Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Page 248
stendur af um 100 m landfyllingu út frá Gelgju-
tanga, 60-70 m langri brú yfir á um 500 m langa
manngerða eyju í miðri Kleppsvíkinni en þar tekur
við 170-200 m löng brú yfir á Gufuneshöfða. í
verkefninu var nyrðri brúin, sem tengist Gufunes-
höfða, hönnuð. Gert var ráð fyrir að hún verði þriggja
akreina, á þremur höfum (60 m - 80 m - 60 m) og var
ákveðið að nota burðarvirki með samverkandi stál-
steypu kassaþversniði. Dæmigert þversnið sem
hönnunin gaf af sér er sýnt á mynd 4.
Þetta brúarform þykir oft hagkvæmt fyrir álíka haflengdir, en aðrir kostir eru að brúin
hefur einkar gott vinduviðnám, er fljótleg í uppsetningu og steypta brúardekkið gefur
gott þreytuviðnám.
Til að minnka umfang var verkefnisvinnan einskorðuð við að skoða þreytuáraun á einu
deili, neðst á miðju endahafi. Burðarþolsgreining á þversniði sýndi að stór spennusveifla
er á þessu svæði, auk þess sem deilið neðst í sniðinu er mikilvægt fyrir burðarvirki
brúarinnar og því einkum áhugavert með tilliti til þreytu.
Þreytuhönnun byggð á álagslíkönum 1-4
Við þreytuhönnunina var þreytuáraunin fyrst skoðuð með hliðsjón af álagslíkönum 1-4
í Evrópustöðlunum sem byggja á reynslutölum fyrir álag.
Þreytuálagslíkön 1 og 2 má nota til að finna lágmarks þreytustyrk deilis og miðar að því
að tryggja að spennusveiflan verði ekki stærri en þröskuldsspenna fyrir þreytuskaða á
viðkomandi deili.
Eftirfarandi niðurstöður fengust:
• Þreytuálagslíkan 1 krefst þreytuflokks 56 að lágmarki.1
• Þreytuálagslíkan 2 krefst þreytuflokks 45 að lágmarki.
Þreytuálagslíkön 3 og 4 má nota til að reikna þreytuendingu deilis. Þau gáfu eftirfarandi
niðurstöðu fyrir deili í flokki 36 (lélegasta gerð):
• Þreytuálagslíkan 3 gefur 22 ára endingu.
• Þreytuálagslíkan 4 gefur 43 ára endingu.
Þreytuhönnun byggð á álagslíkani 5
Þreytuálagslíkan 5 byggist á raunmælingum. Þegar mæligögn er nógu ýtarleg getur þetta
líkan gefið mjög nákvæma þreytuhönnun. Því er mikilvægt að þau mæligögn sem notuð
eru séu sem réttust og spanni langt tímabil. Eina mælitækið sem kom til álita að nota fyrir
þessa rannsókn var umferðargreinir sem Vegagerðin hefur sett upp við Esjumela rétt
utan Mosfellsbæjar. Umferðargreinar eru ný gerð mælitækja sem komið er fyrir undir
vegyfirborði og safna nákvæmari upplýsingum um umferð en áður hefur tíðkast.
Umferðargreinirinn á Esjumelum er fullkomnasti greinirinn í neti umferðargreina sem
Vegagerðin hefur komið upp á undanförnum árum.
Greinirinn samanstendur af rafþrýstiþyngdarmæli og spanlykkjumæli. í rafþrýsti-
mælinum eru nokkrir rafþrýstinemar sem skynja fjölda öxla og bil milli hjóla. Þessi
rafþrýstimælir er jafnframt þyngdarmælir og vigtar því einnig alla umferð. Mælitæknin
byggist á svokallaðri kvartskristaltækni og er óháð hraða ökutækisins. Spanlykkju-
mælirinn er svo notaður til að mæla ökutækjahraðann. Þegar allt er tekið saman þá skráir
umferðargreinirinn aksturtíma, ökuhraða, akstursstefnu, akbraut, bil milli bíla, lengd
bíls, bil milli öxla og þyngd hvers öxuls. Út frá mælingu á bili milli öxla og fjölda öxla
1 Um deili í þreytuflokki 56 skv. Evrópustaðli gildir að með 75% vissu megi gera ráð fyrir að 95% slíkra deila brotni ekki
við 2 milljón 56 N/mm2 álagspúlsa.
2 4 6, Arbók VFl/TFl 2 0 0 6