Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 182
ferilsgreiningu, Life Cycle Analysis, hafa aukist mjög mikið. Afrakstur vistferilgreiningar
og hugmyndavinnu leiddi til verkefnis sem lýtur að orkusparandi veiðitækni. Verkefnið
var eitt fárra sem hlaut hæstu einkunn í mati Tækniþróunarsjóðs og styrk til þriggja ára
árið 2004. Fyrstu niðurstöður úr tilraunum í eldiskerum lofa góðu.
Nýting innlendra orkugjafa til að draga úr hlutfalli innflutts eldsneytis hafa skipað veg-
legan sess á árinu. Hæst ber í þessu sambandi nýtingu á vetni og lífdísli, sem unnin er úr
úrgangi frá sláturhúsum og steikingarolíu úr stóreldhúsum.
Þekkingarsetur Iðntæknistofnunar
Verulegar breytingar áttu sér stað í fræðslustarfsemi á árinu og breytt var um áherslur í
námskeiðsframboði og kynningu.
Tekið var upp formlegt samstarf við Símenntun Háskólans í Reykjavík þar sem háskólinn
starfrækti tiltekin námskeið sem áður voru einvörðungu starfrækt á Iðntæknistofnun.
Einnig var tekið upp samstarf við Viðskiptaháskólann á Bifröst um starfrækslu hluta
starfsnáms skólans á sviði verslunarreksturs á Iðntæknistofnun.
Ný námskeið voru í boði og má þar nefna AirOpera - árangur í stjórnun vinnufunda,
Innheimta reikninga, Skráning og færsla launa, Stofnun og rekstur verslunar, Innkaup og
vörustjórnun í verslunum, Mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur, Utvistun/innvistun
(Outsourcing), Sölufræ, Þjónustugæði og í fótspor McDonald's - stofnun sérleyfa, en það
námskeið var starfrækt í samvinnu við Samtök verslunar og þjónustu.
Samhliða þessu var lögð áhersla á sértæk námskeið sem eru sniðin að þörfum fyrirtækja
og stofnana. Alls voru 645 þátttakendur á námskeiðum árið 2005.
Impra nýsköpunarmiðstöð
Impra nýsköpunarmiðstöð er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og
fyrirtæki. Frumkvöðlar og stjórnendur sprotafyrirtækja hafa þar aðgang að fjölbreyttri
þjónustu og stuðningsverkefnum sem hvetja til nýsköpunar og framgangs nýrra
viðskiptahugmynda. Impra sinnir frumkvöðlum og fyrirtækjum um land allt gjaldfrjálst
og er með starfsstöðvar í Reykjavík og á Akureyri.
Fyrirtækið lce and Fire naut leiðsagnar Impru
nýsköpunarmiðstöðvar þegar hafin var
vinnsla á laxahrognum.
Handleiðsla er mikilvægur þáttur í starfsemi Impru,
en það er þjónusta sem boðin er öllum frum-
kvöðlum og stjórnendum lítilla fyrirtækja og um
3500 einstaklingar nýta sér þjónustuna árlega. Auk
þess er um 11.000 fyrirspurnum svarað í síma eða
með tölvupósti. Gagnvirk handleiðsla er boðin á
heimasíðu Impru og er það mikilvægt tæki til að
færa þjónustuna nær viðskiptavinum. Einnig eru
þar margskonar hagnýt tæki sem viðskiptavinir geta
notað við áfanga í stofnun og rekstri fyrirtækja, hægt
er að senda inn fyrirspurnir og styrkumsóknir.
A undanförnum árum hefur Impra unnið að öflun
víðtækrar þekkingar á sviði klasa og byggja upp
tengsl við hagsmunaaðila í klasaverkefnum um land
allt og erlendis.
18 Oi Arbók VFl/TFl 2006