Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 165
r Tafln 2. Niðurstöður á samanburði staðla. \
Alverk'95 (4) ÍST EN 206 (5)
Brotþol (MPa) 83,3 76,8
Slitþol (cm) 1,78 1,69
Veðrunarþol (kg/m2) 0,096 0,16
Vatnsupptaka (%) 4,42 4,23
Loftinnihald (%) 7,10 6,20
Sement (kg/m3) 400 340
V/S-tala (hlutfall) 0,38 0,42
< y
Markmiðið var að hafa allar steypurnar eins, þ.e.a.s. svipað v/s-hlutfall, lofthlutfall og
sementsmagn. Nokkrir eiginleikar sem hafa áhrif á endingu steypunnar voru prófaðir
eins og brotþol, slitþol, veðrunarþol og vatnsupptaka.
Niðurstöður verkefnisins eru mjög áhugaverðar (tafla 1). Steypan með norsku fylli-
efnunum kom best út úr öllum prófunum. íslensku fylliefnin komu misjafnlega út úr
prófunum. Björgunarefnið hafði mest brotþol, Rauðamelsefnið mest slitþol og
Vatnsskarðsefnið mest veðrunarþol. Út frájaessum niðurstöðum má álykta að fylliefni
hafa greinilega áhrif á endingu steypunnar. I því samhengi ber að hafa í huga hvaða fylli-
efni eru notuð í steypuna, t.d. velja slitsterkt efni þar sem krafa er gerð um slitþol. Allar
niðurstöðurnar eru innan algengra viðmiðunarmarka. Ef brotþolið er skoðað betur
kemur í ljós að allar steypurnar eru langt yfir áætluðum hönnunarstyrk sem er 35 MPa.
Við hönnun mannvirkja er miðað við ákveðið brotþol og ef steypan er langt yfir þeim
styrk er mögulegt að vandamál komi upp og segja má að hönnunarforsendur séu
breyttar.
Annar hluti verkefnisins var að bera saman steypur sem búnar voru til samkvæmt mis-
munandi stöðlum, Alverk'95 (4) og ÍST EN 206 (5). Búnar voru til veðrunarþolnar C35
steypur með norskum fylliefnum og sömu eiginleikar steypunnar prófaðir og áður.
Nokkur munur er á innihaldi steypunnar eftir því hvaða staðal þær uppfylla (sjá töflu 2).
Báðar steypurnar eru langt yfir áætluðum styrk og steypan nr. 4 nær aðeins 6,5 MPa
hærra brotþoli þrátt fyrir að innihalda 60 kg/m3 meira sement. Það vekur athygli að
steypan nr. 5 hefur betra slitþol þrátt fyrir að hafa minna af sementi og hærri v/s-tölu. í
steypu nr. 4 má segja að of mikið sement sé til staðar og slitálagið mæðir því meira á
sementsefjunni en fylliefnunum. Hvað veðrunarþolið varðar eru báðar steypurnar vel
innan við viðmiðunarmörk sem eru 0,5 kg/m2. Vatnsupptaka steypunnar var mjög
svipuð. Út frá þessum niðurstöðum má vel halda því fram að kröfur Alverk '95 séu í raun
fullstrangar og kröfur ÍST EN 206 vel viðunandi.