Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 197
Bygging tækjageymslu, stjórnturns og þjálfunar-
aðstöðu slökkviliðs
Slökkvilið Pristinaflugvallar hefur á samningstíma-
bilinu verið undir stjórn slökkviliðsstjóra í starfi hjá
FMS. Slökkvivarnir miðast við ICAO eldvarnar-
flokk 8, sem á við flugvélar af stærð B 737. Tækja-
búnaður er fyrir hendi og unnt að kalla út auka-
slökkviliðsmenn til að veita stærri flugvélum
þjónustu í sérstökum tilfellum fyrir allt að ICAO
eldvarnarflokk 9. Á tímabilinu voru keyptar fimm
nýjar slökkvibifreiðar auk ýmiss búnaðar fyrir 60
manna slökkvilið flugvallarins.
FMS annaðist byggingu á 1400 fm húsnæði til
geymslu alls slökkvibúnaðar. I húsinu er eirvnig
stjórnturn með yfirsýn yfir flugvallarsvæðið auk
þjálfunaraðstöðu fyrir slökkviliðið. Gerð viðbragðs-
áætlana gagnvart stórslysum er lokið og gegnir hús-
næðið miklu hlutverki í stórslysaæfingum sem farið
hafa fram undir stjórn FMS.
Hönnun, útboðsferill og framkvæmd vegna bygg-
ingarinnar gekk eins og best varð á kosið. Heildar-
kostnaður verksins er 0,6 milljónir evra og verktími
var nóvember 2005 til júlí 2006.
Endurnýjun Ijósabúnaðar
Á flugvellinum var frá tíma KFOR bráðabirgðaljósakerfi fyrir flugbrautina sem verður
allt fjarlægt og endurnýjað. Ljósakerfið, sem verður sett upp, er hannað miðað við ICAO
staðal CAT II og er helsti ljósabúnaður 900 m löng lína aðflugsljósa við hvorn flug-
brautarenda, aðflugshallaljós, ásamt þröskuldar-, kant- og miðlínuljósum flugbrautar.
Einnig verða sett upp leiðþeiningarskilti og kantljós á akbrautir og flughlöð.
Byggt verður 200 fm stöðvarhús fyrir háspennubúnað, stýringar og varaafl vegna ljósa-
kerfisins. Vararafstöðvar og UPS-búnaður er afar mikilvægur þar eð Kosovo fær rafmagn
frá gömlu kolakyntu risaorkuveri og er rafmagnið mjög óstöðugt. Hönnun og gerð
útboðslýsingar er lokið og stefnt er að útboði í nóvember 2006 og verklokum í september
2008. Áætlað er að kostnaður vegna verksins verði á bilinu 4 til 4,5 milljónir evra.
Búnaður fyrir flugumferðarstjórn og leiðsögu
KFOR hafði sett upp fjölstefnuvita (VOR) og ILS nákvæmnisblindaðflugskerfi fyrir
lendingu á flugbraut til suðurs. Samtals hafði KFOR hannað og gefið út átta blindað-
flugsferla sem byggðir eru á þessum aðflugsbúnaði, en grunngögn hönnunar aðflugs-
ferlanna fundust ekki þegar FMS kom að málum. Nauðsynlegt var því að endurskoða öll
aðflugskortin og gefa þau út að nýju miðað við staðla ICAO. FMS varð að gera stafrænan
kortagrunn yfir hindranir á stóru svæði innan Kosovo, sem verkfræðistofan Hnit vann
frá grunni, í samstarfi við finnskt loftljósmyndafyrirtæki.
Kvnnina oa tækniareinar fvrirtækia oa stofnana i195