Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 209
fyrirtækið áformar að reisa á næstu árum. Álframleiðsla hefst í apríl 2007 og framleiðslu-
getan verður allt að 346.000 tonn af hleifum, börrum og vírum á ári. I Fjarðaálsverkefninu
fékk Alcoa til samstarfs við sig verktakafyrirtækið Bechtel, verkfræðisamsteypuna HRV
og arkitektastofurnar TBL. Notast verður við bestu fáanlegu tækni og þekkingu á öllum
sviðum framleiðslunnar.
Alcoa
Árið 1886 fann bandaríski efnafræðinguriim Charles Martin Hall upp byltingarkennda
aðferð til að framleiða ál með rafgreiningu. Tveimur árum síðar reisti fyrirtæki hans
fyrsta álver heims í Pittsburgh í Bandaríkjunum. Allar götur síðan hefur fyrirtækið,
Álcoa, verið leiðandi í áliðnaði á heimsvísu. Alcoa starfrækir 28 álver í fimm heimsálfum
og árið 2005 framleiddi fyrirtækið 3,7 milljónir tonna af áli. Alcoa spannar alla virðis-
keðjuna í áliðnaði, frá námuvinnslu til fullvinnslu afurða, og velta samstæðunnar árið
2005 nam 26,3 milljörðum Bandaríkjadollara. Alcoa er skráð almenningshlutafélag með
um 300.000 eigendur og hjá fyrirtækinu starfa 130.000 manns í 43 löndum.
Bechtel
Verktakafyrirtækið Bechtel hefur tekið þátt í meira en 22.000 verkefnum í 140 löndum og
má þar nefna Hoover-stífluna, flugvöllinn í Hong Kong og Ermarsundsgöngin. Bechtel
hóf starfsemi við lagningu járnbrautar í Oklahoma árið 1898 og fyrirtækið er enn í eigu
sömu fjölskyldunnar. Hjá Bechtel eru nú rúmlega 40.000 fastráðnir starfsmenn og mun
fleiri verkefnaráðnir. Vinnu við hönnun álvers Alcoa Fjarðaáls hefur verið stýrt frá skrif-
stofu Bechtel í Montreal í Kanada og fjöldi Islendinga hefur unnið þar að Fjarðaáls-
verkefninu um lengri eða skemmri tíma.
íslenskt samstarf
Að HRV standa Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen, Rafhönnun og Hönnun. HRV býr
yfir víðtækri verkfræðiþekkingu sem hefur nýst mjög vel í Fjarðaálsverkefninu. Fyrir-
tækin hafa meðal annars unnið stór verkefni fyrir álverin í Straumsvík og á Grundar-
tanga. TBL arkitektar standa fyrir samstarf arkitektastofanna Tark, Batterísins og Lands-
lags. Stofurnar sigruðu í hönnunarsamkeppni sem náði til útlits, landslags og innra
umhverfis álversins og hafa verið með í verkefninu frá byrjun. Margir íslenskir verktakar
hafa síðan komið að framkvæmdinni, svo sem Suðurverk, Héraðsverk, Istak, Kollufell,
Atafl, Malarvinnslan, Hamar, BM Vallá og Mest.
Álverið í tölum
Álver Alcoa Fjarðaáls er samtals um 90 þúsund fermetrar að stærð. Helstu mannvirki eru
tveir 1.100 metra langir og 25 metra breiðir kerskálar, spennistöð, súrálssíló, steypuskáli,
skautsmiðja, verkstæði, geymslur, starfsmannamiðstöð, endurvinnslustöð og loft-
hreinsivirki. Alls fara 155.754 rúmmetrar af steypu, 24.781 tonn af burðarstáli, 76.577
metrar af pípulögnum, 1.356.203 metrar af rafmagnsköplum og 309.899 fermetrar af
álklæðningu í allar byggingar. Suðurverk hefur flutt samtals um 6,8 milljónir rúmmetra
af efni á svæðinu. Til þess þurfti meðal aimars stærstu manngerðu sprengingu Islands-
sögunnar þegar 28 toma af dínamíti voru notuð til að losa um 60 þúsund rúmmetra af
efni. Byggingarkostnaður er áætlaður 1,295 milljarðar Bandaríkjadollara. Um þriðjungur
af kostnaði við verkefnið fellur til á íslandi og íslendingar leggja jafnframt til um þriðjung
heildarvinnustunda á framkvæmdasvæðinu.