2005. Borun og styrkingu fallganga
lauk langt á undan áætlun. I árslok var lokið við að steypa inn allar sográsir, búið að
koma fyrir öllum sniglum og steypa inn fjóra af sex. Uppsteypu á hlaðrými var lokið og
gólf í stöðvarhúsi í kringum vélar 1 og 2 komin í fulla hæð. Uppsteypu í spennahelli var
nánast lokið. Frágangur í strengjagöngum er langt kominn og komið bundið slitlag á gólf
aðkomuganga. Þann 10. október 2005 var samið við lægstbjóðanda, Orkuvirki-Austurafl,
um smíði og uppsetningu á húskerfum en í því felst loftræstibúnaður, raflagnir og lýsing,
neysluvatn og frárennsli, hitakerfi, brunaviðvörunarkerfi og stýrikerfi fyrir ofangreind
atriði. Framkvæmdir við þetta verk hófust á verkstað seint í október.
Hlaðhús
I hlaðhúsi í Fljótsdal er stjórnherbergi, aðstaða fyrir starfsmenn og verkstæði. Vinna við
hlaðhús hefur gengið vel og er húsið allt uppsteypt og vinna við innanluissfrágang hafin.
Lokubúnaður
Smíði á lokubúnaði í botnrás Kárahnjúkastíflu lauk á árinu 2005. Stálfóðring botnrásar
vatnsmegin við lokur var sett upp á verkstað og var langt komið að steypa fóðringar inn
Stöðvarhús Fljótsdalsstöðvar og tengivirkishús, júní 2006.
Úr myndasafni Landsvirkjunar.